Kapphlaupið um sumarnámskeiðin Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 3. mars 2026 07:00 Á hverju vori endurtekur sama sagan sig hjá fjölmörgum fjölskyldum í Reykjavík. Foreldrar sitja klárir við tölvuna eða símann á skráningardegi í sumarnámskeið borgarinnar, oft á miðjum vinnudegi, í þeirri von um að ná plássi fyrir börnin sín. Nokkrum mínútum síðar eru vinsælustu námskeiðin full og biðlistar orðnir langir. Þá sitja sumir foreldrar eftir með sárt ennið og óvissuna um hvernig eigi að púsla saman sumrinu á meðan skólarnir eru lokaðir. Niðurstaðan er einfaldlega sú að ekki öll börn komast að. Jöfnum leikinn - fjölgum plássum! Takmörkuð pláss á sumarnámskeiðum er orðinn streituvaldur fyrir fjölskyldur í borginni. Skráning í þessa sjálfsögðu þjónustu yfir sumartímann líkist sífellt meira kapphlaupi um tónleikamiða stórhljómsveitar. Ekki hafa allir foreldrar sveigjanlegan vinnutíma eða svigrúm í vinnu til að vera við tölvuna á þeirri stundu sem skráningin opnar. Þannig standa sumir betur að vígi en aðrir. Slík staða skapar ójafnræði í þjónustu sem á að vera aðgengileg öllum börnum. Sumarnámskeið og smiðjur borgarinnar eru mikilvæg grunnþjónusta við barnafjölskyldur. Þau eru öflugt og uppbyggilegt frístundastarf sem eflir félagsfærni, hæfni og vellíðan barna og gera foreldrum kleift að samræma vinnu og fjölskyldulíf. Þegar framboðið er ekki í takt við eftirspurnina er ljóst að bregðast þarf við. Þess vegna leggjum við í Framsókn fram tillögu í borgarstjórn Reykjavíkur um að auka framboð sumarnámskeiða og smiðja fyrir börn á grunnskólaaldri í Reykjavík. Með því að fjölga plássum og mæta þeirri miklu eftirspurn sem blasir við getum við dregið úr álagi á fjölskyldur og tryggt að fleiri börn fái að njóta þeirra tækifæra sem sumarnámskeiðin bjóða upp á. Höfundur er borgarfulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Börn og uppeldi Frístund barna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Á hverju vori endurtekur sama sagan sig hjá fjölmörgum fjölskyldum í Reykjavík. Foreldrar sitja klárir við tölvuna eða símann á skráningardegi í sumarnámskeið borgarinnar, oft á miðjum vinnudegi, í þeirri von um að ná plássi fyrir börnin sín. Nokkrum mínútum síðar eru vinsælustu námskeiðin full og biðlistar orðnir langir. Þá sitja sumir foreldrar eftir með sárt ennið og óvissuna um hvernig eigi að púsla saman sumrinu á meðan skólarnir eru lokaðir. Niðurstaðan er einfaldlega sú að ekki öll börn komast að. Jöfnum leikinn - fjölgum plássum! Takmörkuð pláss á sumarnámskeiðum er orðinn streituvaldur fyrir fjölskyldur í borginni. Skráning í þessa sjálfsögðu þjónustu yfir sumartímann líkist sífellt meira kapphlaupi um tónleikamiða stórhljómsveitar. Ekki hafa allir foreldrar sveigjanlegan vinnutíma eða svigrúm í vinnu til að vera við tölvuna á þeirri stundu sem skráningin opnar. Þannig standa sumir betur að vígi en aðrir. Slík staða skapar ójafnræði í þjónustu sem á að vera aðgengileg öllum börnum. Sumarnámskeið og smiðjur borgarinnar eru mikilvæg grunnþjónusta við barnafjölskyldur. Þau eru öflugt og uppbyggilegt frístundastarf sem eflir félagsfærni, hæfni og vellíðan barna og gera foreldrum kleift að samræma vinnu og fjölskyldulíf. Þegar framboðið er ekki í takt við eftirspurnina er ljóst að bregðast þarf við. Þess vegna leggjum við í Framsókn fram tillögu í borgarstjórn Reykjavíkur um að auka framboð sumarnámskeiða og smiðja fyrir börn á grunnskólaaldri í Reykjavík. Með því að fjölga plássum og mæta þeirri miklu eftirspurn sem blasir við getum við dregið úr álagi á fjölskyldur og tryggt að fleiri börn fái að njóta þeirra tækifæra sem sumarnámskeiðin bjóða upp á. Höfundur er borgarfulltrúi.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar