Trump segir fólki að yfirgefa Tehran hið snarasta Samúel Karl Ólason skrifar 16. júní 2025 22:57 Mikill reykur eftir árás Ísraela á olíuvinnslu í útjaðri Tehran. AP Íranar halda áfram að skjóta eldflaugum á Ísrael, eftir að Ísraelar hafa gert umfangsmiklar loftárásir í Íran. Eldflaugunum virðist þó fara sífellt fækkandi og Ísraelar segjast hafa tryggt sér yfirráð í háloftunum yfir Íran. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í kvöld að allir íbúar Tehran, höfuðborgar Íran, ættu að flýja en Bandaríkin hafa verið að flytja umtalsverðan herafla til Mið-Austurlanda.
Nú á tíunda tímanum var fólki víðsvegar um Ísrael gert að halda til næsta sprengjuskýlis. Var varað við því að skotflaugum hefði verið skotið á loft frá Íran. Fjölmiðlar í Íran segja þó að einungis tveimur flaugum hafi verið skotið á loft og að þær hafi báðar fallið til jarðar á opnum svæðum og þar af leiðandi valdið litlum sem engum skaða. Fyrri árás Írana i kvöld var gerð með þremur skotflaugum. Hvorug árásin virðist hafa valdið skaða. Fyrir hana hafði klerkastjórnin í Íran heitið umfangsmiklum árásum í allt kvöld og í alla nótt. Eitt flugskeyti úr loftvarnarkerfi Ísraela í Tel Aviv bilaði í kvöld og féll til jarðar í borginni. Failed interception attempt in Tel Aviv. pic.twitter.com/4yFWH7qrxQ— ILRedAlert (@ILRedAlert) June 16, 2025 Á sama tíma virðast Ísraelar hafa frjálsar hendur til árása í Íran. Sjá einnig: Gerðu árás á sjónvarpshúsið í miðri útsendingu Yfirráð í háloftunum yfir Íran fela í raun í sér að ísraelskir flugmenn geta flogið þotum sínum og drónum, svo gott sem óáreittir, yfir landinu og varpað sprengjum á skotmark eftir hentisemi. Margar árásir hafa beinst að eldflaugum og skotpöllum í Íran. Ísraelski herinn birti í kövld þetta kort sem á að sýna þær árásir sem hafa verið gerðar í Íran og gegn hvaða skotmörkum.Ísraelski herinn Það hefur vakið athygli að myndir sem ísraelski herinn hefur birt sýna þotur vopnaðar hefðbundnum sprengjum sem varpað er úr lofti og svífa ekki langar vegalengdir. Þá hafa Ísraelar notast við eldri þotur af gerðinni F-15 og F-16 á undanförnum dögum en fyrstu dagana notuðust þeir nánast eingöngu við F-35 þotur, sem eru hannaðar til að erfitt er að sjá þær á ratsjám og að skjóta þær niður. Þetta gefur til kynna að loftvarnir Írana hafi að mestu verið brotnar á bak aftur. Erfitt gæti reynst klerkastjórninni í Íran að verða sér út um ný loftvarnarkerfi á næstunni. Loftvarnir landsins voru fyrir þessi nýjustu átök tiltölulega löskuð, eftir síðustu árásir Ísraela í október í fyrra. Sjá einnig: Loftvarnir Íran verulega laskaðar eftir árásir helgarinnar Loftvarnarkerfi Íran koma að mestu frá Rússlandi og Kína, samkvæmt sérfræðingi sem ræddi við blaðamanna AP fréttaveitunnar, auk þess sem ríkið hefur notast við gömul kerfi sem Íranar fengu frá Bandaríkjunum á árum áður, áður en klerkastjórnin tók völd. Þeir hafa einnig framleitt eigin loftvarnarkerfi en framleiðslugetan hefur væntanlega orðið fyrir skemmdum í árásum Ísraela og þá geta Íranar ekki búist við því að fá ný kerfi frá Rússum í bráð, vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Þessi yfirráð Ísraela í háloftunum gefur þeim færi á því að ráðast á þau skotmörk sem þeim sýnist. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, sagði í kvöld að Ísraelar væru að breyta ásýnd Mið-Austurlanda með árásum sínum. Verið væri að fella leiðtoga herafla Íran, einn af einum. Hann hefur kallað eftir því að íranska þjóðin rísi upp gegn klerkastjórninni. Ísraelski herinn birti í kvöld myndband af loftárásum á gamlar F-14 herþotur í Íran, sem Bandaríkjamenn gáfu til Írana á árum áður. Trump segist ekki vilja kjarnorkuvopn í Íran Ísraelar hófu árásir sínar á Íran aðfaranótt föstudagsins síðasta. Ráðamenn í Ísrael sögðu árásirnar „fyrirbyggjandi“ og beindust margar þeirra gegn kjarnorkuáætlun Íran og kjarnorkurannsóknarstofum. Ísraelar felldu einnig mikilvæga vísindamenn og háttsetta yfirmenn í herafla Íran. Sjá einnig: Ísraelar gera áásir á Íran Ísraelar hafa lengi sakað Írana um að vilja koma upp kjarnorkuvopnum og segja að slíkt myndi ógna tilvist Ísraelsríkis. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði fyrr í kvöld að hann vildi ekki að Íranar kæmu upp kjarnorkuvopnum. „Við erum komnir langleiðina að því að tryggja að svo verður ekki,“ sagði Trump. .@POTUS: "I want to see no nuclear weapon in Iran and we're well on our way to making sure that happens." pic.twitter.com/7zedTAf10F— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) June 16, 2025 Trump er sagður hafa í kvöld neitað að skrifa undir sameiginlega ályktun G7 ríkjanna svokölluðu um átökin milli Ísraela og Íran. Samkvæmt frétt New York Times liggur ekki fyrir af hverju en í drögum að ályktuninni, sem blaðamenn hafa séð, er kallað eftir stillingu og að báðar fylkingar hætti árásum á hinn. Ályktunin er enn í smíðum og afstaða Trumps gæti breyst, samkvæmt þýskum erindreka. Trump lýsti því yfir í kvöld að klerkastjórnin hefði átt að gera samkomulag um kjarnorkuátælun þeirra. „Einfaldlega sagt, ÞÁ GETA ÍRANAR EKKI EIGNAST KJARNORKUVOPN. Ég hef sagt það aftur og aftur!“ skrifaði Trump á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðil. „Allir ættu að flýja frá Tehran hið snarasta!“ CNN hefur eftir embættismanni í Hvíta húsinu að með færslunni vilji Trump ítreka hve mikilvægt það sé að klerkastjórnin setjist aftur við samningaborðið. Talskona Trumps lýsti því svo yfir að hann myndi yfirgefa G7 fundinn í Kanada snemma, vegna „þess sem gengur á í Mið-Austurlöndum“. Færslunni var deilt á samfélagsmiðlasíðum Hvíta hússins. Þar var búið að yfirstrika með gulum lit það að fólk ætti að flýja frá Tehran. Færsla Trumps á Truth Social. Myndbönd í dreifingu á samfélagsmiðlum gefa til kynna að mikill fjöldi fólks sé að flýja frá Tehran. Civilians continued to flood out of Tehran tonight, as President Trump issued an order to evacuate the city. The exodus started a few days ago, but recently accelerated as Iranian air defenses fell apart and airstrikes intensified in Tehran. pic.twitter.com/qZuES1fONm— OSINTtechnical (@Osinttechnical) June 16, 2025 Klerkastjórnin í slæmri stöðu Bandaríkjamenn hafa ekki tekið beinan þátt í árásunum á Íran. Hins vegar hafa fregnir borist af því að fjölmörgum eldsneytisflugvélum og flutningavélum hafi verið flogið frá Bandaríkjunum til Evrópu og Mið-Austurlanda undanfarinn sólarhring. Þar að auki er verið að sigla flugmóðurskipinu USS Nimitz frá Kyrrahafi til Mið-Austurlanda, þar sem annað flugmóðurskip er fyrir. Herafli Bandaríkjanna á svæðinu verður því orðinn gífurlega mikill á næstu dögum. Staða klerkastjórnarinnar í Íran þykir ekki góð. Klerkastjórnin hefur varið fjölmörgum árum í að byggja upp sveitir undir óbeinni stjórn hennar í Líbanon, Jemen, Írak og Palestínu. Þessar sveitir hafa orðið fyrir umfangsmiklum höggum síðustu tvö ár. Hezbollah í Líbanon átti að vera eitt helsta mótvægisafl klerkastjórnarinnar gegn Ísrael. Íranar hafa lengi sent fjölmargar eldflaugar til Líbanon og styrkt Hezbollah með peningum, þjálfun og hergögnum. Máttur Hezbollah þykir ekki mikill þessa dagana, eftir mikil átök við Ísraela í fyrra en þá felldu Ísraelar hundruð vígamanna samtakanna, þar á meðal flesta leiðtoga þeirra, og örkumluðu þúsundir vígamanna með því að sprengja upp símboða sem vígamennirnir notuðu til að taka við skipunum frá leiðtogum samtakanna. Íranar hafa verið reknir frá Sýrlandi eftir fall ríkisstjórnar Bashars al-Assad. Við upphaf árása Ísraela á Íran á aðfaranótt föstudags bárust þau skilaboð frá Líbanon að Hezbollah kæmi Írönum ekki til aðstoðar. Svipaðar fregnir bárust frá sveitum hliðhollum Íran í Írak. Þetta hefur set klerkastjórnina í enn erfiðari stöðu og hefur mögulega ýtt undir það að leiðtogar hennar hafi talið sig, og telja sig enn, þurfa að öðlast kjarnorkuvopn, eins og einn sérfræðingur í málefnum ríkisins sagði við New York Times.
Ísrael Íran Hernaður Bandaríkin Donald Trump Líbanon Írak Jemen Sýrland Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Tengdar fréttir Skutu eldflaugum á víxl í alla nótt Íranir og Ísraelar hafa gert árásir á víxl í alla nótt en átök ríkjanna hafa nú staðið í fjóra daga eftir að Ísraelar létu til skarar skríða gegn Íran og kjarnorkuáætlun landsins. 16. júní 2025 06:37 Sagður hafa bannað Ísraelum að drepa æðstaklerkinn Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður hafa hafnað áætlun Ísraela um að ráða æðstaklerkinn í Íran af dögum. Sagt er að hann hafi sagt Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísrael að það væri ekki góð hugmynd. 16. júní 2025 00:14 Tíu drepnir í Ísrael og Írönum ráðlagt að rýma Loftárásir Ísraela og Írana á víxl héldu áfram í nótt. Björgunarsveitir í Ísrael leita í rústum íbúðarhúss í borginni Bat Yam en minnst tíu eru taldir af, þar af börn, eftir að eldflaug var skotið á húsið. Óttast er að fleiri séu enn undir rústunum. 15. júní 2025 10:04 Tuttugu börn drepin í árás á íbúðablokk í Tehran Sextíu eru taldir af, þar af tuttugu börn, eftir að Ísraelsher skaut eldflaug á fjórtán hæða blokk í Tehran í morgun. 14. júní 2025 09:24 Mest lesið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Átta börn látin eftir skotárás Erlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Ég sé engin rök fyrir því“ Innlent Fleiri fréttir Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Sjá meira
Skutu eldflaugum á víxl í alla nótt Íranir og Ísraelar hafa gert árásir á víxl í alla nótt en átök ríkjanna hafa nú staðið í fjóra daga eftir að Ísraelar létu til skarar skríða gegn Íran og kjarnorkuáætlun landsins. 16. júní 2025 06:37
Sagður hafa bannað Ísraelum að drepa æðstaklerkinn Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður hafa hafnað áætlun Ísraela um að ráða æðstaklerkinn í Íran af dögum. Sagt er að hann hafi sagt Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísrael að það væri ekki góð hugmynd. 16. júní 2025 00:14
Tíu drepnir í Ísrael og Írönum ráðlagt að rýma Loftárásir Ísraela og Írana á víxl héldu áfram í nótt. Björgunarsveitir í Ísrael leita í rústum íbúðarhúss í borginni Bat Yam en minnst tíu eru taldir af, þar af börn, eftir að eldflaug var skotið á húsið. Óttast er að fleiri séu enn undir rústunum. 15. júní 2025 10:04
Tuttugu börn drepin í árás á íbúðablokk í Tehran Sextíu eru taldir af, þar af tuttugu börn, eftir að Ísraelsher skaut eldflaug á fjórtán hæða blokk í Tehran í morgun. 14. júní 2025 09:24