Handbolti

Haukar hentu Eyja­mönnum út úr bikarnum

Smári Jökull Jónsson skrifar
Haukarnir fögnuðu í dag.
Haukarnir fögnuðu í dag.

Haukar eru komnir í 8-liða úrslit Powerade-bikarsins í handknattleik eftir öruggan sigur á ÍBV á heimavelli. Þá eru ÍR-ingar sömuleiðis komnir áfram eftir sigur á Akureyri.

Haukar og ÍBV hafa marga hildina háð í handboltanum á síðustu árum. Leikur þeirra á Ásvöllum í dag var í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins og heimamenn í Haukum voru betra liðið til að byrja með. Þeir komust í 8-4 forystu eftir rúmlega tíu mínútna leik og voru með frumkvæðið.

Lokakafli fyrri hálfleiks var þó fínn hjá Eyjaliðinu sem minnkaði muninn í eitt mark og staðan í hálfleik var 15-14. Í síðari hálfleik héldu Eyjamenn í við heimaliðið í upphafi. Um miðbik hálfleiksins breyttu Haukar hins vegar stöðunni úr 21-19 í 26-19 og gengu frá leiknum. Lokatölur 37-29 og Haukar komnir í 8-liða úrslit.

Þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum skaut Andri Fannar Elísson beint í andlitið á Pavel Miskevich úr vítakasti og fékk rautt spjald fyrir vikið, líkt og Miskevich sem brást ókvæða við vítakastinu og réðist að Andra Fannari.

Össur Haraldsson var magnaður hjá Haukum með 13 mörk úr 14 skotum. Skarphéðinn Ívar Einarsson kom næstur með 6 mörk. Hjá ÍBV skoruðu Sigtryggur Daði Rúnarsson og Kári Kristján Kristjánsson 6 mörk hvor.

ÍR sótti sigur norður yfir heiðar

Á Akureyri mættust lið Þórs og ÍR en Þórsarar leika í Grill 66-deildinni en ÍR-ingar í Olís-deildinni. Þar byrjuðu heimamenn frábærlega og komust í 10-5 en ÍR-liðið náði að minnka muninn og staðan í hálfleik var 17-16. Jafnt var á með liðunum í byrjun seinni hálfleiks en í stöðunni 30-29 fyrir ÍR náðu gestirnir 6-1 kafla og heimamönnum tókst ekki að svara.

Lokatölur 38-32 og ÍR komið áfram í 8-liða úrslit. Hrannar Ingi Jóhannsson skoraði 13 mörk fyrir ÍR og Bernard Darkoh 8 mörk. Brynjar Hólm Grétarsson var markahæstur Þórsara með 8 mörk, Sigurður Ringsted Sigurðsson skoraði 7 mörk og Oddur Grétarsson 6. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×