Brown kom fyrst inn í þjálfarateymi landsliðsins 1986, þegar Alex Ferguson sem þá var þjálfari Aberdeen og landsliðsins, hringdi í hann og bað hann að ganga til liðs við þjálfarateymið. Brown var einnig aðstoðarþjálfari Andy Roxburgh hjá landsliðinu og saman komu þeir liðinu í lokakeppni HM 1990 og EM 1992.
Ferguson og Brown var vel til vina en vinskapur þeirra náði allt aftur til 6. áratugarins, þegar þeir spiluðu saman í skólabolta, þar sem Brown var fyrirliði.
„Þegar mér var sýndur sá heiður að stýra Skotlandi í lokakeppni HM í Mexíkó þá var einn maður sem ég varð að taka með mér, vegna mannkosta hans og þekkingu á fótbolta, það var Craig.“ - sagði Ferguson í yfirlýsingu í dag og bætti við að Brown hefði verið „algjörlega dásamlegur maður.“
Síðasti þjálfarinn til að koma Skotlandi á HM
Brown tók svo við landsliðinu sem aðalþjálfari 1993 og kom því í lokakeppni Evrópumótsins 1996 og í lokakeppni heimsmeistaramótsins 1998, en síðan þá hefur enginn þjálfari liðsins náð að koma liðinu aftur í lokakeppni HM.
Brown lét af störfum hjá landsliðinu 2001 eftir að hafa mistekist að koma liðinu í lokakeppni HM. Hann átti eftir að þjálfara Preston, Motherwell og Aberdeen eftir það en settist í helgan stein að mestu 2013 en sinnti áfram stjórnarstörfum.
Skotar minnast Brown með hlýju á samfélagsmiðlum, enda sannkölluð goðsögn í skoskum fótbolta sem kvaddi í dag.