Lífið

Riðu á hestum um miðbæinn á hundrað ára afmæli Fáks

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Dagur B. Eggertsson, Hjörtur Bergstað, Guðni Halldórrson og Sigurbjörn Bárðarson.
Dagur B. Eggertsson, Hjörtur Bergstað, Guðni Halldórrson og Sigurbjörn Bárðarson. Gígja D. Einarsdóttir

Hestamannafélagið Fákur varð hundrað ára í gær. Í tilefni af afmælinu stóðu Fákur og Landssamband hestamannafélaga fyrir reið um miðbæinn um helgina.

Kom þar saman fríður flokkur hesta og manna en í fylkingarbrjósti riðu Dagur B. Eggertsson borgarstjóri á stóðhestinum Eldi frá Torfunesi, Hjörtur Bergstað formaður Fáks, Guðni Halldórrson formaður LH og Sigurbjörn Bárðarson stórknapi og landsliðsþjálfari. 

Riðið var frá BSÍ, upp að Hallgrímskirkju þar sem gerð var stutt áning og nokkur lög tekin, ásamt því sem borgarstjóri og formaður LH ávörpuðu hópinn. Þaðan var riðið sem leið lá, niður Skólavörðustíginn, Bankastrætið, um Austurstræti og yfir Austurvöll og endað á því að láta spretta úr spori eftir Tjarnargötunni og í gegn um Hljómskálagarðinn.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar vel valdar myndir sem Gígja D. Einarsdóttir tók við þetta tilefni.

Gígja D. Einarsdóttir
Gígja D. Einarsdóttir
Gígja D. Einarsdóttir
Gígja D. Einarsdóttir
Gígja D. Einarsdóttir
Gígja D. Einarsdóttir
Gígja D. Einarsdóttir
Gígja D. Einarsdóttir
Gígja D. Einarsdóttir
Gígja D. Einarsdóttir
Gígja D. Einarsdóttir
Gígja D. Einarsdóttir
Gígja D. Einarsdóttir
Gígja D. Einarsdóttir
Gígja D. Einarsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.