Innlent

Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orku­málum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður Norðausturkjördæmis.
Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður Norðausturkjördæmis. Stefán Ingvarsson

Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir stefna í viðvarandi orkuskort í landinu. Umhverfis- og orkuráðherra boðar hins vegar að nýjum virkjanakostum verði bætt í nýtingarflokk á hverju ári.

Fyrstu línur ríkisstjórnarflokkanna í orkumálum birtast núna í tillögu sem liggur fyrir Alþingi frá meirihlutanum í umhverfis- og samgöngunefnd um hvernig eigi að flokka fimm virkjanakosti í vatnsafli.

Þar er lagt til að Héraðsvötn í Skagafirði fari í vernd, Kjalölduveita og Urriðafoss í bið en Skrokköldu- og Holtavirkjun fari í nýtingu. Í samanlögðum gígavattsstundum þýddi þetta að 22 prósent mætti nýta, 47 prósent færu í bið en 31 prósent í vernd.

Hér sést hvernig ríkisstjórnarflokkarnir vilja flokka virkjanakostina fimm. Af 3.517 gígavattsstundum hyggjast þeir leyfa nýtingu á 760 gígavattsstundum eða 22 prósent.Grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson

Í fréttum Sýnar segir Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, orkuspá Landsnets gera ráð fyrir að 5.000 gígavattsstundir þurfi í viðbót fyrir árið 2035. Núna séu á teikniborðinu hjá Landsvirkjun 2.110 gígavattsstundir í fimm virkjanakostum.

Af 3.500 gígavattsstundum í rammaáætlun núna ætli stjórnarflokkanir einungis að nýta 760 gígavattsstundir.

„Og bara orkuspá Landsnets segir að fyrir árið 2035 þurfi fimmþúsund gígavattsstundir. Þannig að þetta gengur ekki upp,“ segir Jens Garðar.

Jóhann Páll Jóhannsson er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.Stefán Ingvarsson

Jóhann Páll Jóhannsson, ráðherra orku- og umhverfismála, boðar hins vegar tvær nýjar rammaáætlanir á næsta löggjafarþingi. Þar verði fjallað um tvo vatnsaflskosti á Vestfjörðum, vatnsaflskost á Austurlandi, jarðhitakost á Hellisheiði auk þess sem hann hafi í gær tilkynnt um samráðsferli 350 gígavattsstunda vindorkukosts í Garpsdal við Gilsfjörð.

„Þannig að það er gríðarlega mikið í gangi. Það eru auðvitað mörg verkefni nú þegar í orkunýtingarflokki rammaáætlunar,“ segir Jóhann Páll.

Séð norður yfir Gilsfjörð inn í Garpsdal. Vindmyllur eru áformaðar á fjöllunum upp af dalnum.Egill Aðalsteinsson

„Við erum þá bara að halda áfram að vera hér í viðvarandi orkuskorti ef við tökum ekki alvarlega á þessum málum.

Og við sjálfstæðismenn höfum lagt það til að allir þeir kostir sem voru núna inni í rammanum, þessir fimm virkjanakostir, fari allir í nýtingu,“ segir Jens Garðar.

Austari-Jökulsá í Skagafirði, sem er hluti Héraðsvatna, fer í verndarflokk, samkvæmt tillögu stjórnarmeirihlutans á Alþingi.KMU

„Það er svolítið talað um þessa rammaáætlun, sem er núna fyrir þingi, eins og hún marki upphaf og endi orkuöflunar á næstu árum. Það er ekki þannig.

Við erum að fara að klára nýja rammaáætlun á hverju einasta ári á þessu löggjafarþingi. Við erum að fara að bæta í orkunýtingarflokkinn á hverju einasta ári til þess að tryggja að það sé nægt framboð af orku í landinu,“ segir ráðherrann.

„Það er talað um að það eigi að fara hér í stórkostlega orkuuppbyggingu. Svo erum við með fimm stóra og flotta orkukosti sem eru gríðarlega mikilvægir. Og það eru einungis tveir minnstu kostirnir af fimm, 760 gígavattsstundir af 3.517. 

Það segir sig sjálft. Það er ekki verið að standa við stóru orðin,“ segir Jens Garðar í frétt Sýnar, sem sjá má hér:


Tengdar fréttir

Vill leggja fram nýja rammaáætlun á hverju þingi út kjörtíma­bilið

Nýr umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segist sjá tækifæri til þessa að leggja fram nýja rammaáætlun á hverju einasta þingi á kjörtímabilinu. Hann segir að sér hafi brugðið þegar hann sá hversu lítið síðasta ríkisstjórn gerði til þess að einfalda þunglamalegt leyfisveitingaferli fyrir orkuöflun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×