Sérfræðingur Sky spáir óvæntu tapi Arsenal gegn Bournemouth Siggeir Ævarsson skrifar 30. september 2023 11:01 Arsenalmenn eru taplausir á tímabilinu. Fá þeir óvænt tap í fangið í dag? Vísir/Getty Lewis Jones, tippsérfræðingur Sky Sports, segir að það sé ekki óvitlaust að setja pening á að Arsenal tapi sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar liðið sækir Bournemouth heim í dag.
Arsenal hefur farið ágætlega af stað stað á tímabilinu en liðið er taplaust eftir sex leiki, með fjóra sigra og tvö jafntefli. Bournemouth er aftur á móti sigurlaust í 17. sæti, með þrjú jafntefli í sarpnum. Jones er búinn að rýna í tölfræðina og bendir á að í síðustu tólf útileikjum Arsenal gegn liðum í neðri hluta deildarinnar hafi aðeins 1,9 mörk verið skoruð að meðaltali. Þá bendir hann á að Andoni Iraola, stjóri Bournemouth, sé sérfræðingur í að stífla sóknir stórra liða og reiknar ekki með markaregni í dag. Hann spáir því markaþurrð í kvöld og telur líklegt að Bournemouth muni gera Arsenal erfitt fyrir og ekki ósennilegt að heimamenn nái að kreista út sigur með skynsömum leik svo lengi sem hugmyndafræði Iraola nær í gegn. Jones var með hárnákvæma spá um leik Manchester United og Burnley síðustu helgi en það þurfti svo sem engan Nostradamus til að spá fyrir um þann leik. Það verður spennandi að sjá hvort Jones verður sannspár í dag.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið „Hann er að hringja til að segjast ætla að drepa mig“ Körfubolti Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ Fótbolti „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Enski boltinn Hljóp maraþonhlaup á hverjum degi í heilt ár Sport Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Handbolti HM úr sögunni hjá Arnari Frey Handbolti „Ég var að sinna hlutum sem eru mikilvægari en körfubolti“ Körfubolti „Það mikilvægasta sem við eigum“ Handbolti Hafsteinn Óli utan hóps hjá Grænhöfðaeyjum Handbolti Fleiri fréttir Júlíus keyptur á meira eina milljón evra Hilmir Rafn gerði fjögurra ára samning við norsku Víkingana Freyr sagður vera með samningstilboð frá Brann Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Aldís Ylfa orðin landsliðsþjálfari fyrir þrítugsafmælið Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Í sex leikja bann fyrir að hrækja á mótherja MLS baðst afsökunar á tilkynningu um rangan Japana Isak bestur í desember „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Diallo verðlaunaður með nýjum samningi Moyes hefur rætt við Everton Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Everton endaði furðulegan dag á því að fara áfram í bikarnum Fá draumaúrslitaleik á milli Real Madrid og Barcelona Cristiano Ronaldo skoraði á 24. árinu í röð Marta spilar fram á fimmtugsaldurinn Starfsviðtöl að baki og nú þarf að ákveða sig Farnir að orða Mourinho við Everton starfið Everton rak Sean Dyche aðeins nokkrum klukkutímum fyrir leik Liverpool vill fá Kimmich Rooney bað Coleen á bensínstöð Högmo kom ekki í viðtal hjá KSÍ Alex Þór aftur í Stjörnuna „Mikilvægasta ráðning í langan tíma“ Reyna að lokka Arnór aftur til Svíþjóðar Arnar fundar með KSÍ Freyr til Noregs í viðræður og Högmo tekinn við Molde Sjáðu sigurmark Bergvall gegn Liverpool Sjá meira