„Frammistaðan kannski ekkert alltof góð en tvö góð stig“ Siggeir Ævarsson skrifar 19. febrúar 2026 21:39 Jóhann Þór Ólafsson er þjálfari Grindvíkinga. Vísir/Anton Grindavík vann fimm stiga seiglusigur á ÍR í kvöld í Bónus-deild karla, 100-95. Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var sáttur með stigin tvö í leik þar sem bæði lið gerðu ítrekuð áhlaup og munurinn sveiflaðist ótt og títt.
Það má sennilega lýsa þessum leik sem dæmigerðum leik áhlaupa? „Ég held að það sé alveg óhætt að segja það. Sóknarlega voru við á köflum alveg feikigóðir og láku gæðin hérna af ákveðnum mönnum á köflum. En þetta datt alltof langt niður fyrir minn smekk. Við náum í tvö stig. Við erum laskaðir og að við séum að ná að kreista út þessa sigra er bara ótrúlegt. Að við skulum vera í þessari stöðu sem við erum í miðað við hvernig við höfum æft í allan vetur, þetta verður rannsakað eftir einhver ár.“ Grindvíkingar fengu gott framlag af bekknum í kvöld og frá leikmönnum sem hafa ekki spilað mikið í vetur en þeir eru að glíma við töluverð meiðsli lykilmanna og voru án þriggja þeirra í kvöld. „Bara hrós á þessa stráka, Ragga, Nökkva, Unnstein. Valur Orri kom með góðar mínútur líka. Byrjaði og stóð sig vel. Vonandi mun þetta nýtast okkar þegar upp er staðið. Núna fáum við góða pásu og náum vonandi að tjasla okkur saman og vera klárir í lokasprettinn.“ Arnór Tristan Helgason verður frá næstu vikurnar og þá meiddist Daniel Mortensen í síðasta leik og var ekki með í kvöld. Kristófer Breki Gylfason hitaði upp en spilaði svo ekki. „Hann ætlaði að prófa að hita upp og sjá hvernig staðan væri á sér. Svo bara sá hann það fljótlega og tekin ákvörðun í samráði við sjúkraþjálfara að hann myndi ekkert spila. Svo er Ólafur að skríða saman og gat ekkert komið inn á í restina. Bara mikið hrós á þessa stráka sem eru að stíga upp og fá stærra hlutverk og meiri mínútur. Bara sáttur með tvö stig. „Frammistaðan kannski ekkert alltof góð en tvö góð stig.“ Það má kannski gera ráð fyrir því að þeir leikir sem eru framundan hjá Grindavík muni að einhverju leyti ráðast á því hvernig þessir minni spámenn stíga upp í fjarveru lykilmanna? „Algjörlega. Eins og ég sagði áðan þá vonandi mun þetta hjálpa okkur og nýtast í lokin. Ég ætla svo sem ekkert að vera að kvarta og tuða yfir því hvernig staðan er og allt það þó þetta hljómi svolítið þannig. Nú kemur þessi landsleikjapása og vonandi náum við að tjasla öllum saman og verðum klárir í lokasprettinn.“
Bónus-deild karla UMF Grindavík Körfubolti Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira