Brennum kerfið til grunna Unnar Þór Sæmundsson skrifar 18. febrúar 2026 08:02 Umræðan í kjölfar Bakkakotsmálsins hefur að mestu snúist um „mistök“ eða „brotalamir“ í barnaverndarkerfinu. Sú nálgun er skiljanleg, en hún er röng að mínu mati. Vandinn er ekki að kerfið hafi brugðist. Vandinn er að kerfið virkaði nákvæmlega eins og það var hannað til að virka. Barnaverndarkerfið er byggt upp sem lokað valdkerfi þar sem ákvarðanir eru teknar innan stjórnsýslunnar, með takmarkaðri aðkomu utanaðkomandi, veiku eftirliti og afar þröngum kostum þeirra sem málið snertir þ.e. börn, foreldrar eða aðstandendur, til að hafa raunveruleg áhrif. Í slíku kerfi er ekki óeðlilegt að viðvaranir falli á milli, ábyrgð verði útvötnuð og alvarlegir ágallar haldist óbreyttir árum saman. Kerfið er skipulagt þannig að traust er sjálfgefið inn á við en tortryggni beinist út á við. Þegar ábendingar berast eru þær oft túlkaðar sem árás á kerfið frekar en sem upplýsingar sem kalla á sjálfstæða athugun. Þetta setur einstaklinga sem lenda í völundarhúsi kerfisins í ómögulega stöðu því þeir eru jú valdaminni en kerfið sem veður áfram með vald sitt. Þegar eftirlit fer fram er það iðulega formfast innra eftirlit sem oftar en ekki er framkvæmt af tengdum aðilum. Fjarlægð valds og eftirlit er því ekkert. Þetta er ekki slys. Þetta er hönnun. Þegar ríkið tekur barn úr umsjá foreldra og felur því umönnun í öðru úrræði, þá er það ekki aðeins félagslegt inngrip heldur stjórnvaldsákvörðun með gríðarlegum afleiðingum. Samt er kerfið þannig úr garði gert að þegar eitthvað fer úrskeiðis er afar erfitt að greina hver beri ábyrgð og enn erfiðara að kalla hana fram. Ábyrgðin leysist upp í ferlum, nefndum, samningum og verkaskiptingu. Það er því villandi að tala um einstakt mál eða frávik. Málið um Bakkakot er ekki undantekning frá reglunni heldur birtingarmynd hennar. Kerfi sem er hannað til að verja sig sjálft sig, forðast utanaðkomandi íhlutun og viðhalda þöggun. Kerfið mun alltaf fara fram með offorsi til þess að verja status quo, jafnvel þegar það kostar börn öryggi. Slík er hönnunin. Raunveruleg umræða um umbætur getur ekki hafist fyrr en við hættum að spyrja hvaða starfsmenn brugðust og byrjum að spyrja hvaða kerfi leyfði að enginn þyrfti að bera ábyrgð. Ekki hvort eftirlit hafi verið ófullnægjandi, heldur hvort eftirlitið hafi yfirhöfuð verið hugsað sem raunverulegt aðhald eða aðeins sem staðfesting á því sem kerfið vildi sjálft sjá. Ef við höldum áfram að tala um „mistök“ mun næsta mál líta út eins og slysið sem enginn sá fyrir. Það er alltaf hægt að skipta um stuðara á grindarskökkum bíl. Ef við viðurkennum hins vegar að vandinn er fólginn í því hvernig við hönnuðum og byggðum kerfið frá upphafi, þá blasa svörin við, það er ekki auðvelt að horfast í augu við að kerfið sem við áttum að treysta hafi verið byggt meðvitað svona en lausnin er ekki að plástra barnaverndarkerfið heldur endurhugsa það frá grunni og byggja nýtt.Við eigum bókstaflega að brenna núverandi kerfi til grunna og byrja aftur.Höfundur var barn í Bakkakoti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mál fósturbarna á Bakkakoti Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar