Grunur um brot á sóttvarnalögum í miðbænum Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 19. desember 2021 07:24 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stóð í ströngu í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Vilhelm Lögreglan stóð í ströngu í gærkvöldi og í nótt en 116 mál voru skráð á málaskrá. Þar af voru rúmlega tuttugu tilkynningar um hávaða.
Afskipti voru höfð af starfsemi veitingastaðar í miðbænum rétt fyrir klukkan níu en grunur lék á um brot á reglum um lokun samkomustaða vegna samkomutakmarkana. Um klukkustund síðar hafði lögregla afskipti af starfsemi veitingastaðar í miðbænum af sömu ástæðu. Þá hafði lögregla afskipti af tónleikahaldi í Vesturbænum klukkan hálf tíu í gærkvöldi en grunur lék á um brot á sóttvarnalögum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fjölmargir voru handteknir, grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða vímuefna, en lögregla setti meðal annars upp eftirlitspóst í Garðabænum. 352 bifreiðar voru stöðvaðar við eftirlitið en þrír ökumenn voru handteknir grunaðir um ölvun við akstur. Maður í annarlegu ástandi var handtekinn í blokk í miðbænum, grunaður um eignaspjöll, en talið er að hann hafi brotið rúðu í stigagangi blokkarinnar. Annar, í annarlegu ástandi, var handtekinn í miðbænum grunaður um innbrot en búið var að brjóta rúðu og þá fannst stormjárn á vettvangi. Lögregla bárust þar að auki tvær tilkynningar um búðarhnulp, bæði á Höfðabakka og í Grafarvogi. Á Höfðabakkanum hafði maður sett vörur fyrir rúmlega þrjátíu þúsund krónur í bakpoka sinn en í Grafarvogi voru afskipti höfð af manni sem hafði reynt að komast út úr matvöruverslun með fulla körfu af vörum úr versluninni. Þá hafði lögreglan afskipti af konu sem var grunuð um þjófnað úr apóteki en hún hafði einnig reynt að komast yfir spritt og sótthreinsivökva, í því skyni að drekka það, segir í dagbók lögreglu.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira