Erlent

Rússar reyndu að ráða for­stjóra Rheinmetall af dögum

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Þýska leyniþjónustan kom í veg fyrir morðtilraun Rússa á Armin Papperger, forstjóra Rheinmetall.
Þýska leyniþjónustan kom í veg fyrir morðtilraun Rússa á Armin Papperger, forstjóra Rheinmetall. Getty

Bandarísk yfirvöld komust að því í upphafi árs að rússnesk stjórnvöld hefðu áform um að drepa Armin Papperger, forstjóra þýska fyrirtækisins Rheinmetall. Fyrirtækið er einn stærsti vopnaframleiðandi Evrópu og hefur sent hergögn í gífurlegu magni til Úkraínu. Þýskum yfirvöldum tókst að koma í veg fyrir tilræðið, eftir að hafa verið vöruð við af bandarísku leyniþjónustunni.

Þetta kemur fram í frétt CNN. Þar segir að morðið hafi átt að vera liður í áformum Rússa um að koma mönnum víða um Evrópu í hergagnaiðnaðinum sem hafa stutt við bak Úkraínumanna fyrir kattarnef. Armin Papperger var stærsta skotmarkið.

Armin Papperger að skoða sprengikúlur Rheinmetall ásamt Olaf Scholz kanslara Þýskalands, og Boris Pistorius varnarmálaráðherra.Getty

Rússar hafa undanfarna sex mánuði staðið fyrir herferð um alla Evrópu, þar sem þeir ráða fólk til að kveikja í vöruhúsum sem geyma vopn sem til stendur að senda til Úkraínu. Þetta er liður í tilraunum rússneskra stjórnvalda að gera allt sem þau geta, til að hefta vopnaflæði frá Evrópu til Úkraínu.

Rheinmetall hefur verið langstærsti framleiðandi 155mm sprengikúlnanna, sem hafa verið hryggjarstykkið í hernaði Úkraínumanna. Til stendur hjá fyrirtækinu að opna verksmiðju í Úkraínu á næstu vikum, þar sem á að framleiða brynvarin ökutæki og skriðdreka. Einnig mun verksmiðjan sinna viðhaldi á hergögnum Úkraínumanna.


Tengdar fréttir

Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi

Lögregluþjónar í Bæjarlandi í Þýskalandi hafa handtekið tvo menn sem grunaðir eru um njósnir fyrir yfirvöld í Rússlandi. Þeir eru meðal annars sakaðir um að skipuleggja skemmdarverk og fyrir að ætla að framleiða sprengiefni, með því markmiði að skaða hernaðaraðstoð Þjóðverja til Úkraínu.

Ótrúleg slóð útsendara: Banatilræði, skemmdarverk og milliríkjadeilur

Yfirvöld í Tékklandi hafa rakið stóra sprengingu í vopnageymslu í landinu árið 2014 til umdeildrar deildar rússneskrar leyniþjónustu sem hefur verið sökuð um banatilræði og skemmdarverk í Evrópu. Ráðamenn í Rússlandi segjast ætla að svara fyrir sig og reka erindreka Tékklands úr landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×