Lífið

Geitin er risin fyrr en nokkru sinni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Geitin er risin í öllu sínu veldi. Þessi mynd náðist af geitinni í gær.
Geitin er risin í öllu sínu veldi. Þessi mynd náðist af geitinni í gær.

IKEA-geitin er risin í Kauptúni og er sérstaklega snemma á ferðinni. Hún hefur undanfarin ár verið tendruð um miðjan október en er nú komin á sinn stað nokkrum dögum fyrr.

Lengi vel var geitin sérstakt skotmark brennuvarga og á tímabili var sem menn legðu metnað sinn í að bera að henni eld. En hún hefur fengið að standa óáreitt allra síðustu árin. Síðast kviknaði geitinni árið 2016.

Geitin er að sænskri fyrirmynd eins og IKEA. Fyrsta geitin á Íslandi leit dagsins ljós árið 2010. Reyndar er það svo að það eru Svíar sem tóku upp á því að kveikja í fyrirbærinu í landi sínu, hefð er fyrir þeim óskunda þar og tóku íslenskir brennuvargar upp þann ósið.

Ekki er hægt að segja að IKEA-geitin hafi fengið að kemba hálm sinn í friði og spekt, ef svo má að orði komast. Að minnsta kosti þrisvar hefur brennuvörgum tekist að bera að henni eld og þá hefur hún farið illa í veðrum og vindum; til að mynda fauk hún um koll í óveðri árið 2011.

Árið 2015 gripu stjórnendur IKEA til þess að auka öryggisgæslu og var geitin vöktuð allan sólarhringinn. Það dugði til að halda brennuvörgum frá en þá vildi ekki betur til en að í geitinni kviknaði en þá vegna útiseríu sem hékk utan á henni.

IKEA höfðaði dómsmál í kjölfar brunans 2016 og dæmdi héraðsdómur þá þrjá aðila til að greiða skaðabætur sem nam 150 þúsund krónur á haus. Síðan hafa brennuvargarnir haft hægt um sig.


Tengdar fréttir

Brennu­vargar beðnir um að finna sér annað á­huga­mál

IKEA-geitin er upprisin líkt og ár hvert þegar líða fer að jólum. Allir eru hvattir til að berja geitina augum en þeir sem vilja hana feiga mega helst finna sér annað að gera að sögn fjölmiðlafulltrúa IKEA á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.