Elísabet hlaut einnig heiðursverðlaun Arnar Geir Halldórsson skrifar 22. nóvember 2020 23:01 Elísabet Gunnarsdóttir hefur þjálfað Kristianstad um langt árabil. mynd/@kristianstadsdff
Elísabet Gunnarsdóttir kom, sá og sigraði á lokahófi Damallsvenskan, sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Eins og greint var frá fyrr í kvöld var hún valin þjálfari ársins. Lið hennar, Kristianstad, hafnaði í 3.sæti deildarinnar og tryggði sér þar með keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Í lok kvöldsins fékk hún svo sérstök heiðursverðlaun Sportbladet, sem er íþróttaarmur sænska fjölmiðilsins Aftonbladet. Elísabet er í miklum metum í sænskri kvennaknattspyrnu enda hefur hún þjálfað lið Kristianstad frá árinu 2009. Fékk hún heiðursverðlaunin fyrir sitt framlag til sænsks kvennafótbolta en verðlaunin hafa ekki verið veitt áður. Mikil hefð er fyrir lokahófi sænsku deildarinnar þar sem öllu jafna er boðið til glæsilegs galakvöldverðar en vegna kórónuveirufaraldursins fór athöfnin að mestu fram rafrænt. Búið var að útbúa metnaðarfullt myndband þegar heiðursverðlaunin voru veitt þar sem Margrét Lára Viðarsdóttir var á meðal viðmælenda sem sendu kveðju til Elísabetar.
Sænski boltinn Tengdar fréttir Elísabet þjálfari ársins í Svíþjóð Elísabet Gunnarsdóttir var útnefnd þjálfari ársins í sænsku úrvalsdeildinni á lokahófi deildarinnar í kvöld. 22. nóvember 2020 19:28 Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Suárez fær ekki að vera með á HM Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Sjá meira
Elísabet þjálfari ársins í Svíþjóð Elísabet Gunnarsdóttir var útnefnd þjálfari ársins í sænsku úrvalsdeildinni á lokahófi deildarinnar í kvöld. 22. nóvember 2020 19:28