„Ef Guð er dauður er allt leyfilegt“ sagði Dostojevskí Árni Már Jensson skrifar 13. maí 2022 16:51 Allmörg ár eru liðin síðan núverandi borgarstjóri Dagur B. Eggertsson ákvað að gefa lóð í eigu Reykjavíkurborgar að Suðurlandsbraut 76 undir islamska mosku. Staðsetning lóðarinnar er svo áberandi að hún gæti talist til eins af borgarhliðum Reykjavíkur. Opinber réttlæting hans fyrir lóðargjöfinni var annars vegar grundvölluð á ákvæði 63. gr. Stjórnarskrár Íslands um trúfrelsi og hins vegar á lögum um Kristnisjóð. Skoðum þetta nánar Í 63. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944, segir: Allir eiga rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Þó má ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða allsherjarreglu. Spyrja má hvort borgarstjóri hafi kannað hvort hugmyndafræði islam gangi gegn góðu siðferði í stjórnarskrá okkar þegar horft er til eftirfarandi: Sharia laga, jafnrétti kynjanna, barnaverndar og þá sérstaklega réttinda stúlkna til jafns við drengja, en einnig réttinda ómálga drengja til að vera ekki umskornir? Eða þegar horft er til réttinda samkynhneigðra og hinsegin fólks? Þegar horft er til dýraverndar? Ekki er heldur úr vegi að spyrja borgastjóra hvort hann hafi leitt hugann að því að frelsi til tjáningar er hornsteinn vestræns lýðræðis og þar með trúfrelsis. Telur borgarstjóri hugmyndafræði islam ganga gegn þessum hornsteini vestræns lýðræðis, tjáningarfrelsinu? Á grundvelli laga um kristnisjóð þótti borgarstjóra ekki tiltöku mál að gefa lóðina að Suðurlandsbraut 76 en láta Hjálpræðisherinn á sama tíma greiða yfir 50milljónir fyrir lóðina við hliðina. Lög um kristnisjóð o.fl. “5.gr. Sveitarfélögum kaupstaða og kauptúna er skylt að leggja til ókeypis lóðir undir kirkjur og undanskilja þær gatnagerðagjaldi......” Wikipedia: „Kirkja eða guðshús er samkomustaður kristinna manna fyrir trúarlegar athafnir.” Islömsk moska er ekki kirkja. Hún er tilbeiðsluhús hugmyndafræði sem gengur beinlínis gegn kristinni trú, gildum og lýðræði. Er það hús Guðs? Svari hver fyrir sig. Með þessum gjörningi braut borgarstjóri jafnræðisregluna. Hann gekk gegn kristilegri mannúð Hjálpræðishersins með því að hygla félagi undir hugmyndafræði islam. Var það rétt af honum? Svar mitt er Nei. Hjálpræðisherinn er kirkja og kristilegt trúfélag í verki. Herinn hefur sinnt líknastörfum í Reykjavik síðan 1895 og með störfum sínum sparað Reykjavíkurborg gríðarlega fjármuni á löngum tíma, svo ekki sé minnst á hið mikilvægara; auðsýnt kristilegan kærleik, líkn og umönnun þeirra sem fáir styðja, heimilislausra og efnalítilla. Og já, kærleiksstarf Hjálpræðishersins er í dag einnig ein meginstoðin í að fæða og klæða fólk á flótta undan oki illskunnar hverju nafni sem hún nefnist. Gullna reglan svokallaða er ein megin undirstaða kristinnar siðfræði. Hana er að finna í ræðu Jesú Krists í Matteusarguðspjalli sem kölluð er fjallræðan. Gullna reglan hljóðar svo með orðum Jesú: Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Samkvæmt þessari reglu starfar Hjálpræðisherinn. Þá má einnig spyrja borgarstjóra hvort hann hafi ekki áttað sig á að í islömskum ríkjum er yfirleitt einræði, fáræði og auðræði í stað lýðræðis? Hvernig skyldi standa á því að upplýstir íbúar þessara ríkja eigi sér fáa drauma heitari en að losna undan okinu heima fyrir án þess þó endilega að gera sér grein fyrir eiginlegum orsökum þess? Stríður flóttamannastraumur til ríkja sem byggja samfélög sín á kristnum gildum er nefnilega ekki tilviljun. Það má einnig benda borgastjóra á að miðausturlönd voru einu sinni vagga kristinnar siðmenningar. Hver er staða þessa heimshluta í dag? Vefjist arfleifð siðmenningar okkar fyrir borgarstjóra má vekja athygli á meðfylgjandi mynd með þjóðfánum þeirra ríkja sem til fyrirmyndar teljast í lífsgæðum, jöfnuði, frelsi og mannréttindum. Hvað er sammerkt í þjóðfánum þeirra? Það er Krossinn. Og já, þau grundvalla menningu sína á þeim gildum sem Guð boðaði mannkyni með komu Messíasar – komu Jesú Krists. Hvarflaði það ekki að borgarstjóra að virða lýðræðið og spyrja borgarbúa og landsmenn álits á því hvort þeir samþykktu að bygging islamskrar mosku rísi við borgarmörk höfuðborgar þjóðar sem hefur verið Kristin frá landnámi og heiðri þá arfleifð með krossi í þjóðfánanum? Fannst honum slíkt ekki viðeigandi? Undirrituðum misbauð þessi stjórnsýsla svo að hann leitaði til Gallup um gerð umfangsmikillar skoðanakönnunar um hug borgarbúa til lóðagjafarinnar og staðsetningarinnar við borgarhliðið. Í hnotskurn var niðurstaðan afgerandi; Tvöfallt fleiri íbúar sem tóku afstöðu vildu ekki að moskan verði staðsett þarna heldur en þeir sem fylgjandi voru. Ámóta afstaða kom fram í spurningunni um íbúakosningu. Dagur B Eggertsson og ráðandi meirihluti í Reykjavík. Þið eruð kjörin til ábyrgðastarfa, en eruð fyrst og fremst fólk. Ykkur varð á í messunni eins og stundum gerist hjá öðru breysku fólki. Þá er iðrun mannbætandi sálarnæring með ósk um fyrirgefningu og yfirbót í kjölfarið. Þetta er hluti kristilegrar siðmenningar okkar. Þið getið valið um að vera réttlát eða ranglát. En hafið hugfast að sjálfsvitundina og Guð flýið þið ekki. Á sama tíma og þið farið með völd í umboði meirihluta borgarbúa eru þið einnig litlar breyskar manneskjur sem eldist og þurfið að lokum að svara fyrir gjörðir ykkar gagnvart eigin vitund og Guði. Samspil vitundar, tilfinninga og samvisku er nefnilega flókið gangverk hugsandi fólks og verður dómgreind ekki aðskilin annarri greind. Sam-viskan er nefnilega sameiginlega viska Guðs og manns, nokkuð sem myrkrið reynir ítrekað að hafa áhrif á. Í þessu tiltekna máli hafið þið einfaldlega brugðist ljósinu. Embætti og tímabundin sköll þröngs hóps viðhlæjenda kunna að ylja hégómagirnd til skamms, en síðan er það tíminn sem sverfur sál ykkar og markar til góðs eða ills. Sé það borgarstjóra feimnismál að horfast í augu við staðreyndir sögunnar og standa vörð um siðmenningu okkar, Guð og góð gildi er það borgarstjóri sem ég kýs burt. Sé það forgangsatriði að upphefja hégóma og hugleysi umfram kristilega arfleifð og menningu er það borgastjóri og meirihluti sem ég kýs burt úr stjórnmálum – og það sem lengst. Dagur B. Eggertsson. „Hliðvörður islam“ er e.t.v. ekki sú arfleifð sem þú, sem borgarstjóri, óskaðir þér í upphafi stjórnmálaferilsins en kann að verða yfirskrift þín er fram líða stundir. Þetta mál er nefnilega stærra en braggablúsinn í Nauthólsvík, Reykjavíkurflugvöllur í Vatnsmýri og Borgarlínan til samans. Þetta er stærra en þú, ferill þinn og stjórnmálaflokkur í heild. Mun stærra. Þetta er mál sem skekur trú þjóðar, sögu, siðmenningu og gildi. Þetta er aðför myrkursins að ljósinu. Dostovejski var gáfaður rithöfundur enda skrifaði hann „Ef“ fyrir framan spurninguna í upphafi greinarinnar. Guð er nefnilega lifandi. Höfundur er áhugamaður um betra líf, þjóðfélag og kristin gildi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Síðasti naglinn í líkkistuna? Ragnheiður Stephensen Skoðun Mýtan um óumflýjanlegan rússneskan sigur Erlingur Erlingsson Skoðun Börn í vanda Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Opið bréf til Jóns Björns Hákonarsonar Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir,Guðrún Ásta Friðbertsdóttir,Karen Ragnarsdóttir,Lísa Lotta Björnsdóttir Skoðun Magnús Karl verður rektor fyrir okkur öll Guðjón Reykdal Óskarsson Skoðun Af töppum Einar Bárðarson Skoðun Hinir mannlegu englar Landspítalans Sveinn Hjörtur Guðfinnsson Skoðun Mannauður er lykilfjárfesting sveitarfélaga Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun Við höfum tækifæri, sjálfstæðismenn! Kristín Linda Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Karlveldið hefur enn ansi mörg andlit Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Stjórnarskráin Jörgen Ingimar Hansson skrifar Skoðun „Þetta er atriðið þar sem þið takið til fótanna…” Marta Wieczorek skrifar Skoðun Barátta hafnarverkamanna: Leiðin að viðurkenningu sem samningsaðili Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Börn í vanda Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Björns Hákonarsonar Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir,Guðrún Ásta Friðbertsdóttir,Karen Ragnarsdóttir,Lísa Lotta Björnsdóttir skrifar Skoðun Mýtan um óumflýjanlegan rússneskan sigur Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Hinir mannlegu englar Landspítalans Sveinn Hjörtur Guðfinnsson skrifar Skoðun Magnús Karl verður rektor fyrir okkur öll Guðjón Reykdal Óskarsson skrifar Skoðun Leiðtoga- og stjórnendavandi: Af hverju meðalmennska í stjórnun skaðar skipulagsheildir og hvernig á að bæta úr? Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um akademískt frelsi Björn Þorsteinsson skrifar Skoðun Samræmd próf jafna stöðuna Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun VR og við sem erum miðaldra Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áslaug Arna - minn formaður Katrín Atladóttir skrifar Skoðun Mannauður er lykilfjárfesting sveitarfélaga Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Vandi Háskóla Íslands og lausnir – II – ákvörðun launa Pétur Henry Petersen skrifar Skoðun Djarfar áherslur – sterkara VR Þorsteinn Skúli Sveinsson skrifar Skoðun Við höfum tækifæri, sjálfstæðismenn! Kristín Linda Jónsdóttir skrifar Skoðun Gervigreind í læknisfræði: Nýjustu tækniframfarirnar sem gætu bjargað mannslífum Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Síðasti naglinn í líkkistuna? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Af töppum Einar Bárðarson skrifar Skoðun Plasttappamálið og skrækjandi þingmenn Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Áfastur plasttappi lýðræðisins? Ingunn Björnsdóttir skrifar Skoðun Stétt með stétt? Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Áfram kennarar! Kristbjörg Þórisdóttir,Bragi Reynir Sæmundsson skrifar Skoðun Landshornalýðurinn á Hálsunum Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Minni kvenna - lofræða gervigreindar til hinnar íslensku konu Steinar Birgisson skrifar Skoðun Forvarnarsamtök óska skýringa á seinagangi Árni Einarsson skrifar Skoðun Hugleiðing á konudag Sigurður Ingi Arnars Unuson skrifar Skoðun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir til formanns Sjálfstæðisflokksins -Kraftur nýrra tíma Svanur Guðmundsson skrifar Sjá meira
Opið bréf til Jóns Björns Hákonarsonar Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir,Guðrún Ásta Friðbertsdóttir,Karen Ragnarsdóttir,Lísa Lotta Björnsdóttir Skoðun
Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Barátta hafnarverkamanna: Leiðin að viðurkenningu sem samningsaðili Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Opið bréf til Jóns Björns Hákonarsonar Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir,Guðrún Ásta Friðbertsdóttir,Karen Ragnarsdóttir,Lísa Lotta Björnsdóttir skrifar
Skoðun Leiðtoga- og stjórnendavandi: Af hverju meðalmennska í stjórnun skaðar skipulagsheildir og hvernig á að bæta úr? Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Gervigreind í læknisfræði: Nýjustu tækniframfarirnar sem gætu bjargað mannslífum Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir til formanns Sjálfstæðisflokksins -Kraftur nýrra tíma Svanur Guðmundsson skrifar
Opið bréf til Jóns Björns Hákonarsonar Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir,Guðrún Ásta Friðbertsdóttir,Karen Ragnarsdóttir,Lísa Lotta Björnsdóttir Skoðun
Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun