Skoðun

Þrí­eykið ætti að biðja fólk um að fara út!

Jón Jósafat Björnsson skrifar

Eftir 200 fundi Þríeykisins og hundruð milljarða úr ríkissjóði tókst yfirvöldum að milda áhrif kórónuveirufaraldursins á landsmenn meira en flestum öðrum stjórnvöldum í öðrum löndum. Skilaboðið voru skýr „Verum heima og forðumst fólk!“. Það er stundum sagt að það taki 21 dag að búa til nýja venju og eftir 21 mánuð náðu skilaboðin rækilega í gegn. Pallaefni og heitir pottar seldust upp, nýir sófar í stofuna litu dagsins ljós, fleiri sjónvörp bættust við og tengingar við helstu efnisveitur heimsins komu inn á íslensk heimili. Hreiðrið var fullkomnað.

Í gang fór svo einhvern stærsta félagsfræðitilraun samtímans þar sem fólk var einangrað mánuðum saman með snjalltæki í höndunum, hvert í sínu horni að horfa á sjónvarpið án mikilla raunverulegra samskipta við annað fólk. Nú þegar rykið sest blasa við ýmsar áskoranir og ef við föngum umræðuna í dag eru hugtök eins og; einelti, einmannaleiki, skólaforðun, skortur á umburðarlyndi og samkennd, viðkvæmni, rasismi, stress og stuttur þráður í fólki, eitthvað sem kemur sífellt fyrir í umræðunni. Ekkert af þessu ætti að koma á óvart. Þetta eru einfaldlega afleiðingar af aðgerðum sem sennilega voru nauðsynlegar til að vernda ,,stærri“ hagsmuni. Ég held að engum hafi dottið í hug að stefna stjórnvalda um að draga úr nánd og nærveru myndi ekki hafa afleiðingar.

Á veggnum á skrifstofunni minni stendur „Mikilvægasta verkefni þitt er alltaf í framtíðinni en aldrei í fortíðinni“. Við skulum ekki saga sag eins og Dale Carnegie sagði. Mestu máli skiptir hvað við gerum næst. Sagan hefur kennt okkur að með því að segja hlutina nógu oft og þegar allir leggjast á eitt er hægt að koma skilaboðum í gegn. Nú skora ég á Þríeykið, forseta Íslands, forsætisráðherra og almannavarnir að halda 200 upplýsingafundi til að hvetja Íslendinga til að fara út, hitta fólk og auka nánd og nærveru. Sambönd verða betri með meiri samskiptum. Eins og það er hægt að tala hluti niður þá er hægt að tala þá upp.

Frumkvæði verður ekki til að sjálfu sér, maður sýnir frumkvæði, samtöl gerast ekki, maður á samtöl. Samskipti gerast ekki, maður á í samskiptum. Við þurfum athafnir og orð eru til alls fyrst.

Höfundur er framkvæmdastjóri Dale Carnegie.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×