Innlent

Stolna styttan komin aftur á sinn stað eftir mikið ferða­lag

Eiður Þór Árnason og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa
Ekki stendur til að tryggja styttuna betur eftir þjófnaðinn. 
Ekki stendur til að tryggja styttuna betur eftir þjófnaðinn. 

Bronsstyttan af Guðríði Þorbjarnardóttur var sett aftur á sinn stall við hátíðlega athöfn á Laugarbrekku í Snæfellsbæ í dag. Styttunni var stolið í vor en listakonurnar Bryndís Björnsdóttir og Steinunn Gunnlaugsdóttir komu henni fyrir í eldflaug á skotpalli fyrir utan Nýlistasafnið í Reykjavík og sögðu verkið vera rasískt.

Landsréttur veitti lögreglunni á Vesturlandi heimild til að fjarlægja styttuna úr eldflauginni í síðustu viku og keyrði bæjarstjóri Snæfellsbæjar með styttuna vestur. Á athöfninni sem fram fór í dag hélt framkvæmdastjóri svæðisgarðs Snæfellsness erindi og sagði frá sögu Guðríðar og ferðum hennar um heiminn og fögnuðu gestir því að styttan væri komin aftur heim.

Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ sagði í samtali við fréttastofu í gær að gjörningurinn hafi vakið meiri áhuga á sögu Guðríðar. Bronsstyttan af Guðríði Þorbjarnardóttur og syni hennar er eftir Ásmund Sveinsson og er frá árinu 1939.

„Við þekkjum það öll að í gegnum það sem við lærðum í Íslendingasögunum þá var alltaf verið að tala um karlana og þeirra afrek en það fór minna fyrir afrekum kvenna. Saga Guðríðar er alveg einstök; að það skyldi vera skrifað um hana á sínum tíma og hennar afrek að fara yfir átta heimhöf, labba síðan þegar hún var orðin eldri niður til Rómar og hitta páfann og svo framvegis og framvegis. Okkur finnst svo mikilvægt að gera sögu kvenna skil og það er það sem vakir fyrir okkur. Konur höfðu að sjálfsögðu mikil áhrif á framvindu sögunnar, alveg eins og karlarnir,“ sagði Kristinn.

Erfitt að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig

Skemmdir voru unnar á járnfestingum styttunnar en ekki styttunni sjálfri, að sögn bæjarstjórans. Ekki stendur til að tryggja styttuna betur. 

„Ég held að það sé alveg sama hvað við myndum gera. Ef það er vilji fyrir því að taka hana niður og skemma eins og gert var síðast þá er rosalega fátt sem við getum gert til að koma í veg fyrir það. Styttan er sett á járnfestingar sem eru á stalli og ef þú notar til þess rafmagnsverkfæri þá er mjög fátt sem við getum gert til að koma í veg fyrir að menn geri þetta aftur. Ég ætla nú að vona að fólk sleppi því bara,“ sagði Kristinn í samtali við fréttastofu í gær.


Tengdar fréttir

Styttan aftur á stall við hátíðlega athöfn á morgun

Styttan af Guðríði Þorbjarnardóttur verður sett aftur á sinn stall við hátíðlega athöfn á morgun. Henni var stolið í vor og komið fyrir í öðru listaverki. Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ segir gjörninginn hafa vakið meiri áhuga á sögu Guðríðar.

Skora á lög­regluna að skila lista­verkinu um­deilda

Bryndís Björnsdóttir og Steinunn Gunnlaugsdóttir, listakonurnar sem gerðu listaverkið umdeilda Farangursheimild, hafa skorað á lögregluna að skila verkinu á þann stað þar sem það var afhjúpað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×