Ríkisstjórnin heldur spilum þétt að sér varðandi aðgerðarpakka tvö Jóhann K. Jóhannsson og Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifa 20. apríl 2020 20:00 Ríkisstjórnin ræðir efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna kórónufaraldurins Vísir/Vilhelm
Annar aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldursins verður kynntur síðdegis á morgun. Um er að ræða blöndu af úrræðum fyrir atvinnulífið og heimilin. Aðgerðirnar voru ræddar í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi en lítið var um svör frá fjármálaráðherra varðandi útfærslur. „Það er erfitt að bregðast við þessari fyrirspurn svona í ljósi þess að við höfum hugsað okkur að kynna okkar aðgerðir á morgun. Ég get þó sagt það að öll þessi atriði sem eru nefnd eru sérstaklega til skoðunar,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra á alþingi í dag. Úrræðin sem nefnd hafa verið eru til að mynda fyrir námsmenn, frekari aðgerðir í þágu fyrirtækja, sjálfstætt starfandi og einyrkja, aðgerðir til að mæta tekjufalli þeirra sem ekki hafa mátt sinna starfsemi vegna samkomubanns, aðgerðir í þágu nýsköpunar, félagslegar aðgerðir í þágu viðkvæmra hópa með aðkomu sveitarfélaga. „Við höfum frá upphafi verið að horfa til smærri fyrirtækja. Þar eru flest störfin og samkvæmt hefðbundnum skilgreiningum á litlum og meðal stórum fyrirtækjum þá erum við bara að tala um bróðurpartinn af öllum fyrirtækjum í landinu. Við erum að horfa til fyrirtækja sem að hefur verið gert að loka starfsemi sinni og við höfum verið að spyrja okkur hvernig við getum komið á móts við þeirra sérstaka vanda. Hvað sér sanngjarnt að gera í því,“ sagði Bjarni. Óundirbúnar fyrirspurnir á AlþingiVísir/Vilhelm Hlutabótaleiðin hefur ekki nýst öllum Ljóst sé að hlutabótaleiðin sem ríkisstjórninn kynnti í fyrsta aðgerðarpakka hefur ekki skilað sér til allra. „Ég er þeirrar skoðunar að varðandi þann þáttinn sérstaklega að þá hafi töluvert syrt í álinn frá því að við kynntum okkar fyrstu aðgerðir,“ sagði Bjarni. Síðan þá hafi útlitið ekki batnað sem kalli á umræður með hvaða hætti mánuðirnir eftir að hlutastarfaleiðin lýkur samkvæmt lögum eigi að vera. „Það er um mjög krefjandi stöðu að ræða, ekki síst vegna þeirra fyrirtækja sem hafa jafnvel ekkert að gera við starfsmenn á komandi mánuðum,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á alþingi í dag Hvetur ríkisstjórnina að taka stærri skref Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokksformaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sagði þegar hún var til viðtals í kvöldfréttum Stöðvar tvö fyrr í kvöld að ekki megi gleyma því að þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til hafi snúist að miklu að heimilinum. „Við megum ekki gleyma því að það að tryggja fólki í hlutabótaleiðinni og eins með atvinnustigið, að halda því uppi, það er auðvitað partur af því að tryggja hag heimilanna,“ sagði Bjarkey. „Nú veit ég ekki hvernig aðgerðirnar líta út sem kynna á á morgun, þingflokkar stjórnarmeirihlutans fá kynningu á því klukkan ellefu í fyrramálið og formenn stjórnarandstöðuflokkanna eftir hádegi, þannig að það liggur ekki fyrir alveg enn þá.“ Bjarkey sagðist halda að frekar sé verið að flýta ferlinu en að seinka því með því að vinna tillögurnar ekki þvert á flokka. „Þetta eru flókin og erfið mál eins og við þekkjum og stjórnarandstaðan hefur bara almennt staðið sig ágætlega hér eins og við hinir þingmennirnir þegar við höfum fengið þetta í fangið og við höfum unnið þetta þétt saman hérna á Alþingi þegar þetta hefur komið til nefnda og gengið alveg ljómandi vel. Ég er ekkert viss um það að það hefði flýtt fyrir ferlinu að hafa þetta meira á fyrri stigum.“ Hún sagði það vert að nefna að samráðsfundir hafi verið haldnir með formönnum flokkanna og margar hugmyndir komið fram þar og inni á þingi og vonast hún til þess að tillit verði tekið til þeirra. Þá sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, að ekki yrði dvalið lengur við kvartanir flokksins um samráðsleysi af hálfu ríkisstjórnarinnar. „Það sem skiptir mest máli er hvernig við getum orðið að liði. Við höfum ákveðið það að styðja við góð mál ríkisstjórnarinnar sem auka viðspyruna og viðreisn íslensks efnahagslífs og það er það sem skiptir mestu máli fyrir heimilin og fyrir fjölskyldurnar og fyrir atvinnulífið til lengri og skemmri tíma. Þannig að við erum frekar að reyna að nálgast þetta út frá liðsheild.“ Þá sagði Þorgerður það mikilvægt að halda áfram. Hún hafi saknað þess að nú sé heill mánuður liðinn frá því að síðasti aðgerðarpakki var kynntur og hvetur hún ríkisstjórnina til að taka stærri skref frekar en minni. „Mér hefur þótt þau vera frekar lítil fram til þessa en ég held að það skipti mestu máli að halda áfram.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Alþingi Efnahagsmál Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Sjá meira