Innlent

Ógnaði fólki nærri Hall­gríms­kirkju

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla hefur eftir vitnum að maðurinn hafi hrint fólki og hrækt á það.
Lögregla hefur eftir vitnum að maðurinn hafi hrint fólki og hrækt á það. Vísir/Egill

Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af manni sem sagður var ógna fólki nærri Hallgrímskirkju. Vitni sögðu hann hafa hrint fólki og hrækt á það.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þar sem segir frá verkefnum gærkvöldsins og næturinnar. Fram kemur að lögregla hafi fundið manninn og flutt hann á lögreglustöð þar sem honum hafi verið sleppt að framburði loknum.

Í tilkynningunni segir að fjórir hafi gist fangageymslur undir morgun og að nóg hafi verið að gera hjá lögreglu á gamlársdag. „Mjög margar tilkynningar um aðstoðarbeiðnir vegna fólks í annarlegu ástandi, óæskilegar hópamyndanir ungmenna með flugelda, ökumenn undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í umferðinni, ágreininga og heimilisofbeldi á heimilum, tónlistarhávaða o.fl.,“ segir í tilkynningunni.

Strandaglópar við Gróttuvita

Fram kemur að fimm ferðamönnum hafi verið bjargað frá Gróttuvita en þau hafi ekki komist aftur í land þegar það flæddi að. Björgunarsveit var kölluð út sem flutti fólkið í land.

Þá segir að nokkrir dyraverðir hafi verið handteknir á skemmtistað í Reykjavík vegna líkamsárásar í tveimur aðskildum málum. Þeir fluttir á lögreglustöðina á Hverfisgötu en látnir lausir að loknum framburði.

Herbergið í rúst

Á svæði lögreglustöðvar 2, sem nær yfir Hafnarfjörð og Garðabæ, var tilkynnt um að flugeldar hafi sprungið í íbúð. Ólögráða ungmenni hafi þar verið að prófa kveikjara og óvart kveikt í flugelda innandyra. „Herbergið í rúst eftir sprenginguna og notkun slökkvitækis samkvæmt lýsingu en engin slys á fólki.“

Þá segir að tilkynnt hafi verið um hóp stráka sem hafi beint flugeldum að rúðum í íbúðarhverfi. „Rúðan brotnaði við skoteldinn og hlupu þá strákarnir í burtu. Kannað verður hvort öryggismyndavélar hafi náð upptökum af atvikinu sem gæti borið kennsl á drengina.“

Sömuleiðis var lögregla kölluð út vegna manna sem voru að kasta sprengjum í bíla og gangandi vegfarendur og ungmenni sem voru að kasta flugeldum í opið bál.

Loks segir að tilkynnt hafi verið um drengi vera að skjóta rakettum inn í grunnskóla í þeim tilgangi að valda skemmdum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×