Viðreisn fjölskyldunnar Heiða Ingimarsdóttir skrifar 8. nóvember 2024 13:16 Sem ung kona með stóra fjölskyldu og fimm börn á breiðu aldursbili þá finn ég mikið fyrir því sem betur má fara í kerfinu okkar og það liggur í augum uppi að breytinga er þörf. Úr leigðu í eigið Í fyrsta lagi erum við ný á húsnæðismarkaði. Við vorum búin að berjast í bökkum á meingölluðum leigumarkaði þar sem við kepptumst við að halda börnunum í einum skóla þrátt fyrir að við þyrftum reglulega að skipta um húsnæði og flökkuðum um hverfi Reykjavíkur þar sem selt var undan okkur, leigusalar ákváðu að flytja aftur í húsnæðið og þar fram eftir götunum. Við höfðum skoðað hlutdeildarlán en þar voru skilyrðin svo þröng að fyrir fjölskyldu sem þurfti húsnæði af sömu stærðargráðu og við var borin von að nýta sér það annars ágæta úrræði. Eftir að við síðan fluttum þvert yfir landið gátum við loksins fjárfest í húsi. Til þurfti þó eftirlaunasjóð mannsins míns frá Bretlandi (ég ætla ekki einu sinni út í rússíbanann sem fylgdi því að fylgjast með krónunni sveiflast á milli daga og við að bíða þess að peningurinn færðist frá Englandi til Íslands) og stuðning frá fjölskyldunni minni sem ég veit af eigin skinni að ekki allir geta treyst á. Það stóð bara þannig á að á þessum tíma var smá svigrúm hjá þremur aðilum. Við fjölskyldan eignuðumst heimili í fyrsta skipti sem við gátum kallað okkar. Við festum þó vexti í hæstu hæðum (eða það héldum við, en áfram hækkuðu þeir þó) og óar fyrir því að þeir losni í nóvember á næsta ári. Við erum hreinlega ekki viss um að við getum haldið húsinu ef ástandið breytist ekki. Viðreisn er tilbúið til að gera þær breytingar sem þarf svo þetta þurfi ekki að vera raunveruleiki fólks, ár eftir ár og kynslóð eftir kynslóð. Biðlistarnir endalausu Af börnunum mínum eru á þessari stundu tvö á biðlista. Það þriðja losnaði af lista í fyrra, eftir að hafa beðið í þrjú ár. Það er ótækt að unga fólkinu okkar og fjölskyldum þeirra sé haldið í gíslingu á biðlistum. Ég fæ reglulega spurningu um hver staðan sé, frá þeim sjálfum. Þau finna nefnilega að þau þurfa aðstoð með vissa hluti og þau vita að hjálpin er á leiðinni, en þau vita eins vel og ég að við þurfum að vera þolinmóð og þetta tekur tíma. Í okkar velsældar samfélagi þurfa börnin okkar nefnilega að aðlaga sig kerfinu í stað þess að þetta manngerða kerfi aðlagi sig börnunum. Eitt barna minna var á biðlista eftir því að komast til sálfræðing. Annað ungmenni sagði barninu mínu einfaldlega að segjast ,,ætla að drepa sig“ þá fengi það hjálp. Ungmennin okkar eru sem sagt líka farin að leita leiða til að sigra þetta kerfi, þau eru örvæntingafull og vilja hjálp strax. Skiljanlega. Viðreisn lagði fram frumvarp um niðurgreidda sálfræðiþjónustu. Það var samþykkt í þinginu en því fylgdi svo ekkert fjármagn og er það ein af ástæðum þess að við erum hér nú. Viðreisn hefur látið sig málefni barna og ungmenna varða og hefur sett mikla áherslu á þau málefni og ég treysti þeim til að gera þær breytingar sem þörf er á. Efla þjónustuna, útrýma biðlistum og stuðla að forvirkum aðgerðum svo börnunum okkar þurfi ekki að líða svona. Hið daglega amstur Með stóra fjölskyldu skiptir höfuðmáli að vera skipulögð. Ég geri matseðil fyrir mánuðinn og versla eftir honum. Ég reyni að vera með mat sem hægt er að nýta áfram og svo sem minnst verði af afgöngum. Börnin mín láta fötin sín ganga niður til þeirra sem yngri eru þegar þess er kostur og ég nýti mér loppumarkaði. Þá versla ég líka erlendis á þau þegar ég kem því við, enda töluvert ódýrara. Við erum alls ekki rík en þó tekjuhærri en við höfum áður verið. Þrátt fyrir það erum við ekki búin undir tannlæknaferðir eða dekkjaskipti. Við erum með lítinn einkarekstur samhliða tveimur fullum störfum og þannig rétt náum við endum saman. Sami rekstur bjargaði okkur frá því að þurfa að selja undan okkur þegar við vorum í fæðingarorlofi á síðasta ári. Við erum þó enn að rétta úr kútnum eftir orlofið. Í samfélagi þar sem er verið að hvetja fólk til barneigna á þetta ekki að vera svona. Á heimili þar sem farið er vel með fjármuni, tekjur eru ágætar og skipulagið er í excel skjali ætti húsmóðirin ekki að þurfa að neita sér um klippingu og litun og það ætti að vera hægt að fylla bílinn í annað skipti þó liðið sé á mánuðinn. Það er ekki nóg að vera með fólk við stýri sem segir okkur að við eigum nóg og að við höfum það fínt. Við þurfum að finna það á eigin skinni og til þess þarf breytingar. Ég trúi því að Viðreisn muni snúa þessu við, keyra niður vexti með því að stunda aðhald í ríkisfjármálum og safna ekki skuldum líkt og fráfarandi ríkisstjórn. Slíkt bitnar beint á hinum almenna borgara. Frelsið til að vera við sjálf Ríkið ætti að vera styðjandi við íbúa landsins en ekki heftandi. Fólk á að geta lifað því lífi sem það kýs svo fremi sem það skaði ekki annað fólk. Ríkið á að treysta fólki til að taka ákvarðanir. Ég ætti til dæmis að geta tekið upp eftirnafn mannsins míns án þess að það verði að vera millinafn, maðurinn minn ætti að geta gripið sér kippu af bjór með fótboltanum þegar hann stekkur inn í matvöruverslun. Ég, og síðar dætur mínar, eigum að hafa rétt yfir eigin líkama. Sumir segjast styðja frelsið en hafa svo sýnt í verki hingað til að svo er ekki. Því skiptir máli að Viðreisn komist í þá stöðu að frelsið verði raunverulegt og að ríkið hætti að skipta sér að því sem snertir það ekki beint en hefur raunveruleg áhrif á líðan fólks og þeirra daglega líf. Það gefur augaleið að það virkar ekki að kjósa það sama en búast við breytingum, því hvet ég fólk til að kynna sér Viðreisn og setja svo X við C á kjördag. Kjósum breytingar og höfnum kyrrstöðu! Höfundur er 2. sæti á lista Viðreisnar í NA. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Viðreisn Skoðun: Alþingiskosningar 2024 Heiða Ingimarsdóttir Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun