Kolbeinn sá strax rautt en Stefan og Túfa fögnuðu í fyrsta leik Sindri Sverrisson skrifar 1. apríl 2024 14:06 Stefan Ljubicic er mættur til Svíþjóðar og fékk sigur í fyrsta leik. Vísir/Diego Boltinn er byrjaður að rúlla í sænska fótboltanum og nokkrir Íslendingar voru á ferðinni í dag, í efstu og næstefstu deild karla.
Þjálfarinn Srdjan Tufegdzic, eða Túfa, sem meðal annars þjálfaði hjá KA, Grindavík og Val hér á landi, fagnaði sigri í fyrsta deildarleiknum með Skövde þegar liðið vann Örebro 1-0 á útivelli í sænsku 1. deildinni. Túfa fékk framherjann Stefan Alexander Ljubicic frá Keflavík fyrir skömmu og hann kom inn á sem varamaður á 68. mínútu, skömmu áður en sigurmark Skövde kom. Valgeir Valgeirsson lék allan leikinn fyrir Örebro en hann hefur spilað með liðinu frá árinu 2022. Kolbeinn Þórðarson átti hins vegar martraðarbyrjun í fyrsta leik sínum með IFK Gautaborg en hann fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt strax á 27. mínútu, í leik gegn Djurgården í sænsku úrvalsdeildinni. Gestirnir frá Djurgården nýttu sér þetta og komust í 4-0 áður en Gautaborg minnkaði muninn í 4-1 skömmu fyrir leikslok. Birnir Snær Ingason, fyrrverandi leikmaður meistara Víkings, varð sömuleiðis að sætta sig við tap, í sínum fyrsta deildarleik eftir að hafa haldið af landi brott í atvinnumennsku. Hann lék allan leikinn með Halmstad í 3-0 tapi á útivelli gegn Sirius í sænsku úrvalsdeildinni. Gísli Eyjólfsson var hins vegar ekki með Halmstad.
Sænski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fleiri fréttir Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Misjafn árangur Íslendingaliðanna ÍBV - Fram | Nær Fram að losna úr fallbaráttunni? 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Sjá meira