Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild karla en keppni í deildinni hefst með fjórum leikjum á morgun, fimmtudaginn 8. september.
Íþróttadeild spáir ÍBV 3. sæti Olís-deildar karla í vetur og Eyjamenn endi á sama stað í deildakeppninni og í fyrra.
ÍBV fylgdi kunnuglegu handriti á síðasta tímabili. Liðið var nokkuð rólegt í deildakeppninni en var samt bara þremur stigum frá Val og Haukum. Í úrslitakeppninni stigu Eyjamenn svo á bensíngjöfina og slógu Stjörnumenn og Hauka út á leið sinni í úrslitaeinvígið. Í fyrsta leiknum þar steinlá ÍBV fyrir Val en síðustu þrír leikirnir voru mjög jafnir. Valsmenn höfðu á endanum betur, 3-1, og Eyjamenn urðu því að gera sér silfrið að góðu.
Ekki hafa orðið miklar breytingar á leikmannahópi ÍBV milli tímabila og þá er Erlingur Richardsson að hefja sitt fjórða tímabil með liðið. Eyjamenn fengu Ísak Rafnsson frá FH og ungan Færeying, Janus Dam Djurhuus, en misstu Friðrik Hólm Jónsson, Ásgeir Snæ Vignisson og Gauta Gunnarsson. Stærsta vandamál síðustu ára var hins vegar ekki leyst.
Ekkert lið var með verri hlutfallsmarkvörslu í Olís-deildinni á síðasta tímabili og ÍBV. Petar Jokanovic hefur varla varið skot frá því í bikarúrslitaleiknum 2020 og af einhverjum ástæðum er hann enn á launaskrá hjá ÍBV. Eyjamenn eru góðir en með topp markvörslu væru þeir óárennilegir.
ÍBV hefur verið í fremstu röð í íslenskum handbolta undanfarin áratug eða svo og það breytist ekkert í vetur. Ef lykilmenn verða heilir þegar á reynir og markvarslan verður þolanleg geta Eyjamenn farið eins langt og þá langar.
Gengi ÍBV undanfarinn áratug
- 2021-22: 3. sæti+úrslit
- 2020-21: 7. sæti+undanúrslit
- 2019-20: 7. sæti+bikarmeistari
- 2018-19: 4. sæti+undanúrslit
- 2017-18: Deildarmeistari+Íslandsmeistari+bikarmeistari
- 2016-17: 2. sæti+átta liða úrslit
- 2015-16: 4. sæti+undanúrslit
- 2014-15: 7. sæti+átta liða úrslit+bikarmeistari
- 2013-14: 2. sæti+Íslandsmeistari
- 2012-13: B-deild (1. sæti)
Lykilmaðurinn

Rúnar Kárason sneri aftur á klakann í fyrra eftir þrettán ár í atvinnumennsku. Hann yljaði stuðningsmönnum ÍBV og öðrum handboltaáhugamönnum með sínum þrumuskotum og var með rúmlega fimm mörk og fjórar stoðsendingar að meðaltali í leik. Rúnar var einnig í stóru hlutverki í vörn ÍBV og spilaði jafnan í miðju hennar. Það ætti að breytast í vetur með innkomu Ísaks og lappirnar á Rúnari ættu því að vera léttari þegar fer að vora.
Félagskiptamarkaðurinn
Komnir:
- Ísak Rafnsson frá FH
- Janus Dam Djurhuus frá H71 (Færeyjum)
Farnir:
- Friðrik Hólm Jónsson til ÍR
- Ásgeir Snær Vignisson til Helsingborg (Svíþjóð)
- Gauti Gunnarsson til KA
Markaðseinkunn (A-C): B
Fortíðarhetja sem gæti nýst í vetur
Veikleiki ÍBV er augljós; markvarslan. Það væri því ekki amalegt fyrir Eyjamenn að geta hóað í sinn besta mann; Sigmar Þröst Óskarsson. Hann var einn fremsti markvörður landsins á sínum tíma og varð bikarmeistari með þremur liðum: Stjörnunni, KA og ÍBV. Sigmar ku vera í toppformi og gæti eflaust staðið á milli stanganna án þess að blása of mikið úr nös.