„Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Aron Guðmundsson skrifar 1. febrúar 2026 21:31 Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands vísir / vilhelm Sérfræðingar Besta sætisins segja ekkert annað koma til greina en að bjóða Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara Íslands, nýjan samning fram yfir Ólympíuleikana 2028.
Ísland endaði í fjórða sæti á nýafstöðnu Evrópumóti karla í handbolta eftir tap gegn Króötum í leiknum um bronsverðlaun í Herning í dag. Um er að ræða besta árangur íslenska landsliðsins á stórmóti síðan árið 2010 þegar að liðið endaði í þriðja sæti á EM í Austurríki. Handboltasérfræðingarnir Einar Jónsson og Rúnar Kárason voru sammála um að heilt yfir hafi íslenska landsliðið átt frábært mót á EM. „Frábær árangur,“ sagði Einar Jónsson í Besta sætinu. „Markmiðið var að fara í undanúrslit, við náðum því og það finnst mér virkilega vel gert. Menn geta talað um að við höfum verið í auðveldari hluta mótsins, leiðin hafi verið greið og allt það en það þarf bara að skila sínu og niðurstaðan er bara góð.“ Þetta var þriðja stórmót Íslands undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar og tekur Einar eftir góðum bætingum milli móta. „Síðasta mót var framför frá mótinu þar á undan sem var lélegt að mínu mati. Það var fyrsta stórmót liðsins undir stjórn Snorra. Frammistaðan á HM í fyrra var góð en niðurstaðan ekki nógu góð. Núna í ár erum við búin að ná þessu markmiði sem búið er að reyna ná í ansi mörg ár. Að komast í undanúrslit. Við erum búin að ná þessu núna, það er stórt skref og núna getum við farið að horfa lengra. Eftir ár sitjum við kannski hérna og segjum að fjórða sætið sé vonbrigði en þetta eru alls ekki vonbrigði núna, þetta er virkilega góð frammistaða og liðið er stöðugt að færast nær þessum bestu liðum. Við sjáum það.“ Framundan sé þó gríðarleg vinna. „Það þarf að greina þetta mót og það býr hellingur í þessu liði. Ég tel að þetta lið geti náð lengra, alveg klárlega en það er eitt og annað að mínu mati sem þarf að breytast.“ Snorri Steinn skrifaði undir þriggja ára samning þegar að hann tók við landsliðsþjálfara stöðunni í júní árið 2023. Hann rennur sitt skeið eftir nokkra mánuði. Er eitthvað annað sem kemur til greina en að HSÍ bjóði honum annan samning? „Nei. Mér finndist það fáránlegt ef við ætlum að fara breyta eitthvað til,“ svaraði Rúnar og Einar bætti svo við: „Ég myndi gefa honum samning fram yfir Ólympíuleikana 2028. En það er ekki nóg að henda bara í samning. Það þarf að gera kröfur, þarf að setja markmið og allt það. Við erum komin á þann stað að það er hægt að gera það. Að sjálfsögðu ætti hann að fá samning allavegana fram yfir Ólympíuleikana 2028, engin spurning. Þetta lið er á virkilega góðri leið og mér finnst þetta engin spurning.“ Sérfræðingarnir hafa ekki áhyggjur af því að Snorri Steinn fari nú að líta í kringum sig og taka mögulega við félagsliði. „Ég held hann langi að vera í þessu starfi og búsettur á Ísland,“ sagði Rúnar og bætti við að utanfrá líti staðan þannig út að leikmenn treysti Snorra og hans hugmyndafræði og að það væri góður taktur í liðinu. Þú getur hlustað á uppgjör Besta sætisins í spilaranum hér fyrir ofan eða á streymisveitum í gegnum hlekkina hér fyrir neðan:
Besta sætið EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Handbolti Tengdar fréttir Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki Danir í stúkunni kyrja „Ísland! Ísland!“ eftir hetjulega baráttu strákanna okkar á lokakaflanum. Það var of lítið, of seint, en þessir drengir hafa heldur betur náð mörgum á sitt band með besta árangri þessa hóps á stórmóti. 1. febrúar 2026 19:00 EM í dag: Úti er ævintýri og truflun frá Tona EM ævintýri strákanna okkar er lokið. Fjórða sætið var niðurstaðan að þessu sinni. 1. febrúar 2026 18:47 „Ætla bara að vera stór og stoltur af þessu liði“ Gísli Þorgeir Kristjánsson var að vonum svekktur með tapið fyrir Króatíu, 33-34, í bronsleiknum á EM. Hann kvaðst þó sáttur með frammistöðu Íslands á mótinu. 1. febrúar 2026 17:16 „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ „Þetta er bara ótrúlega svekkjandi,“ sagði Bjarki Már Elísson eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta í bronsleik EM gegn Króötum í dag. 1. febrúar 2026 16:58 Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Enn og aftur erfiður Dagur gegn Króatíu Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með minnsta mun fyrir Króatíu, 33-34, í leiknum um bronsið á EM í dag. Íslendingar voru nær allan tímann í eltingarleik en áttu gott áhlaup undir lok leiks sem dugði þó ekki til. Of mörg dauðafæri fóru í súginn og markvarslan var takmörkuð framan af leik. 1. febrúar 2026 16:46 „Helvíti dýrt í leik eins og þessum“ „Ég er náttúrulega eðlilega bara súr og svekktur,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta gegn Króatíu í bronsleik EM í dag. 1. febrúar 2026 16:44 „Finnst við þurfa að bæta okkur alls staðar“ „Við bara gerðum ekki nógu vel,“ sagði Ómar Ingi Magnússon eftir súrt tap Íslands gegn Króatíu í bronsleik EM í handbolta í dag. 1. febrúar 2026 16:30 Tölfræðin á móti Króötum: Ómar nýtti öll skotin en aðrir fóru illa með dauðafærin Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með einu marki á móti Króatíu í leiknum um bronsverðlaunin á Evrópumótinu í handbolta 2026. Hér má sjá tölfræðina úr leiknum. 1. febrúar 2026 16:28 Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Íslenska karlalandsliðið í handbolta þarf að sætta sig við 4. sæti Evrópumótsins í handbolta eftir súrt eins marks tap gegn Króötum í bronsleiknum í dag, 34-33. 1. febrúar 2026 16:00 Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Enski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Sjá meira
Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki Danir í stúkunni kyrja „Ísland! Ísland!“ eftir hetjulega baráttu strákanna okkar á lokakaflanum. Það var of lítið, of seint, en þessir drengir hafa heldur betur náð mörgum á sitt band með besta árangri þessa hóps á stórmóti. 1. febrúar 2026 19:00
EM í dag: Úti er ævintýri og truflun frá Tona EM ævintýri strákanna okkar er lokið. Fjórða sætið var niðurstaðan að þessu sinni. 1. febrúar 2026 18:47
„Ætla bara að vera stór og stoltur af þessu liði“ Gísli Þorgeir Kristjánsson var að vonum svekktur með tapið fyrir Króatíu, 33-34, í bronsleiknum á EM. Hann kvaðst þó sáttur með frammistöðu Íslands á mótinu. 1. febrúar 2026 17:16
„Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ „Þetta er bara ótrúlega svekkjandi,“ sagði Bjarki Már Elísson eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta í bronsleik EM gegn Króötum í dag. 1. febrúar 2026 16:58
Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Enn og aftur erfiður Dagur gegn Króatíu Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með minnsta mun fyrir Króatíu, 33-34, í leiknum um bronsið á EM í dag. Íslendingar voru nær allan tímann í eltingarleik en áttu gott áhlaup undir lok leiks sem dugði þó ekki til. Of mörg dauðafæri fóru í súginn og markvarslan var takmörkuð framan af leik. 1. febrúar 2026 16:46
„Helvíti dýrt í leik eins og þessum“ „Ég er náttúrulega eðlilega bara súr og svekktur,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta gegn Króatíu í bronsleik EM í dag. 1. febrúar 2026 16:44
„Finnst við þurfa að bæta okkur alls staðar“ „Við bara gerðum ekki nógu vel,“ sagði Ómar Ingi Magnússon eftir súrt tap Íslands gegn Króatíu í bronsleik EM í handbolta í dag. 1. febrúar 2026 16:30
Tölfræðin á móti Króötum: Ómar nýtti öll skotin en aðrir fóru illa með dauðafærin Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með einu marki á móti Króatíu í leiknum um bronsverðlaunin á Evrópumótinu í handbolta 2026. Hér má sjá tölfræðina úr leiknum. 1. febrúar 2026 16:28
Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Íslenska karlalandsliðið í handbolta þarf að sætta sig við 4. sæti Evrópumótsins í handbolta eftir súrt eins marks tap gegn Króötum í bronsleiknum í dag, 34-33. 1. febrúar 2026 16:00