Fluttur á slysadeild eftir gamnislag Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 12. mars 2023 07:37 Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm Sex gista fangageymslur eftir erilsama nótt lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Á meðal þeirra er aðili sem grunaður er um að hafa verið að stela símum á skemmtistað í miðbænum.
Þá var tilkynnt um mann sem hafði læst sig inni á baði á veitahúsi í miðbænum. Lögregla fór á vettvang og vísaði manninum út. Það sama var uppi á teningnum á hóteli í miðborginni en þar hafði maður einnig læst sig inni á baðherbergi og var vísað út af lögreglu. Tilkynnt var um mann að stela símum á skemmtistað í miðbænum. Lögregla fór á vettvang og var hann handtekinn grunaður um þjófnað. Gistir hann nú fangageymslu lögreglu í þágu rannsóknar. Einn var fluttur á slysadeild eftir að hafa verið í „gamnislag“ við félaga sinn og hrasað fram fyrir sig, líkt og það er orðað í tilkynningu lögreglu. Í Hafnarfirði var tilkynnt um mann sem var haldið niðri af dyraverði á skemmtistað. Hann lét öllum illum látum þegar lögreglu bar að garði og var handtekinn og fluttur á lögreglustöð . Lögreglu barst tilkynning um eld inni á baðherbergi á stoppistöð strætó. Þar hafði verið kveikt í sápuskammtara og voru minniháttar skemmdir. Meðal annarra verkefna sem lögregla sinnti var maður sem neitaði að yfirgefa slysadeild, innbrot í heimahús í miðbænum, kvartanir vegna hávaða og þjófnaður í verslun.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira