Skoðun

Heimskasta þjóð í heimi

Sverrir Björnsson skrifar

Það er víst ekki keppt í því enda ekki hægt að dæma heilar þjóðir. Til þess erum við of ólík en ef það væri keppni ættum við alveg séns á að verða best í heimi í því eins og svo mörgu öðru. Miðað við fólksfjölda.

Heimska er flughált hugtak en það vill svo vel til að höfundur er þar á heimavelli. Ég ætla því bara að nefna 6 vísbendingar en láta þig um að meta stöðuna.

1. Við Íslendingar framleiðum mest af rafmagni í heiminum miðað við höfðatölu. 15 sinnum meira á mann á ári en meðaltal heimsins. (2023)

2. Við veiðum 1.6 % af villtum fiski í heiminum. (2022.) Við erum 0.0047% mannkyns.

3. Það komu hingað 5.79 ferðamenn á hvern Íslending árið 2023. Frakkland sem fær flesta ferðamenn allra ríkja heimsins fékk sama ár 1.49 ferðamann á hvern íbúa.

Orkan okkar, fiskurinn okkar, landið okkar.

Erum við rík?

Þá er það seinni hluti listans sem líka þarf að senda inn í keppnina ef við ætlum okkur að vinna. Listinn gæti verið lengri en þetta er bara stuttur útdráttur fyrir dómnefndina. Þig.

4. Þrettán prósent íslenskra barna eru fátæk.

5. Það eru langir biðlistar í heilbrigðiskerfinu. (30 mánaða bið eftir greiningu á barni sem þarf stuðning er dæmi sem heyrði ég í dag.) Öfugt við nágrannalöndin er okkar kerfi ekki gjaldfrjálst.

6. Félagslegar íbúðir eru hlutfallslega fæstar á Íslandi í Vestur Evrópu. Íbúar landsins sem eiga ekki mikinn pening eru á valdi fjármagnseiganda, vaxtaokurs og brasks.

Börnin okkar, veikasta fólkið okkar, gamla fólkið okkar.

Erum við heimsk?

Tvö þjóðskálda okkar (EB og HL) töluðu um heimsku á þessum nótum, að horfa aðgerðalaus á lífsbjörgina synda framhjá sér og að sá í akur óvinar síns allt sitt líf.

Það eru að koma kosningar, valdið er fólksins í smá stund.

Sérhagsmunagæslu gengið er tilbúið, hoppandi spennt að halda áfram. Næst á að gefa firðina okkar og stela rokinu okkar.

Þjóð sem hefur alltaf haft það í fangið mun sakna þess.

Höfundur er hönnuður.




Skoðun

Sjá meira


×