Líklegast að ISIS beri ábyrgð á árásinni í Íran Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. janúar 2024 16:22 Írönsk stjórnvöld lýstu yfir þjóðarsorg í dag vegna málsins. AP Photo/Vahid Salemi Bandarísk yfirvöld segja að þau telji líklegast að hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við Íslamska ríkið beri ábyrgð á hryðjuverkaárás í Íran í gær þar sem í hið minnsta 84 manns létust.
Þetta kemur fram í umfjöllun New York Times. Þar segir að um sé að ræða bráðabirgðamat bandarísku leyniþjónustunnar. Árásin átti sér stað í gær þar sem minningarathöfn vegna hershöfðingjans Qassim Suleimani stóð yfir í Kerman í Íran. Suleimani lést í drónaárás Bandaríkjahers fyrir fjórum árum síðan. Íranir hafa kennt Ísraelsmönnum um árásina. Þeir hafa þvertekið fyrir það að hafa átt þátt í henni. Bandarísk yfirvöld segja þeirra gögn ekki benda til þess að Ísraelar hafi verið að baki árásinni. Tekið er fram í umfjöllun miðilsins að Ísraelar hafi oft framkvæmt árásir gegn Írönum en að þær aðgerðir hafi alla tíð beinst að hernaðarskotmörkum. Írönsk stjórnvöld lýstu yfir þjóðarsorg í landinu í dag og hétu hefnda. Fram kemur í umfjöllun New York Times að reynist grunsemdir bandarískra stjórnvalda réttar sé um að ræða fyrsta skiptið í langan tíma sem hryðjuverkasamtökin láti á sér kræla.
Íran Bandaríkin Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán