Mikael hraunaði yfir dómarann í hálfleik og lagði svo upp Sindri Sverrisson skrifar 14. september 2025 14:24 Mikael Anderson lék með Íslandi gegn Frökkum á þriðjudaginn og var svo mættur aftur í slaginn í Svíþjóð í dag. Getty/Tnani Badreddine Landsliðsmaðurinn Mikael Anderson var afar óánægður með gula spjaldið sem hann fékk í grannaslag með Djurgården gegn Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Hann hneykslaðist á dómaranum í viðtali í hálfleik og lagði svo upp mark í seinni hálfleiknum, í 3-3 jafntefli.
Mikael fékk að líta gula spjaldið frá dómaranum Joakim Östling eftir að hafa, að minnsta kosti að eigin mati, farið með öxl í öxl í baráttu um boltann. Hann kom inn á þetta í viðtali við HBO Max í hálfleik, þegar Djurgården var 2-1 undir: „Við þurfum að tala um dómarann. Það var sjokkerandi þegar hann gaf mér gult spjald í þessari aukaspyrnu. Hvað get ég sagt? Þetta er virkilega lélegt hjá dómaranum,“ sagði Mikael. Andersons domarsågning i derbyt: "Chockerande".https://t.co/UyGN8iAiVz pic.twitter.com/26uQKZBJAx— Fotbollskanalen (@fotbollskanal) September 14, 2025 Gula spjaldið þýðir að hann verður í banni í næsta leik, gegn Malmö. En Mikael átti svo hornspyrnu snemma í seinni hálfleik sem endaði með jöfnunarmarki, sem sennilega skráist sem sjálfsmark. Gestirnir frá Hammarby komust aftur yfir en Djurgården náði að jafna á sjöttu mínútu uppbótartíma og þar við sat. Djurgården er nú með 35 stig eftir 23 leiki, í 8. sæti af 16 liðum. Hamarby er hins vegar næstefst með 46 stig en þó tíu stigum á eftir Mjällby.
Sænski boltinn Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Union St.Gilloise - Real Sociedad | Orri mættur til Belgíu Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Sjá meira