Hormuz sund og Ísland Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar 10. mars 2026 12:03 Hormuz sund við Persaflóa er merkilegur staður. Í gegnum þetta sund fara um 20% af olíu og fljótandi gasi sem notað er á heimsvísu. Flutningar um sundið hafa heldur betur hikstað undanfarið af augljósum ástæðum. Þessi staða hefur snarhækkað heimsmarkaðsverð á olíu og gasi með tilheyrandi verðbólguþrýstingi. Bein áhrif þessara verðhækkana eru skýr þ.e. þetta veldur verðhækkunum á raforku og hitun þar sem gas er nýtt í einhverju mæli og svo mun dæluverð á bensíni og dísil hækka hratt. Íslandsáhrifin Hver verða áhrifin á Íslandi? Í fyrsta lagi verða þau lítil sem engin á raforkuverð og hitun þar sem Ísland er hreinlega bólusett gagnvart þessum sveiflum, enda öll raforkuframleiðsla og hitun hér með innlendum, umhverfisvænum og mjög stöðugum orkugjöfum. Áhrifin hefðu verið skelfileg fyrir almenning og efnahag á Íslandi ef hitun væri enn með olíu eða ef gas væri nýtt að hluta til raforkuframleiðslu. Samgöngur á landi Olía knýr stærstan hluta af samgöngum hér á landi. Staðan er samt sem áður nokkuð skárri en hún var fyrir t.d.10 árum, þegar allar samgöngur voru algerlega háðar erlendri olíu. Innlend og hrein raforka er nefnilega byrjuð að saxa á þetta algera orku óöryggi sem var til staðar í samgöngum. Nú eru á götum landsins fólksbifreiðar, sendibílar, pallbílar, strætisvagnar, rútur, vörubílar, steypubílar og lögreglubílar sem ganga á innlendri raforku. Um 40 þúsund ökutæki keyra nú á 100% innlendri raforku. Segja má að búið sé að „bólusetja“ rúmlega 13% ökutækja fyrir Hormuz sundi og öðrum óæskilegum verðbólum sem leggjast að jafnaði á olíu þegar eitthvað bjátar á út í heimi. Ef við skoðum einungis fólksbíla þá er hlutfall rafbíla nær 15% en rafvæðing flotans byrjaði ekki að neinni alvöru fyrr en árið 2020. Af þeim 100 þúsund fólksbílum sem hafa verið nýskráðir eftir 2020 eru um 35 þúsund rafbílar. Þriðjungur nýrri fólksbíla er því ónæmur fyrir þessum olíuverðhækkunum á dælu. Betri tíð í vændum Rafvæddar samgöngur eru ódýrari en olíudrifnar og Ísland er í dauðafæri að þynna út óæskileg verðsveifluáhrif olíu í samgöngum á landi. Rafknúin ökutæki eru framleidd á heimsvísu í öllum stærðum og gerðum í tugmilljóna vís og ekkert því til fyrirstöðu að innleiða þau hratt og vel. Gróflega endurnýjast um 5% ökutækjaflotans á hverju ári, þannig að landið getur orðið að mestu ónæmt fyrir t.d. Hormuz áhrifum einhvern tíma á næstu tveimur áratugum. Einnig er mikilvægt að benda á að hægt er að milda olíuóróa með ýmsum hætti án rafbíla. Metanbílar nota innlenda orku og tengiltvinnbílar keyra að hluta til á raforku. Svo er auðvitað skynsamlegt að auka hlut göngu, hjólreiða, almenningssamgangna og fjarvinnu til að draga nokkuð úr áhrifum olíuverðhækkana og auka orkuöryggi landsins. Höfundur er sviðsstjóri Sviðs orkuskipta og hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Ingi Friðleifsson Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bensín og olía Mest lesið Óvissa í aðfangaöflun landbúnaðar Erna Bjarnadóttir Skoðun Frá auðlindaforskoti til þekkingarforskots Sigurður Atli Jónsson Skoðun Ekki bara barnvænt sveitarfélag í kosningabaráttu Leyla Ósk Jónsdóttir Skoðun Neitunarvaldið Gunnar Salvarsson Skoðun Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin Skoðun Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson Skoðun Schengen - hvað færir það okkur? Aðalstein Júlíus Magnússon Skoðun Hefjum uppbyggingu miðbæjar Egilsstaða Jóhann Hjalti Þorsteinsson Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skugginn sem eltir: Þegar einelti fullorðinna fær að þrífast Ólafur Björn Guðmundsson skrifar Skoðun Ekki bara barnvænt sveitarfélag í kosningabaráttu Leyla Ósk Jónsdóttir skrifar Skoðun Frá auðlindaforskoti til þekkingarforskots Sigurður Atli Jónsson skrifar Skoðun Schengen - hvað færir það okkur? Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Af hverju treystir Reykjavík ekki atvinnulífinu? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Óvissa í aðfangaöflun landbúnaðar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Neitunarvaldið Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Mitt heimili, mín rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Óásættanleg seinkun — hvalirnir munu borga fyrir það Arne Feuerhahn skrifar Skoðun Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um borgarlínur í Skandinavíu Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Berum höfuðið hátt áfram Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hefjum uppbyggingu miðbæjar Egilsstaða Jóhann Hjalti Þorsteinsson skrifar Skoðun Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin skrifar Skoðun Hugsuðir framtíðarinnar sitja aftast í bekknum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hólar í hjartastað Sólrún Harðardóttir skrifar Skoðun Að verða Akureyringur Zane Brikovska skrifar Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Öruggt húsnæði fyrir alla Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar krefst raunverulegrar þjónustu Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Breyttur bær Erna Kristín Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar stendur hnífurinn í kúnni, Kristrún? Inga Fanney Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík getur gripið börn fyrr Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Höfnum framtíðinni sem aldrei kom Bjarni Guðjónsson skrifar Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hættulegar skólalóðir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Skugginn sem eltir: Þegar einelti fullorðinna fær að þrífast Ólafur Björn Guðmundsson skrifar
Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar