Handbolti

Barðist fyrir Viggó við erfiðar að­stæður: „Ég vildi þetta ekki“

Aron Guðmundsson skrifar
Rúnar Sigtryggsson var látinn taka pokann sinn hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Leipzig eftir síðasta tímabil. Hann lýsir krefjandi aðstæðum hjá félaginu 
Rúnar Sigtryggsson var látinn taka pokann sinn hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Leipzig eftir síðasta tímabil. Hann lýsir krefjandi aðstæðum hjá félaginu  vísir/Getty

Rúnari Sig­tryggs­syni var sagt upp störfum sem þjálfari Leipzig í þýsku úr­vals­deildinni í hand­bolta eftir nýafstaðið tíma­bil. Rúnar starfaði við krefjandi aðstæður hjá Leipzig, barðist fyrir því að halda ís­lenskum lands­liðs­manni innan sinna raða en fékk það ekki í gegn.

Rúnar tók við þjálfun Leipzig í þýsku úr­vals­deildinni árið 2022 og eftir gott gengi var í fyrra ákveðið að fram­lengja samning hans. Leipzig endaði í 13.sæti á nýaf­stöðnu tíma­bili, sem er lakari árangur en tíma­bilið þar á undan og ákváðu forráða­menn félagsins að leysa Rúnar frá störfum. Rúnar hefur þurft að starfa við krefjandi aðstæður þar sem að slæm fjár­hags­staða Leipzig hefur haft sitt að segja.

„Þetta er búið að vera lær­dóms­ríkt en síðan að ég kom hingað hafa verið sparnaðarað­gerðir í gangi. Alltaf verið að minnka í leik­manna­hópnum og í ár var ástandið sér­stak­lega slæmt. Meðal annars þurfti að selja Viggó, eða þurfti þess ég veit það ekki. Hann var alla­vegana seldur. Mark­miðið var bara að lenda ekki í fall­baráttu, sem við og sluppum við en við vorum neðar­lega í töflunni og menn sættu sig ekki við það. Þá var bara ákveðið að láta þetta gott heita.“

Staðan var bara erfið

Kom það þér á óvart að forráða­menn félagsins skyldu nú ákveða að leita annað?

„Þetta er alltaf bara spurning um það hvernig menn horfa á þetta. Menn hér eru að stefna á Evrópu­keppni en það er voða erfitt að þróa eitt­hvað ef það er alltaf verið að losa fleiri leik­menn heldur en koma til félagsins á móti. Staðan var bara erfið, ef til vill hefði geta verið hægt að spila betur úr þessu en úr því sem komið var er þetta bara ákvörðun sem var tekin og maður verður bara að sætta sig við það.“

Hafðirðu hug á því að halda áfram eftir nýaf­staðið tíma­bil?

„Já ég átti eitt ár eftir og í fyrsta sinn núna átti að vera ein­hver mögu­leiki á því að fá leik­menn í sumar. Losa ein­hverjar stöður en þegar að ég kom hingað fyrir tveimur og hálfu ári síðan voru allir leik­menn með frekar langa samninga og lítið hægt að hreyfa við liðinu. Það hefur ýmis­legt spilað inn í. Fjár­hags­vand­ræði til að mynda og þá er þetta niður­staðan.“

Barðist fyrir því að halda Viggó

Rúnar nefndi áður söluna á ís­lenska lands­liðs­manninum Viggó Kristjáns­syni frá Leipzig til Erlangen. Viggó hafði verið lykilmaður í liði Leipzig og reyndist svo bjarg­vættur Erlangen á nýaf­stöðnu tíma­bili. Til­boð Erlangen í hann var of gott fyrir Leipzig til að hafna, Rúnar vildi hins vegar ekki missa hann.

Viggó Kristjánsson í leik með íslenska landsliðinu. Það var stórt högg fyrir Leipzig að missa hann frá sér.VÍSIR/VILHELM

„Ég vildi þetta ekki en þetta voru bara þannig peningar í spilunum að félagið gat ekki sagt nei. Við fórum inn í tíma­bilið með fimm leik­menn í útilínunni, sem er mjög lítið. Í október sleit rétt­henta skyttan okkar kross­band og leik­maðurinn sem við fengum í staðinn fyrir hann var ekki að fylla það skarð nægi­lega vel. Svo eftir að Viggó fór meiðist hinn örv­henti leik­maðurinn og hann er frá alveg þangað til í apríl. Við vorum því í raun að spila þetta á þriðja örv­henta leik­manninum frá Erlangen sem kom í skiptum fyrir Viggó, sem og tveimur miðjumönnum lungað af tíma­bilinu. Menn gerðu það bara fínt en það hefði þurft oft eitt til tvö mörk í viðbót til þess að þetta hefði verið betra.“

Reyndirðu að berjast fyrir því að halda Viggó?

„Já. Þetta tók nokkrar vikur en eftir að upp­hæðin frá Erlangen passaði fyrir Leipzig þá hefurðu ekkert um þetta að segja í rauninni í svona málum. Það vakir náttúru­lega fyrir öllum að félagið lifi svona af. Það lifir ekki af í enda­lausum mínus.“

„Gæfan ekki með okkur í liði“

Hvernig var að vinna í þessu um­hverfi?

„Það er allt í lagi. Þegar að þú kemur úr hand­boltanum á Ís­landi þá er það nú meira hark heldur en hitt. Það er alveg hægt að takast á við þetta en auðvitað eru erfiðar ákvarðanir sem þarf að taka en eftir á hyggja þá reyndum við að gera okkar besta. Ég held að við höfum tapað sjö eða átta leikjum með einu marki frá því í desember og það segir okkur kannski líka það að gæfan var ekki með okkur í liði. Niður­staða tíma­bilsins er því þrettánda sæti eftir að hafa endað í því áttunda árið áður. Þrátt fyrir að við hefðum minnkað hópinn þá var mark­miðið enn að ná þessu áttunda sæti en við vorum langt frá því í ár.“

Það gekk á ýmsu hjá Leipzig á síðasta tímabiliVísir/Getty

Forráða­menn Leipzig stefna á að vera á meðal topp sex liða þýsku deildarinnar og fara í Evrópu­keppni þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Rúnar gengur sáttur frá borði.

„Mér fannst þetta fínn tími. Auðvitað er alltaf leiðin­legt þegar að þetta tekur enda en í þjálfara­bransanum endar þetta nú yfir­leitt svona. Ég get alveg gengið frá borði upp­réttur og veit alveg hvað við gerðum. Ég skil líka að menn vilji, því það er alltaf verið að stefna á eitt­hvað Evrópusæti sem er þá topp sex sæti í þýsku úr­vals­deildinni, gera það með nýjum manni í brúnni. Það verður þá bara að koma í ljós hvernig það gengur.“

Hvað svo?

Hvað fram­haldið varðar er Rúnar með ákveðna sýn.

„Ég ætla nú að byrja á að njóta sumarsins. Ég á enn eitt ár eftir af þessum samningi sem þarf að ganga frá. Ég ætla nýta þann tíma. Maður fer því að kíkja á það í haust hvað gæti verið í boði frá og með sumrinu 2026. Þá kemur það í ljós hvort það verði eitt­hvað eða hvort maður snýr sér að ein­hverju allt öðru.“

Rúnar hefur notið þess að þjálfa í þýsku úrvalsdeildinniVísir/Getty

Þannig að þú hugsar þetta þannig að nú gæti tekið við ár þar sem að þú hleður batteríin og skerpt sýnina á fram­haldinu?

„Já. Þetta er mjög skemmti­legt. Það er mjög gaman að vinna í þessu og ég hefði alveg hug á því að gera það áfram ef eitt­hvað gott býðst. Maður vill fyrst skoða þann mögu­leika áður en að maður fer að líta eitt­hvað annað í kringum sig.“

Hafandi verið í Þýska­landi undan­farin ár myndi hugurinn leita fyrst þangað alltaf upp á næsta kafla að gera?

„Já og ég myndi búast við því að það kæmi þá alltaf eitt­hvað héðan því maður er kominn með eitt­hvað nafn hérna en ég hefði ekkert á móti því að það kæmi eitt­hvað frá hlýrri löndum. En það er fínt hérna, um­hverfið hér er mjög gott, deildin alltaf að vaxa og mér það bendir allt til þess að sportið sé að vera stærra og betra hér. Bæði liðin sem léku til úr­slita í Meistara­deildinni sem og Evrópu­deildinni komu frá Þýska­landi til að mynda.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×