Erlent

Í­huga á­rásir á olíuvinnslur og kjarn­orku­stöðvar í Íran

Samúel Karl Ólason skrifar
Benjamín Netanjahú, forsætirsáðherra Ísrael fyrir framan kort af Mið-Austurlöndum. Ísraelar eru sagðir íhuga árásir á herstöðvar, olíuvinnslur og kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran, í kjölfar umfangmikillar skotflaugaárásar á Ísrael.
Benjamín Netanjahú, forsætirsáðherra Ísrael fyrir framan kort af Mið-Austurlöndum. Ísraelar eru sagðir íhuga árásir á herstöðvar, olíuvinnslur og kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran, í kjölfar umfangmikillar skotflaugaárásar á Ísrael. EPAABIR SULTAN

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að hann væri ekki hlynntur því að Ísraelar gerðu loftárásir á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Ísraelar eru sagðir íhuga slíkar árásir eftir að íranski herinn skaut um tvö hundruð skotflaugum að Ísrael á þriðjudaginn.

Þetta sagði Biden eftir að hann sagðist hafa rætt við leiðtoga G7 ríkjanna svokölluðu um að beita Íran viðskiptaþvingunum vegna skotflaugaárásarinnar. Biden sagði að allir leiðtogarnir væru sammála um að Ísraelar hefðu rétt á því að bregðast við árásinni.

Viðbrögðin ættu þó ekki að vera of umfangsmikil.

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, vill ekki að Ísraelar ráðist á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran.AP/Susan Walsh

Reiðir yfir umfangsmikilli skotflaugaárás

Þó um tvö hundruð skotflaugum hafi verið skotið að Ísrael, segja ráðamenn þar og í Bandaríkjunum að flestar þeirra hafi verið skotnar niður og hluti þeirra er sagður hafa brotnað upp í lofti eða eyðilagst þegar verið var að skjóta þeim á loft.

Þó nokkrar þeirra náðu þá að lenda í Ísrael og brak úr mörgum féll einnig til jarðar. Einn Palestínumaður lét lífið á Vesturbakkanum þegar hann varð fyrir braki úr einni skotflaug.

Ísraelar hafa viðurkennt að skotflaugar lentu á herstöðvum í landinu en þær eru sagðar hafa valdið takmörkuðum skaða. Gervihnattarmyndir hafa sýnt að minnsta kosti fjórar skotflaugar lentu á einni herstöð, þar sem F-35 orrustuþotur eru geymdar, en þrjár virðast ekki hafa valdið neinum skaða og ein lenti á flugskýli.

Skotflaugum var þó ekki eingöngu skotið að herstöðvum heldur einnig að borgum í Ísrael og er það sagt hafa valdið reiði þar í landi.

Biden og aðrir í ríkisstjórn hans hafa á undanförnu ári reynt að halda aftur af ráðamönnum í Ísrael, eins og síðast þegar Íranar gerðu árás á Ísrael í apríl. Þá bárust fregnir af því að Ísraelar hafi ætlað að hefna sín með umfangsmiklum árásum á Íran en að hætt hafi verið við þær vegna þrýstings frá Biden og leiðtogum í Evrópu.

Viðbragðsárás Ísraela var því minni sniðum en upprunalega stóð til.

Að þessu sinni virðast Ísraelar ekki eins tilbúnir til að hlusta á leiðtoga annarra ríkja en svo virðist sem þeim liggi heldur ekki á að svara árásinni frá Íran.

Íranar taldir í verri stöðu en áður

Ísraelar og Íranar hafa um árabil átt í óbeinum átökum. Ísraelar hafa gert leynilegar árásir í Íran og ráðið embættismenn og vísindamenn sem komið hafa að kjarnokuáætlun ríkisins af dögum, svo eitthvað sé nefnt. Þá hafa Íranar ítrekað hvatt bandamenn sína og vígahópa á þeirra snærum að gera árásir á Ísrael.

Staðan milli Ísrael og Íran þykir þó nokkuð breytt eftir vendingar síðustu vikna, þar sem Ísraelar virðast hafa valdið Hezbollah-samtökunum gífurlegum skaða. Margir af helstu leiðtogum samtakanna hafa verið felldir og Ísraelar segjast hafa grandað stórum hluta umfangsmikilla birgða Hezbollah af eldflaugum.

Klerkastjórnin getur ekki reitt sig á mikinn stuðning frá Hezbollah þessa stundina og því eru Ísraelar taldir sjá Íran í viðkvæmri stöðu um þessar mundir.

Nú er möguleiki á umfangsmeiri átökum milli ríkjanna og virðast Ísraelar tilbúnir til umfangsmeiri átaka við Íran.

Engin ákvörðun tekin

Washington Post og aðrir miðlar ytra hafa eftir bandarískum embættismönnum að skilaboðin frá Ísrael gefi til kynna að þar á bæ sé verið að íhuga árásir á olíu- og jarðgasvinnslu Íran, herstöðvar í Íran og önnur skotmörk. Ráðamenn í Tehran hafa sagt að slíkum árásum yrði svarað.

Ráðamenn á Vesturlöndum hafa áhyggjur af því að slíkar árásir gætu leitt til sambærilegra árása frá Íran á olíuvinnslu í öðrum ríkjum og slíkt myndi hafa verulega slæm áhrif á heimsvísu.

Engin ákvörðun mun þó hafa verið tekin um árásir í Tel Aviv, samkvæmt heimildarmönnum New York Times.

Þessir heimildarmenn segja að ákvarðanir verði mögulega teknar um næstu helgi og að þó Bandaríkjamenn hafi reynt að benda Ísraelum á tiltölulega lítið tjón af árás Íran, búist menn í Washington ekki við því að það muni hafa mikil áhrif.

Kjarnorkurannsóknarstöðvar erfið skotmörk

Eins og áður segir eru kjarnorkurannsóknarstöðvar Íran meðal þeirra skotmarka sem ráðamenn í Ísrael eru að skoða og hafa lengi íhugað árásir á. Ísraelar hafa haldið því fram að Íranar vilji koma sér upp kjarnorkuvopnum og hafa heitið því að koma í veg fyrir að þeim takist það.

Á undanförnum árum hafa Íranar aukið umfang úranauðgunar í landinu svo það gæti reynst þeim auðveldara að framleiða úran fyrir kjarnorkuvopn.

Sjá einnig: Vita ekkert um auðgun úrans í Íran frá því í febrúar

New York Times hefur þó eftir sérfræðingum að kjarnorkurannsóknarstöðvar Íran séu erfið skotmörk fyrir Ísrael, þar sem þær séu grafnar langt í jörðu og því sér erfitt að valda miklum skaða á þeim. Sérstaklega án aðstoðar frá Bandaríkjamönnum.

Það gæti því reynst Ísraelum erfitt að gera árásir á þessar stöðvar, miðað við ummæli Bidens um að hann sé mótfallinn slíkum árásum.


Tengdar fréttir

Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar

Ísraelar gerðu í nótt árás á meinta vopnageymslu við hlið rússneskrar herstöðvar í Sýrlandi í nótt. Rússar reyndu að skjóta ísraelskar stýriflaugar niður en engin þeirra hæfði herstöðina sjálfa.

Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu

Að minnsta kosti fimm eru látnir eftir loftárás Ísraelsher á heilsugæslu í Beirút, höfuðborg Líbanon, samkvæmt tilkynningu frá stjórnvöldum í Líbanon. Að sögn Ísraelshers notuðu liðsmenn Hezbollah heilsugæsluna.

Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin

Bandaríska fréttavefsíðan Axios hefur eftir háttsettum embættismanni í Ísrael að þarlend yfirvöld kunni að hefna fyrir umfangsmikla árás Íran í gær með árás á olíuframleiðslu Írana og aðra mikilvæga innviði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×