Hraðbraut Þórdísar Kolbrúnar Tryggvi Hjaltason skrifar 10. júní 2021 07:00 Fyrir ekki svo löngu flutti ég aftur í mína heimasveit eftir tíu ára viðveru á höfuðborgarsvæðinu. Ég man ennþá þegar ég svaf fyrstu nóttina í nýja húsinu mínu og ég lá í rúminu og ætlaði að fara að setja á mig heyrnartól þegar ég áttaði mig á því að það var algjör þögn, bílaniðurinn sem ég var vanur var horfinn. Ég man hvernig samfélagið umvafði mig og bauð mig hlýlega velkominn heim aftur og ég man að ég fór og keypti í matinn, fór í pósthúsið og til sýslumanns og kláraði það á 25 mínútum og ég hugsaði: „vá ég get loksins stofnað hljómsveitina mína með allan þennan nýja frítíma“. Mikið var gott að vera kominn heim! Fleira átti eftir að koma mér á óvart og það varðaði ákveðna en áberandi þróun sem var og er greinilega að eiga sér stað á landsbyggðinni. Ég gat tekið starfið mitt í hátækni- og hugverkageiranum með mér og þegar heim var komið rann mér blóðið til skyldunnar að reyna að miðla eitthvað af þeirri þekkingu og tengslum sem ég hafði aflað í áratugs fjarveru minni aftur til landsbyggðarinnar. Ég tók því þátt sem bæði dómari og stuðningsaðili í ýmsum frumkvöðlakeppnum, ég studdi verkefni í fablab-smiðjunum, ég tók sæti í stjórnum á ýmsum nýsköpunar- og hugvitsdrifnum vettvöngum og reyndi að leiðbeina og tengja eftir bestu getu frumkvöðla við fjármagn og mér klárara og betra fólk. Þrjár breytingar eru mér kristaltærar eftir þessa reynslu: 1. Landsbyggðin er að kalla börnin sín heim og í þetta skiptið á þeirra eigin forsendum. Þeim fjölgar nú hratt ár frá ári sem, eins og ég, eru að flytja aftur í heimabyggð sína og geta tekið störf sín og þekkingu með sér. Þetta mun hafa gríðarleg áhrif á sóknartækifæri, lífsgæði og samfélags-strúktúr á landsbyggðinni. Spennandi tímar eru farnir í gang. 2. Landsbyggðin er komin í fljúgandi frumkvöðlagír. Fólk á öllum aldri og með ótrúlegasta bakgrunn, menntað og ómenntað, er að bretta upp ermar og sækja einkafjármagn og styrki og stuðning hins opinbera til að koma af stað smiðjum, aukinni menntun, nýjum fyrirtækjum, rannsóknarverkefnum á margvíslegum skala, frá þangrækt til skógræktar og heilbrigðisþjónustu. Nú þegar eru bæjarfélög byrjuð að uppskera í formi fjölbreyttari grunnstoða í efnahagslífinu, fleiri og áhugverðari starfa og fjölbreyttari áskoranna. Stöðugir atvinnugeirar sem borið hafa byggðir uppi eru einnig að ganga í gegnum ákveðna endurnýjun lífdaga í formi nýrra hugmynda, tækniframfara og sókn inn á nýja markaði. Ó þvílíkir tímar til að búa á landsbyggðinni! Þriðja breytan sem tók mig smá tíma að átta mig á er að landsbyggðarstelpan og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Íslands, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, virtist vera með puttana á einn eða annan hátt í öllum framangreindum jákvæðum breytingum og þróun. Þórdís hefur stóraukið stuðning við Fablab-smiðjurnar, hún hefur komið á fót milljarða hvatasjóði, Kríu, sem stóreflir fjármögnunarumhverfi nýsköpunar, hún tryggði að sérfræðingar gætu auðveldlega sest að hvar sem er á Íslandi og tekið tengsl sín með sér, hún hefur stutt með beinum styrkjum fjölda frumkvöðlasmiðja, þekkingarsetur og atvinnuhraðla á landsbyggðinni og núna síðast fyrir nokkrum vikum úthlutaði hún styrkfé til fjölda verkefna í gegnum sérstakan landsbyggðar nýsköpunarsjóð, Lóu, fyrstan sinnar tegundar á Íslandi. Ég kynntist Þórdísi fyrir algjöra tilviljun á fyrri hluta höfuðborgardvalar minnar þegar hún sem aðstoðarmaður þáverandi innanríkisráðherra tók brosandi á móti mér og ég gleymi því seint þegar ég sat á móti henni í ráðuneytinu og hún sagði: „Tryggvi, mér finnst Ísland miklu meira vera land tækifæranna heldur en Bandaríkin. Astæðan fyrir því að ég fór í stjórnmál var svo að ég geti gert mitt allra besta til að tryggja að allir geti upplifað þau tækifæri, að Jón og Gunna á Akranesi eða í Vestmannaeyjum eða Húsavík geti gert sem allra best úr sínum metnaði og ríkið styðji þau í því en flækist samt ekki fyrir“. Stuttu seinna varð Þórdís ráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins þar sem hún hefur látið hendur standa fram úr ermum til að innleiða og gulltryggja Ísland sem land tækifæranna, að leggja þessa hraðbraut inn í framtíðina, fyrir Jón, fyrir Gunnu, fyrir alla. Höfundur starfar í hugverkageiranum og býr á landsbyggðinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Nýsköpun Skoðun: Kosningar 2021 Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar