Færeyingar krefjast sjálfstæðrar utanríkisstefnu Jón Ísak Ragnarsson og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa 17. júní 2025 23:18 Forsætisráðherra Danmerkur, lögmaður Færeyja og formaður landstjórnar Grænlands héldu blaðamannafund að ríkisfundi loknum í dag. Vísir/Rafn Færeyingar fara fram á meira sjálfstæði í utanríkismálum. Þeir vilja geta gengið í auknum mæli í alþjóðleg samtök og hafa meiri stjórn á eigin sjávarútvegsmálum. Þetta kom fram í máli Aksel Jóhannessen, lögmanns Færeyja, eftir ríkisfund danska konungsríkisins sem haldinn er tvisvar á ári.
Mette Frederiksen, forsætirsáðherra Danmerkur, Aksel Jóhannesen, lögmaður Færeyja, og Jens Frederik-Nielsen, formaður landstjórnar Grænlands, ræddu málin á svokölluðum ríkisfundi sem haldinn er tvisvar á ári. Þangað mæta yfirleitt valdir ráðherrar úr ríkisstjórnum Færeyja, Grænlands og Danmerkur. Fundurinn fór fram í Færeyjum. Í gær fór óformlegur fundur fram á eyjunni Tindhólmi, en eftir þann fund sagði Aksel í viðtali við Kringvarpið að hann hefði sagt við kollega sína að Færeyingar færu fram á meira sjálfstæði í utanríkismálum. Færeyingar flögguðu íslenska þjóðfánanum í dag.Vísir/Rafn Fundurinn sjálfur var haldinn í skrifstofum lögmannsins á Þinganesi í dag, og þar viðhafði Aksel sambærilegan málflutning, og sagðist vona að danska ríkisstjórnin sæi sér fært að samþykkja það. Vill fjárfesta í hernaðarinnviðum Mette Frederiksen talaði aðallega um varnarmál og var tíðrætt um mikilvægi þétts hernaðarlegs sambands danska konungsríkisins. Hún hét því að styrkja varnir á Grænlandi. Hún sagði einnig að Danmörk hygðist fjárfesta mikið í Færeyjum og Grænlandi. Það væri vilji ríkisstjórnarinnar að fjárfesta í hernaðarlegum innviðum sem og öðrum innviðum á Færeyjum en sérstaklega á Grænlandi. Jens Frederik Nielsen, formaður landstjórnar Grænlands, sagði Grænland hafa lengi viljað auknar heimildir í utanríkismálum. Hann lagði einnig mikla áherslu á það að komið verði fram við Grænland sem jafningja til að mynda í Norðurlandaráðinu en eins og er í dag á Grænland aðeins einn fulltrúa þar, samanber þá sjö sem við Íslendingar eigum og þá tuttugu sem Danir eiga. Mette Frederiksen er forsætisráðherra Danmerkur.Vísir/Rafn Rafn Ágúst fréttamaður Vísis er í Færeyjum og ræddi við ráðherrana að loknum blaðamannafundi. Hann segir að Mette Frederiksen hafi engum spurningum svarað um kröfur Færeyinga um meira sjálfstæði hvað utanríkismálin varðar. Hún hafi snúið upp á spurninguna og farið að tala um varnarmál. Hún hafi samþykkt að veita viðstöddum fréttamönnum viðtöl að loknum blaðamannafundi, en eftir fundinn hafi hún yfirgefið svæðið án þess að veita viðtal. Ánægður með samstarf Færeyja og Íslands Aksel Jóhannesen lögmaður Færeyja er vongóður um að Danir muni koma til móts við kröfur Færeyinga. Heldur þú að danska ríkisstjórninn muni koma til móts við óskir ykkar um aukið sjálfstæði í utanríkismálum? „Það vona ég og þær samræður sem við höfum átt með dönsku ríkisstjórninni hefur verið jákvæð. Ég held að pólitískt séð skilji danska ríkisstjórnin þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í framtíðinni og að við þurfum að mæta þeim áskorunum.“ Aksel Johannesen segist hafa átt jákvæðar samræður með dönsku ríkisstjórninni.Vísir/Rafn „Ég er bjartsýnn á það að við getum gert samkomulag við dönsku ríkisstjórnina til að fá það utanríkispólitíska sjálfstæði sem við þurfum á að halda.“ Finnst þér eitthvað táknrænt við að þessi fundur og þessi ummæli þín komi á þjóðhátíðardegi Íslendinga sem er jú dagurinn þar sem því er fagnað að Ísland varð sjálfstætt lýðveldi utan hvers konar ríkjasambands? „Það er það því miður ekki en til hamingju með þjóðhátíðardaginn. Við í Færeyjum erum mjög ánægð með það samstarf sem við eigum með Íslandi og við vonumst til að geta átt ábátasamt og náið samstarf með Íslandi í framtíðinni.“ Jens Frederik Nielsen er formaður landstjórnar Grænlands.Vísir/Rafn Jens Frederik Nielsen segir að Grænland starfi á grunni sem geri þeim kleift að öðlast sjálfstæði í framtíðinni. Nú vorum við Íslendingar í sömu pólitísku stöðu og þið fyrir einhverjum áratugum síðan en öðluðumst sjálfstæði fyrir akkúrat 81 ári í dag. Horfa Grænlendingar til Íslands og okkar vegferð til sjálfstæðis? „Einmitt núna starfar Grænland á grunni sem gerir okkur kleift að öðlast sjálfstæði í framtíðinni og í því ferli höfum við aðra hluti sem við þurfum að skoða í samhengi þess ríkjasambands sem við erum í akkúrat núna. Grænland vill þjóðaratkvæðagreiðslu þegar öllu er á botninn hvolft en nú erum við í þeirri stöðu að við þurfum að skoða jafnræðið og það er það sem við erum að gera.“ Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, í þungum þönkum að loknum fundi.Vísir/Rafn Fulltrúar Grænlands.Vísir/Rafn Lars Løkke í góðum gír.Vísir/Rafn
Færeyjar Danmörk Grænland Mest lesið Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Færeyingar vilja fullveldi Erlent Segir stefna í menningarslys á Birkimel Innlent Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Innlent Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax Erlent Trump fundar með þjóðaröryggisráði Erlent Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Innlent Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Innlent Skjálfti fannst í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Færeyingar vilja fullveldi Trump fundar með þjóðaröryggisráði Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax „Erum að horfa á eitthvað betra en vopnahlé“ Drápu tugi sem biðu þess að fá mat Læknir játar að hafa gefið Perry ketamín Trump segir fólki að yfirgefa Tehran hið snarasta Ætlaði að myrða tvo þingmenn til viðbótar Gerðu árás á sjónvarpshúsið í miðri útsendingu Þeim sem skaut þingmenn lýst sem kristilegum íhaldsmanni Fyrsta konan sem stýrir MI6 Trump vill að ICE spýti í lófana og handtaki fleiri ólöglega innflytjendur Tala látinna eftir flugslysið komin í 270 Skutu eldflaugum á víxl í alla nótt Árásarmaðurinn í Minnesota handtekinn Sagður hafa bannað Ísraelum að drepa æðstaklerkinn Hlupu frá Danmörku til Svíþjóðar Annar þingmaðurinn látinn og byssumannsins enn leitað Tíu drepnir í Ísrael og Írönum ráðlagt að rýma Minnst þrír latnir í Ísrael og Teheran í ljósum logum Tveir ríkisþingmenn skotnir á heimilum sínum Varnarmálaráðherra segir að Tehran muni brenna Tuttugu börn drepin í árás á íbúðablokk í Tehran Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Aukinn hraði í framsókn Rússa Minnst tveir drepnir í hefndarárásum Írana Fregnir af eldsvoða á flugvelli í Teheran Segir Íran hafa farið yfir strikið Íranir hefna sín og eldflaugar fljúga í Tel Aviv Forsætisráðherra Spánar biður þjóðina afsökunar á spillingarmáli Sjá meira