Ó­trú­leg endur­koma skaut Börsungum á toppinn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Lamine Yamal skoraði sigurmark Barcelona.
Lamine Yamal skoraði sigurmark Barcelona. Xavi Bonilla/DeFodi Images via Getty Images

Barcelona vann magnaðan 4-2 endurkomusigur er liðið heimsótti Atlético Madrid í toppslag spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld.

Barcelona og Atlético Madrid sátu í öðru og þriðja sæti spænsku deildarinnar fyrir leik kvöldsins. Börsungar áttu tvo leiki til góða á topplið Real Madrid og með sigri hefði liðið endurheimt toppsætið.

Það voru þó heimamenn í Atlético Madrid sem voru fyrri til að brjóta ísinn þegar Julian Alvarez kom boltanum í netið á síðustu mínútu venjulegs leiktíma í fyrri hálfleik.

Norðmaðurinn Alexander Sørloth bætti svo öðru marki heimamanna við eftir vel útfærða skyndisókn á 70. mínútu, en aðeins tveimur mínútum síðar minnkaði Robert Lewandowski muninn fyrir Barcelona.

Börsungar jöfnuðu svo metin á 78. mínútu þegar Ferran Torres skallaði boltann í netið. Gestirnir voru hins vegar ekki hættir og ungstirnir Lamine Yamal tryggði liðinu sigur á annarri mínútu uppbótartíma þegar skot hans fór af varnarmanni og í netið.

Ferran Torres stráði svo salti í sár Madrídinga með marki á 97. mínútu og þar við sat.

Niðurstaðan því ótrúlegur 4-2 sigur Barcelona sem tyllir sér aftur á topp spænsku úrvalsdeildarinnar, nú með 60 stig eftir 27 leiki, jafn mörg og Real Madrid sem situr í öðru sæti og fjórum stigu meira en Atlético Madrid sem situr í því þriðja.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira