Fótbolti

Clarke pirraður og stutt­orður í við­tali eftir leik

Hjörvar Ólafsson skrifar
Steve Clarke á hliðarlínunni í leiknum í kvöld.  
Steve Clarke á hliðarlínunni í leiknum í kvöld.   Mynd/Alan Harvey/Getty Images

Steve Clarke, þjálfari skoska karlalandsliðsins í fótbolta, hrósaði íslenska liðinu eftir að Skotland laut í gras fyrir Íslandi í vináttulandsleik liðanna á Hampden Park í kvöld. 

„Það er alltaf erfitt að kyngja því að tapa leikjum á heimavelli. Íslenska liðið spilaði vel í þessum leik og við náðum ekki að spila eins vel og við getum. Af þeim sökum töpuðum við leiknum, svo einfalt er það,“ sagði Clarke súr eftir að leikurinn var flautaður af. 

„Við missum markmann í meiðsli í upphitun og annan markvörð að velli vegna meiðsla í byrjun leiks. Við fáum á okkur mark strax í kjölfarið á markmannsskiptunum og eftir það var þetta bara erfitt,“ sagði þjálfari skoska liðsins enn fremur. 

„Það má vel vera að leikmenn hafi verið þreyttir eftir langt og strangt keppnistímabil. Við náðum allavega ekki að sýna okkar bestu hliðar. Ég veit ekki hvað olli því en frammistaðan var ekki nógu góð til þess að ná í hagstæð úrslit,“ sagði hann vonsvikinn. 

Klippa: „Náðum ekki að sýna okkar bestu hliðar“



Fleiri fréttir

Sjá meira


×