Viðskipti innlent

Fall WOW var upphafið að endalokum Hótels Sögu

Heimir Már Pétursson skrifar
Bændasamtök Íslands hafa alla tíð haft skrifstofur sínar í Bændahöllinni. Pósturinn og Arion banki leigja einnig aðstöðu þar og hárgreiðslustofa er með starfsemi í kjallaranum
Bændasamtök Íslands hafa alla tíð haft skrifstofur sínar í Bændahöllinni. Pósturinn og Arion banki leigja einnig aðstöðu þar og hárgreiðslustofa er með starfsemi í kjallaranum Stöð 2/Egill

Formaður Bændasamtakanna segir fall WOW flugfélagsins í mars 2019 hafa markað upphafið að endalokum Hótels Sögu en rekstrarfélag þess var tekið til gjaldþrotaskipta í síðustu viku. Alger óvissa ríki um framtíð húsnæðisins.

Það er dapurlegt um að litast á Hótel Sögu þessa dagana sem hýst hefur glæsilegan hótel- og veitingarekstur allt frá stofnun hótelsins árið 1962. Þar hafa verið haldnir dansleikir og allt upp í forsetaveislur. En síðasti gesturinn labbaði þaðan út í október á síðasta ári.

Einn af stigagöngum Hótels Sögu.Stöð 2/Egill

Gunnar Þorgeirsson formaður Bændasamtakanna vonar að brátt fari að sjá til sólar um framtíð húsnæðisins.

„Rekstrarfélagið var úrskurðað til gjaldþrotaskipta í síðustu viku. Húseignin sem slík er enn í eigu Bændahallarinnar ehf. sem á og rekur húsnæðið í dag,“ segir Gunnar.

Bændahöllin er síðan í eigu Bændasamtaka Íslands sem hefur verið með skrifstofur sínar í húsninu frá upphafi. Einnig eru Pósturinn og Arion banki með aðstöðu á Sögu og hárgreiðslustofa í kjallaranum.

Þegar okkur bar að garði í dag var kvikmyndatökufólk við störf í forsetasvítu hótelsins en fleira kvikmyndagerðarfólk hefur nýtt húsnæðiðað undanförnu. Viðræður hafa staðið yfir við nokkra aðila undanfarið ár um kaup eða leigu á húsnæðinu, meðal annars við Háskóla Íslands.

„Svo eru bara viðræður við aðra fjárfesta sem hafa hug á að endurreisa hótelstarfsemi hér. Þannig að það er ekki alveg tímabært að segja hvað verður ofan á en það er alla vega verið í þreyfingum ennþá,“ segir Gunnar.

Nokkrum árum fyrir tekjurhrunið með kórónuveirufaraldrinum var ráðist í umfangsmiklar og dýrar fjárfestingar og endurbætur á hótelinu. Reksturinn mátti því ekki við áföllum.

„Þá byrjar þetta í raunu og veru með falli WOW. Þá dregst saman hér í rekstri um einhver 30 prósent. Þar sem Bandaríkjamenn voru mjög áhugasamir um að gista á hótel Sögu,“ segir Gunnar.

Það var því ekki kræsileg staða sem blasti viðnýjum formanni Bændasamtakanna í mars í fyrra.

„Og eiginlega það fyrsta sem ég fæ í fangið sem formaður Bændasamtakanna er covid. Þannig að nánast á einni nóttu fóru allir héðan út,“segir Gunnar Þorgeirsson.


Tengdar fréttir

Stefnir í áframhaldandi hótelrekstur í Bændahöllinni

Einkaviðræður aðila tengdum Hótel Óðinsvé um kaup á Bændahöllinni eru vel á veg komnar. Nýir eigendur áforma áframhaldandi rekstur hótels í fasteigninni sem hýst hefur Hótel Sögu í 59 ár.

Hugsanlegt að Háskóli Íslands kaupi Hótel Sögu

Til greina kemur að Háskóli Íslands kaupi hótel Hótel Sögu. Þetta staðfestir Jón Atli Benediktsson, rektor skólans, í samtali við Markaðinn viðskiptarit Fréttablaðsins en hótelinu var lokað í nóvember síðastliðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×