Holan ekki eina slysagildran og úttektar ábótavant Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 7. október 2024 07:05 Vera Rut Ragnarsdóttir íbúi í Urriðaholti er hugsi eftir atburði föstudagsins. Vísir Íbúi við lóð þar sem tveggja ára drengur féll ofan í holu í Urriðaholti á föstudag segir margt mjög ábótavant í frágangi hjá byggingarverktakanum sem reisti húsið. Hún furðar sig á að ekki hafi verið gerð úttekt á lóðinni til að koma í veg fyrir slys.
Tveggja ára drengur var á leið heim úr leikskóla ásamt ömmu sinni þegar hann féll tvo metra ofan í holu. Slökkvilið var kallað til til að toga drenginn upp úr holunni. „Hann er að labba niður brekku og stígur á þetta málmlok sem ,flippast' og hann dettur ofan í brunninn,“ sagði Björgvin Gunnar Björgvinsson faðir drengsins í samtali við fréttastofu daginn eftir atvikið. Drengnum varð ekki meint af en Björgvin benti á hve hættulegt sé að lokið hafi legið svo laust á holunni. Vera Rut Ragnarsdóttir íbúi í Urriðaholti er á sama máli. Hún býr í húsinu á lóðinni þar sem holan er staðsett. Sjálf á hún sjö ára dóttur sem leikur sér mikið með vinkonum sínum úti í garðinum. „Maðurinn minn stoppaði þær síðast í síðustu viku þegar þær voru að fikta í þessu,“ segir Vera Rut í samtali við fréttastofu. Hún segir holuna ekki einu slysagildruna við húsið og segir ÞG verk, verktakann sem sá um byggingu hússins, ekki hafa staðið nógu vel að frágangi. „Það er talað um að ÞG sé svo góður verktaki og það sé frábært að kaupa af þeim en það er klárlega ekki okkar reynsla,“ segir Vera. Hún bendir á að við húsið sé reyklosunargat með steinumgjörð sem nái yfir á gangstéttina. Íbúi í húsinu hafi í fyrra dottið um umgjörðina og brotið í sér tönn. Vera segir nágranna sinn hafa dottið um þessa steinumgjörð fyrir framan húsið í fyrra og brotið í sér tönn.Vísir „Við töluðum við ÞG þegar það gerðist og þá var ekkert gert. Þannig að ég efast um að það verði eitthvað gert núna,“ segir Vera. Hún bendir á að stór hluti íbúa Urriðaholts sé fjölskyldufólk og að fyrir tveimur árum hafi sjötíu prósent íbúa verið undir fertugu. „Við höfum velt fyrir okkur, hvað annað er ekki öruggt?“ segir Vera og segir óþægilegt að hugsa til þess hve mörg börn leika sér í garðinum í kring um holuna. „Hvað ef stelpan mín hefði verið ein úti að leika og dottið ofan í?“ segir Vera. Hún segist hafa fengið þær upplýsingar að lokið fyrir gatinu væri það þykkt að hróp og köll heyrðust ekki upp úr holunni meðan lokið var fyrir. Vera veltir því fyrir sér hvers vegna ekki hafi verið gerð úttekt á svæðinu til að koma í veg fyrir slysagildrur sem þessar. „Af hverju fer svona ekki í úttekt? Af hverju kemst þetta í gegn um byggingarfulltrúa?“ segir Vera. „Af hverju eru svona dæmi að komast í gegn þegar það eru einhverjar áberandi hættur á fjölbýlishúsalóð?“
Byggingariðnaður Slysavarnir Garðabær Tengdar fréttir „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Tveggja ára drengur datt ofan í vatnsbrunn í Garðabænum þegar hann gekk yfir brunnlok sem var ekki almennilega fest. Til allrar lukku var drengurinn ekki einn þegar hann datt og slapp sömuleiðis óskaddaður. 5. október 2024 21:55 Mest lesið Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Holan ekki eina slysagildran og úttektar ábótavant Innlent Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Innlent Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Innlent Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Erlent Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Innlent Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið Innlent „Hann hverfur ofan í jörðina“ Innlent Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Erlent Fleiri fréttir Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu „Hann hverfur ofan í jörðina“ Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið „Þetta er ekki endanlegt frumvarp“ Samþykktu ályktun og stefna að kosningum í vor Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Nóg af heitu vatni á Selfossi Glerbrot í lauginni „Kveður við nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“ Stjónmálafræðingur segir kosningar nær en marga gruni Nýr formaður VG, seðlabankastjóri og ástandið á Gaza Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Vilhjálmur Hjálmarsson kjörinn varaformaður ÖBÍ „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Bátarnir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum málaðir á vita Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Fagna löngu tímabærri breytingu Sjá meira
„Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Tveggja ára drengur datt ofan í vatnsbrunn í Garðabænum þegar hann gekk yfir brunnlok sem var ekki almennilega fest. Til allrar lukku var drengurinn ekki einn þegar hann datt og slapp sömuleiðis óskaddaður. 5. október 2024 21:55