Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Árni Sæberg skrifar 10. mars 2026 16:08 Fólkið fannst látið þann 14. júní í fyrra. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um að móðirin í Edition-málinu svokallaða skuli sæta farbanni til 30. mars næstkomandi. Málið er enn ekki komið aftur á borð Héraðssaksóknara eftir að embættið sendi það aftur til lögreglu til frekari rannsóknar. Í úrskurði héraðsdóms eru skýrslutökur konunnar hjá lögreglu raktar en í þeim er meðal annars haft eftir konunni að dóttir hennar hefði viljað deyja með foreldrum sínum. Konan sat í gæsluvarðhaldi frá því að málið kom upp þann 14. júní í fyrra til og með 4. september en hefur síðan þá sætt farbanni. Þann 4. febrúar staðfesti Landsréttur að hún skyldi sæta farbanni til 30. október næstkomandi. Greint var frá því þann 24. febrúar að Héraðssaksóknari hefði sent Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu málið til frekari rannsóknar. Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, sagði þá í samtali við Vísi að ganga þyrfti frá nokkrum lausum endum í málinu. Nú segist hann búast við því að fá málið aftur inn á borð til sín mjög fljótlega. Játaði á vettvangi Í fyrri úrskurði héraðsdóms var aðkomu á vettvangi málsins lýst. Í honum sagði meðal annars að þann 14. júní hefði lögreglu borist tilkynning frá starfsfólki Edition-hótelsins sem óskaði eftir aðstoð vegna þess að kona hefði fallið í sturtu á herbergi hótelsins. Vert er að taka fram að í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólk i með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar 1700, Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og síma Pieta-samtakanna, 552-2218, sem er opinn allan sólarhringinn. Síðar hefðu borist upplýsingar um að konan væri með stungusár á bringu eftir hníf auk þess að vera vopnuð hnífi. Meðvitundarlaus maður lægi á gólfinu í hótelherberginu og búið væri að breiða yfir hann lak. Þegar lögreglumenn komu á vettvang hefði kona setið á gólfinu, með sjáanlegt sár á bringunni, og sagt við lögreglu að hún hefði drepið tvær manneskjur. Á leið af vettvangi og á bráðamóttöku hefði konan tjáð lögreglu að líkin væru af eiginmanni hennar og dóttur. Þá sagði hún við hjúkrunarfræðing, þannig að lögreglumaður heyrði til, að eiginmaður hennar væri dauðvona og hún hefði ekki viljað að dóttir þeirra, sem var á þrítugsaldri, yrði ein eftir lifandi. Þá sagðist hún hafa ætlað að svipta sig lífi með því að stinga sig í hjartað. Dóttirin hefði verið lengi að deyja Í nýja úrskurðinum segir að tekin hafi verið skýrsla af konunni strax 14. júní. Þá hafi hún greint frá því að hún, eiginmaður hennar og dóttir hefðu ákveðið að fremja sjálfsvíg saman. Dóttirin hefði verið fyrst og það tekið langan tíma en konan hafi ekki viljað tjá sig nánar um það. „Kvað varnaraðili þó að hún sjálf væri skrímsli. Því næst hafi eiginmaður varnaraðila stungið varnaraðila en hann hafi átt að stinga hana í hjartað en ekki hitt. Þá hafi eiginmaðurinn ætlað að stinga sjálfan sig en af ónefndum ástæðum hafi hann beðið varnaraðila um að stinga sig, sem hún hafi gert.“ Veikindi og erfðamál Þann 18. júní önnur skýrsla verið tekin af konunni. Hún hafi greint frá því að þau fjölskyldan hefðu tekið ákvörðun um að deyja saman og því farið til Íslands, sem hefði átt að vera þeirra síðasta samvera saman. Eiginmaður hennar hefði glímt við erfið veikindi, auk þess sem erfið fjárhagsleg erfðamál hefðu tekið mjög á fjölskylduna. „Hún greindi frá því að þau hjónin hafi gefið dóttur þeirra fullt frelsi til að ákveða sín eigin örlög og hún hafi verið ákveðin um að deyja með foreldrum sínum.“ Þann 13. eða 14. júní hefði eiginmaður hennar tekið ákvörðun um að stundin væri nú runnin upp, þar sem þau myndu deyja saman og hún ásamt dóttur þeirra tekið undir það. „Kvað hún dóttur þeirra hafa beðið um að fara fyrst og hafi eiginmaður hennar því stungið hana með hnífi þar sem hún lá í rúminu í herberginu. Í kjölfarið hafi eiginmaður hennar stungið varnaraðila með hnífi í brjóstkassann og þau legið hlið við hlið í rúminu. Varnaraðili kvaðst hafa verið meðvitundarlítil og sofnað, en síðan hafi hún vaknað og þá breytt laki yfir líkin og reynt að þrífa þau.“ Sagðist hafa verið í uppnámi þegar hún játaði Um morguninn hefði hún síðan hringt í móttöku hótelsins og látið vita af ástandinu. Aðspurð hafi hún neitað að hafa stungið þau með hnífi í umrætt sinn. Hún hafi hins vegar sagst þrá að deyja með þeim. Þá hafi hún greint frá því að eiginmaður hennar hefði komið með hnífana með sér og það hefði verið hann sem hefði ákveðið stað og stund fyrir verknaðinn. „Framburður hennar á vettvangi var borin undir hana og kvaðst hún hafa verið í uppnámi þá og því hafi hún sagst hafa stungið eiginmann sinn og dóttur.“ Hafi reynt aftur daginn eftir Loks segir að skýrsla hafi verið tekin af konunni þann 2. júlí. Þá hafi hún greint frá því að umrædda nótt hefði hún rankað við sér í rúminu og þá hefði eiginmaður hennar verið að fá hana til að taka utan um rafmagnskapal með honum til að fá rafstuð og deyja þannig saman. Einnig hefði hún reynt að svipta sig lífi um morguninn með því að kveikja á hárblásara í sturtunni. Að öðru leyti hafi hún engu við fyrri framburð haft að bæta. Dómsmál Lögreglumál Manndráp á Reykjavík Edition Reykjavík Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Óveður gengur yfir landið Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira
Vert er að taka fram að í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólk i með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar 1700, Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og síma Pieta-samtakanna, 552-2218, sem er opinn allan sólarhringinn.
Dómsmál Lögreglumál Manndráp á Reykjavík Edition Reykjavík Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Óveður gengur yfir landið Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira