Innlent

Veður­­guðirnir aldrei með slökkvi­liðs­­mönnum í liði

Bjarki Sigurðsson skrifar
Einar Sveinn Jónsson er slökkviliðsstjórinn í Grindavík.
Einar Sveinn Jónsson er slökkviliðsstjórinn í Grindavík. Vísir/Vilhelm

Slökkviliðsstjórinn í Grindavík segir að mögulega þurfi að grípa til róttækari aðgerða svo hindra megi frekari gróðurelda í kringum eldstöðina við Litla Hrút. Veðurguðirnir séu ekki með slökkviliðinu í liði, hvernig sem viðri. 

Til að slökkva í gróðureldunum sem eru nú við eldstöðvarnar við Litla-Hrút eru vatnsbambar fluttir í átt að eldlínunni. Þyrla Landhelgisgæslunnar flýgur með hana í reipi.

Vatnsbambarnir eru fluttir einn og einn í átt að staðnum eldarnir geisa og geta slökkviliðsmenn nýtt sér vatnið til að slökkva eldana.

Þetta er ekki eina aðferðin sem slökkviliðsmenn hafa nýtt sér starfið hefur verið mjög fjölbreytt frá því hófst að gjósa við Litla Hrút fyrir tveimur vikum síðan.

Gróðureldarnir hafa sótt í sig veðrið upp á síðkastið verið að aukast og þarf slökkviliði að fara að grípa til róttækari aðgerða.

„Ég hugsa að við endum á því að fara með stórvirkar vélar og rjúfa mosaröndina. Þannig látum bara brenna af henni. Ég hugsa að það sé það næsta sem við þurfum að gera,“ segir Einar.

Til að veðrið hafi jákvæð áhrif á gróðureldana þarf alvöru rigningu að mati Einars. Nánast allt annað hefur neikvæð áhrif á störf slökkviliðsmanna.

„Í síðustu viku vorum við með töluverðan vind sem var okkur erfiður því þá er glóðin að aukast. Í gær lentum við í því að það var enginn vindur og þá kom gasmengun upp þannig gæsluvélin gat ekki farið niður, það kom svo mikil mengun. Þannig annað hvort er of mikill vindur eða of lítill vindur. Yfirleitt rignir of mikið, nú rignir ekki neitt. Þannig þetta eru alls konar áskoranir sem við erum að kljást við,“ segir Einar. 


Tengdar fréttir

Hálft Reykjanesið geti farið undir eld

Slökkviliðsbíla má nú sjá við gosstöðvarnar þar sem reynt er að halda aftur af útbreiðslu gróðurelda sem loga vegna glóandi hrauns. Slökkviliðsstjóri segir að ef ekkert verði að gert sé hætta á því að þeir nái gríðarlegri dreifingu á svæðinu. Lokað var fyrir aðgengi almennings að gosstöðvunum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×