Skoðun

Ný og nauðsynleg nálgun í þjónustu við eldra fólk

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar

Heilbrigðisþjónustan og -málin eru okkar stærsti og mikilvægasti málaflokkur. Ein stærsta áskorun samfélagsins á sviði heilbrigðismála er öldrun þjóðarinnar og ég held við séum öll sammála um að hlúa vel að eldra fólkinu okkar sem lagði grunninn að því góða samfélagi sem við lifum í. Aldurssamsetning breytist hratt. Eldra fólk lifir lengur en áður og er virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Þetta þekkjum við og þessi staðreynd er auðvitað ekkert nema frábær. En þjónusta við aldrað fólk hefur ekki náð að halda í við þennan hraða þó ekki sé hægt að segja annað en að margt hafi þróast í rétta átt á síðustu árum.

Margt gott þegar verið gert

Á síðasta kjörtímabili steig Svandís Svavarsdóttir, þáverandi heilbrigðisráðherra, mörg stór skref til að bæta þjónustu við eldra fólk. Til dæmis var gerð gangskör í uppbyggingu heilsueflandi móttöku á heilsugæslustöðum og þær viðbætur til þess fallnar að bæta þjónustu við aldraða. Svandís lagði mikla áherslu á að samþætta þjónustu sveitarfélaga og heilbrigðiskerfis við eldra fólk svo það geti búið heima eins lengi og kostur er og draga þannig úr þörf fyrir fjölgun hjúkrunarrýma – sem er dýrasta úrræðið. Það er því virkilega ánægjulegt að sjá núverandi heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson og félagsmálaráðherra, Guðmund Inga Guðbrandsson taka höndum saman í verkefninu Gott að eldast og halda með því áfram á þessari vegferð.

Það á að vera gott að eldast á Íslandi

Megin markmið Gott að eldast er að gera heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk. Meginþungi aðgerðanna liggur í þróunarverkefnum sem ganga út á að finna góðar lausnir sem samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk og flétta saman þá þætti sem ríkið sér um og þá sem sveitarfélögin sjá um. Ráðist verður í aðgerðir sem snúast um heilbrigða öldrun með alhliða heilsueflingu, sveigjanlega þjónustu og stórbættan aðgang að ráðgjöf og upplýsingum um þjónustu fyrir eldra fólk. Markmiðið er að tryggja virkara og heilsuhraustara eldra fólki þjónustu sem ýtir undir að sem flest séu þátttakendur í samfélaginu sem lengst. Alþingi samþykkti aðgerðaáætlun þessa verkefnis í vor og í fjárlögum er gert ráð fyrir hátt í 700 milljónum króna í innleiðingu og framkvæmd hennar. Takist vel til, verður sannarlega gott að eldast á Íslandi.

Höfundur er þingmaður Vinstri grænna og formaður velferðarnefndar.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×