Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. mars 2026 06:31 Ísraelsher segist nú standa í árásum á Tehran og Beirút á sama tíma. Getty/Fatemeh Bahrami Stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hefur nú breiðst út um öll Mið-Austurlönd, með gagnárásum Írana á herstöðvar og sendiráð Bandaríkjanna og skotmörk í Ísrael.
Greint hefur verið frá því að sendiráði Bandaríkjanna í Ríad í Sádi-Arabíu hefði verið lokað tímabundið eftir að það varð fyrir drónaárás. Þá hefur Bandaríkjastjórn skipað flestum starfsmönnum sínum og fjölskyldum þeirra í Írak, Barein og Jórdaníu að yfirgefa ríkin. Íranski byltingavörðurinn greindi frá því í morgun að hann hefði gert árás á herstöð Bandaríkjamanna í Sheikh Isa í Barein, sem samanstóð af að minnsta kosti 20 drónum og þremur eldflaugum. Sagðist hann hafa eyðilagt stjórnstöð stöðvarinnar en þetta hefur ekki verið staðfest. Yfirvöld vestanhafs hafa hvatt ríkisborgara sína til að yfirgefa yfir tug ríkja í Mið-Austurlöndum, meðal annars Barein, Egyptaland, Íran, Írak, Ísrael, Palestínu, Jórdaníu, Kúveit, Líbanon, Óman, Katar, Sádi-Arabíu, Sýrland, Sameinuðu arabísku furstadæmin og Jemen. Ísraelsher greindi frá því fyrir stundu að árásir stæðu yfir á bæði Tehran og Beirút, höfuðborg Líbanon. Íbúum í suðurhluta Líbanon hafði áður verið ráðlagt að flýja heimili sín. Hezbollah hefur á sama tíma staðið fyrir árásum á skotmörk í Ísrael. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, endurómaði skilaboð bandarískra embættismanna frá því í gær þegar hann sagði að stríðið gegn Íran gæti tekið nokkurn tíma en myndi ekki standa yfir í einhver ár. „Þetta er ekki endalaust stríð,“ sagði hann í samtali við Fox News.
Íran Ísrael Bandaríkin Líbanon Hernaður Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Sex handteknir í vændisrassíu lögreglu Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Fleiri fréttir Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Sjá meira