Lífið

Gone-Girl stjarnan Lisa Banes látin eftir árekstur

Atli Ísleifsson skrifar
Ekið var á Lisu Banes í New York þann 4. júní síðastliðinn. Henni var haldið sofandi á gjörgæslu, en lést af völdum áverkunum í gær.
Ekið var á Lisu Banes í New York þann 4. júní síðastliðinn. Henni var haldið sofandi á gjörgæslu, en lést af völdum áverkunum í gær. Getty/C Flanigan

Bandaríska leikkonan Lisa Banes, sem meðal annars er þekkt fyrir hlutverk sitt í spennumyndinni Gone Girl, er látin, 65 ára að aldri. Rafhlaupahjóli eða léttu bifhjóli var ekið á Banes nærri Lincoln Center í New York þann 4. júní og hafði hún dvalið á gjörgæslu sjúkrahúss í borginni síðan.

Entertainment Tonight greinir nú frá því að Banes hafi látist af völdum þeirra áverka sem hún hlaut í slysinu.

Talskona Banes staðfestir andlát Banes og segir hana hafa verið stórkostlega konu, vinalega og hafi ávallt gefið mikið af sér. Þá hafi hún verið mikil fjölskyldukona og sannur vinur vina sinna.

Bandarískir fjölmiðlar segja frá því að sá sem ók á Banes hafi sjálfur flúið vettvang eftir slysið og sé enn ófundinn. Banes var flutt á Mount Sinai Morningside sjúkrahúsið þar sem henni var haldið sofand, en hún lést svo í gær.

Banes fór með hlutverk móður konunnar sem hvarf í myndinni Gone Girl frá árinu 2014. Myndin var í leikstjórn David Fincher og skartaði þeim Ben Affleck og Rosamund Pike í aðalhlutverkum.

Á leiklistarferli sínum fór Banes einnig með hlutverk í myndunum A Cure for Wellness og Cocktail og sjónvarpsþáttum á borð við Six Feet Under, Nashville, Boston Legal, NYPD Blue, Royal Pains og Them.

Banes var ættuð frá Chicago og lætur eftir sig eiginkonuna Kathryn Kranhold.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.