Óútskýrðar hvítar flygsur en ekki hnífur Árni Sæberg skrifar 22. nóvember 2023 13:31 Aðeins einn sakborningur mætti þegar dómar voru upp kveðnir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þetta er ekki Alexander Máni. Vísir/Vilhelm Alexander Máni Björnsson var í dag dæmdur í sex ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps. Hann var sýknaður af ákæru um eina tilraun til manndráps þar sem ekki var talið sannað að hann hefði lagt að þriðja brotaþolanum með hnífi. Verjandi hans staðhæfði að annar hnífur hafi sést á myndskeiði frá vettvangi en dómari telur að um „hvítar flygsur“ hafi verið að ræða frekar en hníf.
Í niðurstöðukafla dóms Héraðsdóms Reykjavíkur, sem Vísir hefur undir höndum, segir að Alexander Máni hafi talið ósannað af myndskeiði að hann hafi stungið brotaþola Lúkas Geir en ákæruvaldið hafi byggt á því að það hafi gerst fljótlega eftir að hann kom inn í rýmið á neðri hæð skemmtistaðarins Bankastrætis Club. Hann hafi talið að það sjáist á myndskeiði að hann hafi ekki stungið Lúkas Geir, auk þess sem ásetningur hans hafi ekki staðið til þess. Þá hafi hann bent á að líklegra sé að einhver annar meðákærðu, sem veittust að Lúkasi Geir, hafi stungið hann. Beri að skýra vafa um þetta atriði honum í hag. Sagðist fyrst ekki hafa stungið hann, játaði svo og dró loks játningu til baka Í dóminum segir að í skýrslutöku hjá lögreglu hafi verið haft eftir Alexander Mána, þegar upptakan var borin undir hann, að hann gæti ekki séð að hann hefði stungið Lúkas Geir. Nánar spurður hvort hann hefði stungið brotaþolana þrjá hafu hann tekið fram að hann teldi sig ekki hafa stungið Lúkas Geir. Væri því ekki um að ræða skýra játningu á háttseminni. Hann hafi hins vegar játað háttsemina fyrir dómi við þingfestingu málsins en dregið hana til baka eftir frekari skoðun á myndefninu. Ítarlega var sagt frá skýrslu Alexanders Mána fyrir dómi, þegar hann dró játninguna til baka, á sínum tíma. Hnífurinn sást greinilega Við skoðun á myndskeiði sjáist þegar Alexander Máni gengur með hópi meðákærðu frá Þingholtsstræti inn á Bankastræti með hníf í hendinni, það er að hnífsblaðið sjáist greinilega. Hann hafi verið fimmti fremsti maður í röðinni. Þá sjáist þegar ákærðu koma niður stigann en næstir á eftir honum eru þrír meðákærðu. Alexander Máni sjáist þá enn með hnífinn í hægri hendinni. Frá öðru sjónarhorni sjáist þegar þrír mannanna ryðjast framhjá Lúkasi Geir, sem reyni að kýla frá sér en einn þeirra ýti honum frá sér á gervitré, sem stendur við vegg, og heldur inn í rýmið ásamt meðákærðu í átt að hinum brotaþolunum tveimur. Í beinu framhaldi komi Alexander Máni og tveir mannanna að Lúkasi Geir. Alexander Máni sjáist koma upp að Lúkasi Geir, beygja sig í áttina að honum með hægri hlið að honum. Í framhaldinu sjáist Lúkas Geir falla í gólfið. Tveir mannanna sjáist veitast að Lúkasi Geir á sama tíma með höggum og spörkum. Þá komi tveir aðrir í kjölfarið og veitast að Lúkasi Geir frá annarri átt. Hendur allra þessara manna sjáist af og til í atburðarásinni án þess að hnífur sé sjáanlegur. Þá hafi einn mannanna dregið kylfu fram úr erminni strax og hann kom niður stigann. Með vísan til framangreinds teljist sannað að Alexander Máni hafi verið í miklu návígi við Lúkas Geir. Hann hafi þannig verið í aðstöðu til þess að stinga Lúkas Geir áður en hann hélt áfram inn í rýmið þar sem árás var hafin á aðra brotaþola. Mundi eftir að hafa veist að einum við innganginn Þá segir að í skýrslutöku hjá lögreglu hafi Alexander Máni talið sig muna eftir manni við innganginn, sem hann hefði veist að með því að sparka í hann og einnig að rétt væri eftir honum haft er þetta var borið undir hann fyrir dóminum. Lúkas hafi kveðist fyrst hafa orðið var við áverka á síðu eftir að árásin var að fullu yfirstaðin. Hann hafi borið fyrir dómi að hann hefði séð hníf þegar á árásinni stóð eftir að hann hefði lenti á gólfinu, auk þess sem hann hefði reynt að verjast hnífstungu. Hann teldi sig hafa hlotið varnaráverka á hendi eftir það. Hann hefði síðar uppgötvað tvö lítil sár á baki sem hann taldi vera eftir eggvopn. Læknisskoðun hans á slysadeild hafi ekki leitt slíka áverka í ljós. Í læknisvottorði sé stutt lýsing af atburðarás og þar komi fram að hnífum hafi verið beitt. Atvikalýsing hafi þá ekki verið að fullu ljós eins og læknir sem gaf skýrslu fyrir dómi bar um og ekki eingöngu höfð eftir brotaþola. Í skýrslu tæknideildar um fatnað Lúkasar Geirs, sem hann hafi kveðið hafa verið nýjan, sé gerð grein fyrir götum sem talin eru vera eftir egghvasst áhald, meðal annars á buxnaskálmum og baki, en frekari greining hafi ekki farið fram. Óútskýrðar hvítar flygsur en ekki hnífur Í dóminum segir að í málinu hafi ekki verið upplýst að aðrir en Alexander Máni hafi beitt hnífum á vettvangi. Þá sé annar hnífur ekki sjáanlegur á myndskeiðum. „Staðhæfingum verjanda ákærða um að aðrir hnífar sjáist greinilega detta í gólfið þegar á árásinni stendur er hafnað en um er að ræða óútskýrðar hvítar flygsur sem sjást á myndskeiði frá vettvangi. Telst það því ósannað.“ Á myndskeiðinu sjáist Alexander Máni ekki leggja til Lúkasar Geirs með hnífi eða viðhafa handahreyfingu sem bendi sterklega til þess. Verði því ekki fullyrt að Lúkas Geir hafi fallið í gólfið eftir ætlaða hnífstungu Alexanders Geirs. „Í ljósi þessa og með hliðsjón af öðru sem rakið hefur verið þykir ákæruvaldið ekki hafa sýnt fram á svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa, sbr. 108. og 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og verður hann því sýknaður af sakargiftum þessum.“ Alexander Máni var aftur á móti sakfelldur fyrir tvær tilraunir til manndráps.
Hnífstunguárás á Bankastræti Club Dómsmál Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Sjá meira