„Ég vissi ekki“ Unnar Þór Sæmundsson skrifar 20. febrúar 2026 08:48 Í nýlegu viðtali við RÚV segir Bragi Guðbrandsson, fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu, að hann hafi hvorki vitað af né fengið upplýsingar um alvarleg brot sem áttu sér stað innan barnaverndarkerfisins á meðan hann stýrði stofnuninni. Í sama viðtali segir hann jafnframt að hann hafi sjálfur hannað kerfið. Þetta er ekki smávægilegt atriði. Þetta er kjarni málsins. Hvernig getur arkitekt kerfis verið óupplýstur um verstu afleiðingar þess? Ef barnaverndarkerfi er hannað með þeim hætti að ofbeldi geti átt sér stað árum saman án þess að upplýsingar berist til æðstu stjórnenda, þá er ekki nægjanlegt að vísa til þess að upplýsingaflæðið hafi brugðist. Þá verður að spyrja hvort kerfið hafi í raun verið byggt þannig að upplýsingarnar gátu einfaldlega ekki borist. Þá er það ekki tilviljun. Þá er það ekki „óheppilegt“. Þá er það niðurstaða. Þá hefur verið búið til kerfi þar sem ábyrgð er hönnuð til að stöðvast áður en hún nær toppnum. Hvernig kerfi hannar maður þannig að sá sem ber mesta valdið ber jafnframt minnstu ábyrgðina? Í grein sem ég skrifaði nýlega hélt ég því fram að barnaverndarkerfið væri ekki bara bilað, eða röð einstakra mistaka hafi leitt okkur hingað heldur byggt á röngum forsendum. Kerfi sem ver sjálft sig betur en börnin sem það á að vernda. Kerfi þar sem traust er sjálfgefið inn á við, tortryggni beint út á við og gagnrýni túlkuð sem árás. Kerfi þar sem „enginn vissi“ er ekki afsökun, heldur innbyggð niðurstaða. Kerfi þar sem fullyrðingin „ég vissi ekki“ verður ekki undantekning heldur eðlilegur endapunktur. Hvernig hönnun er það að endapunkturinn sé engin ábyrgð? Í mínum huga staðfesti viðtalið við Braga þá mynd sem ég dró upp í fyrri grein minni. Þegar sá sem lýsir sér sem arkitekt kerfisins segist jafnframt ekki hafa vitað af alvarlegustu brotum innan þess, þá er það ekki afsökun heldur einkenni. Einkenni kerfis sem var ekki hannað með raunverulegt aðhald í huga, heldur með þeirri hugmynd að ábyrgð væri eitthvað sem mætti út vatna, frekar en axla. Sú hugmynd að vandinn kunni að vera hönnun kerfisins sjálfs virðist aldrei koma til greina. Þess í stað er vísað í umfang, flækjustig og aðstæður eins og kerfi verði til af sjálfu sér, óháð þeim sem móta þau. Bragi talar um að horfa til nútíðar og skoða hvernig við erum að standa okkur í dag.Hvernig eru stuðlar að standa sig? Hvernig var það með börnin í fangaklefum í Hafnarfirði? Hvernig er meðferð barna háttað? Það sem vekur mesta athygli í viðtalinu er ekki skortur á samúð eða skilningi á alvarleika málsins. Það er skortur á sjálfsgagnrýni. Sú hugmynd virðist aldrei fá rými að vandinn kunni að vera sjálf hönnun kerfisins, ekki bara aðstæður, fjárskortur eða umfang. Það er skiljanlegt. Þegar fólk hefur byggt feril, orðspor og sjálfsmynd á því að hafa skapað kerfi sem átti að gera gott, þá er ótrúlega erfitt að horfast í augu við að kerfið hafi ekki bara brugðist heldur verið rangt hugsað frá upphafi. En kerfi eru ekki náttúrufyrirbæri. Þau eru afrakstur ákvarðana. Þegar kerfi er hannað þannig að upplýsingarnar berast ekki upp, þá er ekki nóg að segja að þær hafi ekki borist. Þá verður að horfast í augu við að kerfið var ekki hannað til að þola sannleikann þegar hann var óþægilegur. Erum við nógu hugrökk til að horfast í augu við raunveruleikann? Sú staðreynd að ofbeldi geti viðgengist innan kerfis án þess að „berast upp“ segir okkur eitthvað mun dýpra. Kerfið var aldrei byggt til að tryggja að sannleikurinn næði alla leið. Það var byggt til að virka, til að líta vel út, til að halda áfram. Bragi segir þetta í viðtalinu og bendir á að kerfið sé gott, það virki og það sé engin þörf á að brenna það til grunna. Þessu er ég auðvitað ósammála. Þegar kerfi er þannig upp byggt að þeir sem standa efst geta með sanni sagt að þeir hafi ekki vitað, þá er vandinn ekki einstaklingurinn sem segist ekki hafa vitað. Vandinn er kerfið sem gerði honum kleift að vera óupplýstur, gerði honum kleift að halda fjarlægð frá afleiðingum eigin ákvarðana. Og ef þeir sem hönnuðu kerfið geta ekki horfst í augu við þann veruleika, þá staðfestir það aðeins það sem fórnarlömbin hafa lengi vitað. Kerfið var ekki byggt með þau í forgangi. Hvort viljum við kerfi sem er byggt á þöggun og ábyrgðarleysi eða kerfi sem er hannað til að taka utan um börn? Það dugar ekki að laga sprungur eða bæta ferla. Þegar vandinn liggur í sjálfri hönnuninni þarf að hugsa hlutina upp á nýtt. Ekki til að finna blóraböggla, heldur til að tryggja að ábyrgð, eftirlit og vernd séu ekki valkvæð hugtök heldur ófrávíkjanleg. Og þar liggur raunverulegi vandinn. Ekki í því að einhver vissi ekki, heldur í því að kerfið gerði honum kleift að vita ekki. Kerfi sem skilar þeirri niðurstöðu er ekki kerfi sem þarf að laga. Það er kerfi sem þarf að endurhugsa frá grunni. Því annars mun sama sagan endurtaka sig, með nýjum nöfnum, nýjum viðtölum, nýjum afsökunum og sömu setningunni. „Ég vissi ekki.“ Brennum þetta bara. Höfundur var barn í Bakkakoti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mál fósturbarna á Bakkakoti Unnar Þór Sæmundsson Tengdar fréttir Brennum kerfið til grunna Umræðan í kjölfar Bakkakotsmálsins hefur að mestu snúist um „mistök“ eða „brotalamir“ í barnaverndarkerfinu. Sú nálgun er skiljanleg, en hún er röng að mínu mati. Vandinn er ekki að kerfið hafi brugðist. Vandinn er að kerfið virkaði nákvæmlega eins og það var hannað til að virka. 18. febrúar 2026 08:02 Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Brennum kerfið til grunna Umræðan í kjölfar Bakkakotsmálsins hefur að mestu snúist um „mistök“ eða „brotalamir“ í barnaverndarkerfinu. Sú nálgun er skiljanleg, en hún er röng að mínu mati. Vandinn er ekki að kerfið hafi brugðist. Vandinn er að kerfið virkaði nákvæmlega eins og það var hannað til að virka. 18. febrúar 2026 08:02
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar