Varnargarðarnir sem umkringja nú Svartsengi eru nánast tilbúnir utan tveggja skarða. Í gegn um annað þeirra liggur vegurinn að Bláa lóninu og verður opið nema hraun renni í átt að því. Stefnt er að því að loka hinu á morgun, þegar vinnu við Njarðvíkurlögn lýkur.
„Við erum að ljúka frágangi við það að setja jarðveg yfir hitaveitulögnina, sem liggur til Njarðvíkur. Við erum í frágangi við að verja hana í þessum lágpunkti hérna. Við erum búnir að leggja líka háspennustreng meðfram henni til bráðabirgða og erum að klára það. Þegar við erum búnir að þessu reiknum við með því að loka þessu skarði,“ segir Arnar Smári Þorvarðarson, byggingartæknifræðingur hjá Verkís.
Þetta ætti að duga ef hraun rennur aftur hér yfir til að verja lögnina?
„Það er það sem við stefnum á, að fyllingin haldi henni og hraunið renni yfir. Svo verðum við að vona að það haldi gagnvart hita frá hrauninu,“ segir Arnar Smári.
„Landsnet er að vinna hérna við að reisa ný möstur og er með vaskan flokk manna hér við það. Þeir eru búnir að reisa 10 metra háan haug sem mastrið er uppi á. Svo er annað mastur hérna aðeins lengra. Þessi möstur eru mun hærri en þau sem eru fyrir og eru í þessum töluðu orðum að undirbúa að draga háspennulínur á þessi möstur.“
Þannig að íbúar Suðurnesja ættu að sofa rólegir?
„Já, ég held að þetta hjálpi til á allan hátt.
Gengur hratt að verja Grindavík
Þá er unnið hratt að því að reisa varnargarða við Grindavík. Vinnu við þann sem liggur norðan Grindavíkur, sem hraun rann meðfram í janúar, er nánast lokið og nú keppst við að reisa garð austan við bæinn og gengur sú vinna hratt.
„Á einni vakt fluttu menn á bilinu 21 til 22 þúsund rúmmetra af efni úr námunni yfir í varnargarðinn. Einn svona búkolluvörubíll tekur um 15 rúmmetra,“ segir Arnar Smári.
Veðurstofan birti tvö hraunflæðilíkön í gær, sem sýn aáætlað hraunflæði út frá tveimur mögulegum gosopum á Sundhnúksígaröðinni.
Annað líkanið gerir ráð fyrir eldgosi milli Sýlingarfells og Stóra-Skógfells líkt og í eldgosunum í desember og febrúar. Í gosi sem þessu er gert ráð fyrir stuttum fyrirvara og að hraun flæði svipaða leið og nái Grindavíkurvegi á innan við fjórum klukkustundum.
Í hinni sviðsmyndinni er gert ráð fyrir að gossprunga opnist við Hagafell og í suðurátt til Grindavíkur. Líklegur fyrirvari þessa er talinn ein til þrjár klukkustundir frá því að fyrstu jarðskjálftar mælast og ráðgert að hraun myndi ná að varnargörðum við Grindavík á einni klukkustund.
Settar hafa verið upp loftvarnarflautur bæði inni í Grindavík, þar sem dvalið er í nokkrum húsum yfir nótt, og í Svartsengi. Flauturnar voru prufukeyrðar í gærkvöldi og verða brúkaðar þegar rýma þarf svæðið í flýti vegna goss.