Innlent

Hækka þurfi við­búnaðar­stig á landsvísu og herða sam­komu­tak­markanir

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Landspítalans.
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Landspítalans. Vísir/Vilhelm

Forstjóri Landspítalans telur rétt að hækka á viðbúnaðarstig almannavarna á landsvísu vegna sívaxandi álags á heilbrigðiskerfið. Kórónuveirusmituðum hafi fjölgað ískyggilega og að herða þurfi samkomutakmarkanir enn frekar til að sporna við frekari innlögnum.

Tuttugu þúsund manns, eða um 5,5 prósent þjóðarinnar, eru nú í einangrun eða sóttkví, eftir að eitt þúsund fjörutíu og fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrjátíu og átta eru inniliggjandi á Landspítala, þar af átta á gjörgæslu og sex þeirra í öndunarvél. Forstjóri Landspítalans segir stöðuna aldrei hafa verið þyngri en nú.

„Þeim hefur fjölgað ískyggilega covidsjúklingunum hjá okkur og miðað við nýjustu spá hvað varðar framhald þessa faraldurs að þá er ekkert sem bendir til þess að það muni draga úr,” segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Landspítalans.

Samkvæmt svartsýnustu spám Landspítala gætu allt að 90 sjúklingar lagst inn fyrir 20. janúar. Líkleg spá er 72 sjúklingar en bjartsýnustu spár gera ráð fyrir 57 sjúklingum. Guðlaug Rakel segir að sjúkrahúsið geti ekki ráðið við svartsýnustu spár.

„Maður vill ekki hugsa þá hugsun til enda og vonandi verðum við í líklegri spá eða bjartsýnni spá. Við erum að gera ráð fyrir 0,6 til 0,7 prósent innlagnahlutfalli og á meðan við erum með yfir þúsund smit á dag þá segir það sig sjálft hvernig þróunin verður.”

Landspítalinn er nú á neyðarstigi, sem er hæsta viðbúnaðarstig, er ákveðið af viðbragðsstjórn spítalans hverju sinni. Guðlaug Rakel telur hins vegar að ganga þurfi lengra, jafnvel þurfi að hækka á viðbúnaðarstig almannavarna á landsvísu vegna stöðunnar, en það er núna á hættustigi.

„Ég held að það þurfi að skoða almannavarnastigið yfir höfuð, hvort það sé komið að þeim tímapunkti að við þurfum að færa almannavarnir um stig.”

Þá þurfi að herða samkomutakmarkanir enn frekar til að draga úr álagi á heilbrigðiskerfið allt.

„Það þarf að hægja á samfélaginu til að draga úr smitum og við vitum hvernig það gengur fyrir sig. Ég held að það sé okkar eina leið.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×