Arnór hefur leikið sinn síðasta leik í Svíþjóð í bili Aron Guðmundsson skrifar 3. júní 2023 21:45 Arnór Sigurðsson skoraði tvívegis í dag. Norrköping Arnór Sigurðsson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir IFK Norrköping, í það minnsta í bili, en gult spjald sem hann fékk í tapi á heimavelli gegn Brommapojkarna í dag sér til þess að hann verður í leikbanni í síðasta leik Norrköping fyrir sumarfrí í sænsku deildinni.
Íslendingurinn knái hefur verið á láni hjá IFK Norkköping frá rússneska liðinu CSKA Moskvu en Arnór hefur nýtt sér úrræði FIFA sem heimilar erlendum leikmönnum á mála hjá rússenskum og úkraínskum félagsliðum að gera hlé á samningi sínum við félögin. Er gripið til þessa úrræðis sökum innrásar Rússa í Úkraínu. Lánssamningur Arnórs hjá IFK Norrköping rennur út undir lok mánaðar en í dag átti aðeins að vera hans síðasti heimaleikur fyrir félagið. Hins vegar veldur gult spjald, sem Arnór fékk á 24. mínútu í leik dagsins, því að hann verður í leikbanni í næsta leik IFK Norrköping gegn Djurgarden sem átti að verða lokaleikur Arnórs fyrir félagið. Hlé verður gert á sænsku deildinni í tæpan mánuð og hefst hún aftur með leikjum í byrjun júlí. #ifknorrköping pic.twitter.com/NOTmzEmF7H— IFK Norrköping (@ifknorrkoping) June 3, 2023 Óljóst er á þessari stundu hvað tekur við hjá Arnóri en ekki hefur vantað upp á áhuga frá öðrum félögum á kröftum hans. Arnór hefur verið einn besti leikmaður sænsku deildarinnar undanfarna mánuði og vill hann nú sanna sig á nýjan leik í stærri deildum Evrópu.
Sænski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fleiri fréttir Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Sjá meira