Áfram fullkomið hjá Guðrúnu Sindri Sverrisson skrifar 5. júlí 2024 19:01 Guðrún Arnardóttir stóð vaktina í vörn Rosengård í kvöld. Getty/Alex Grimm Guðrún Arnardóttir stóð í miðri vörn Rosengård þegar liðið hélt hreinu og vann 3-0 útisigur á Vittsjö í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Þar með hefur Rosengård ekki enn stigið feilspor á þessu tímabili og unnið alla fimmtán leiki sína, og Guðrún og stöllur hennar í vörninni hafa aðeins fengið á sig fjögur mörk allt tímabilið. Það gekk þó hægt að skora gegn Vittsjö í dag en Rebecca Knaak kom Rosengård yfir á 72. mínútu, og bætti við öðru marki skömmu síðar. Olivia Holdt skoraði svo þriðja markið í uppbótartíma. Þrjár íslenskar landsliðskonur voru svo í liði Kristianstad sem varð að sætta sig við 2-0 tap á útivelli gegn Norrköping, sem fyrr í dag tilkynnti um komu Sigdísar Evu Bárðardóttur frá Víkingi. Sigdís var þó ekki með í kvöld. Guðný Árnadóttir, Katla Tryggvadóttir og Hlín Eiríksdóttir voru allar í liði Kristianstad en liðið lenti undir á 62. mínútu þegar Wilma Leidhammar skoraði, og Alexandra Hellekant innsiglaði sigurinn seint í uppbótartíma. Kristianstad er með 26 stig í 4. sæti, nítján stigum á eftir toppliði Rosengård sem er nú með níu stiga forskot á næsta lið, Häcken. Norrköping er með 20 stig í 7. sæti og Vittsjö með 14 stig í 9. sæti.
Sænski boltinn Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Fleiri fréttir Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Sjá meira