Takk Bubbi og Ásgeir Halldóra Mogensen skrifar 26. apríl 2021 15:01 Baráttunni gegn spillingu hefur borist góður liðsauki á síðustu dögum. Hundruð ef ekki þúsund Íslendinga hafa krafist aðgerða og úrbóta, að stjórnvöld taki á spillingu á Íslandi af festu og hrifsi völdin úr höndum fjársterkra hagsmunahópa. Ákallið að undanförnu má kannski hvað helst rekja til tveggja manna: tónlistarmannsins Bubba Morthens og Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Þó þeir séu um margt ólíkir eiga þeir að minnsta kosti eitt sameiginlegt: Þeim líst ekkert á stöðuna. Báðir hafa þeir tjáð sig um framferði útgerðarfélagsins Samherja að undanförnu, hvorugur undir jákvæðum formerkjum. Bubbi gagnrýnir aðför fyrirtækisins að Ríkisútvarpinu og Ásgeir gagnrýnir aðför þess gegn starfsmönnum Seðlabankans. Í samtali við Stundina segir seðlabankastjóri enn fremur að Íslandi sé „að miklu leyti stjórnað af hagsmunahópum” og það sé „meiri háttar mál að lenda uppi á kant við þá.“ Ummælin hafa vakið verðskuldaða athygli, enda ekki á hverjum degi sem einn æðsti embættismaður þjóðarinnar tjáir sig með jafn opinskáum hætti. Ekki á hverjum degi sem hulunni er flett af átökunum bakvið tjöldin í efstu lögum samfélagsins. Ummæli seðlabankastjóra og Bubba hafa blásið baráttunni gegn spillingu byr undir báða vængi - og fyrir það erum við Píratar gríðarlega þakklátir. Engin endurreisn án uppgjörs Endurreisn Íslands eftir faraldurinn verður ekki farsæl nema sérhagsmunaöfl sleppi krumlunum af íslensku samfélagi. Sérhagsmunaöflin sem hafa sannfært stjórnvöld um að hunsa niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá, því hún kveður á um að auðlindir landsins séu í eigu þjóðarinnar. Það munu þau aldrei gera sjálfviljug og þess vegna þarf stjórnmálafólk sem vill taka á spillingu af festu. Sem vill koma í veg fyrir að einstaka fjölskyldur og fyrirtæki geti í krafti gríðarlegs auðs beygt stjórnvöld undir vilja sinn. Á þessum grunni voru Píratar stofnaðir árið 2013. Baráttan gegn fjársterkum hagsmunaöflum, samþjöppun valds og spillingu er í erfðaefni flokksins. Það er ekki hvað síst af þeim sökum sem Píratar hafa undanfarna 18 mánuði, frá birtingu Samherjaskjalanna um framgöngu fyrirtækisins í Namibíu, látið að sér kveða. Hér verður stiklað á stóru um það sem Píratar hafa gert á þingi í tengslum við Samherjamálið og margþætta gagnrýni flokksins í garð ríkisstjórnarinnar, sem hefur leyft framgöngu fyrirtækisins að viðgangast. Eftir að afhjúpanir hinna svokölluðu Samherjaskjala litu dagsins ljós haustið 2019 kölluðu Píratar strax eftir því að sjávarútvegsráðherra myndi sitja fyrir svörum í þinginu. Skömmu síðar settu Píratar á dagskrá þingsins sérstaka umræðu um spillingu á Íslandi, þar sem Samherjaskjölin voru í brennidepli. Píratar endurfluttu þingsályktun um rannsókn á fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands, eftir úttekt á því hvernig fjárfestingarleiðin var nýtt af Samherja. Píratar kröfðu sjávarútvegsráðherra um svör vegna tengsla hans við Samherja. Rannsókn Pírata á sjávarútvegsráðherra stöðvuð Þórhildur Sunna Ævarsdóttir hafði frumkvæði að því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd rannsakaði hæfi sjávarútvegsráðherra í ljósi sterkra tengsla hans við Samherja í kjölfar Samherjaskjalanna, þar sem forkólfar Samherja töluðu um hann sem „sinn mann“ í ríkisstjórninni og upplýsingar lágu fyrir um bein samskipti ráðherrans við þá í kjölfar Samherjaskjalanna. Blásið var til opins fundar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, undir stjórn Pírata, þar sem ráðherra sat fyrir svörum. Í desember 2019 og í mars 2020 sendi nefndin ítarlegar upplýsingabeiðnir um störf ráðherrans fyrir Samherja, fjárstuðning fyrirtækisins við framboð hans og aðgerðir hans sem ráðherra í þágu Samherja. Talsverðar upplýsingar lágu fyrir sem bentu enda til þess að Kristján Þór væri vanhæfur sem sjávarútvegsráðherra. Að endingu ákváðu ríkisstjórnarflokkarnir að stöðva rannsóknina sem Píratar hófu með afli og lýsti því yfir að ekkert væri athugavert við stjórnarhætti síns ráðherra. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sagði í kjölfarið af sér sem formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í mótmælaskyni og til að geta upplýst um það sem væri í gangi innan nefndarinnar. Ítrekaðar ræður, spurningar og gagnrýni Þess utan hafa þingmenn Pírata ítrekað fjallað um og gagnrýnt framgöngu Samherja í ræðum sínum. Athugið að þetta er ekki tæmandi upptalning: Ég krafði forsætisráðherra svara um símtal sjávarútvegsráðherra til forstjóra Samherja Þórhildur Sunna Ævarsdóttir gagnrýndi sinnuleysi íslenskra stjórnvalda í spillingarvörnum hérlendis, eftir að þau höfðu sagt rót Samherjamálsins vera spillingu í Namibíu. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir spurði formann Framsóknarflokksuns um hæfi sjávarútvegsráðherra vegna tengsla hans við Samherja. Björn Leví Gunnarsson ítrekar stuðning Pírata við rannsókn á greiðslum Samherja fyrir veiðirétt í Namibíu og á Íslandi. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir spurði sjávarútvegsráðherra um verkleysi hans eftir birtingu Samherjaskjalanna. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir spurði sjávarútvegsráðherra um skilgreiningu á tengdum aðilum í sjávarútvegi vegna vegna andstöðu Samherja við að fara að lögum. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir spurði forsætisráðherra um hvað henni þætti um að Samherji ætti 49,9% hlut í Síldarvinnslunni án þess að teljast tengdur aðili. Helgi Hrafn Gunnarsson greindi áróðursherferð Samherja í þaula í tveimur greinum, sem má lesa hér og hér. Síðast en ekki síst má minna á nýlega áramótagrein og eldhúsdagsræðuÞórhildar Sunnu þar sem hún talar um Samherjasímtalið, spillinguna og hagsmunahópana. Píratar hafa alltaf og munu alltaf berjast gegn spillingu. Píratar hafa alltaf og munu alltaf gagnrýna spillingu þegar hún verður á vegi þeirra og það verður ekki þaggað niður í þeim um Samherjamálið eins og þessi fjölmörgu dæmi sanna. Höfundur er þingmaður Pírata Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halldóra Mogensen Samherjaskjölin Píratar Skoðun: Kosningar 2021 Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar