„EKKERT BENDI TIL ÞESS AÐ SÚ SÉ RAUNIN“ Freyja Þórisdóttir skrifar 15. mars 2026 13:00 Sigmundur Davíð formaður Miðflokksins hefur lýst þeirri skoðun sinni að að ekkert bendi til þess að Ísraelar ætli að fremja þjóðarmorð í Palestínu. Síðan segir hann: „Hafi sú verið raunin, þá hefur þeim gengið afskaplega illa með það“. Lesið þessa setningu aftur; Að Ísrael hafi gengið illa með sitt þjóðarmorð - að það sé ekkert þjóðamorð! Meðal samtaka sem hafa lýst stríði Ísraels gegn Palestínu sem þjóðarmorði eru: Alþjóðasamtök þjóðarmorðsfræðinga, Lemkin-stofnunin til varnar þjóðarmorði, Genocide Watch, Amnesty International, Human Rights Watch, B´T Selem, Læknar án landamæra og Óháð alþjóðleg rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna um hernumdu palestínsku svæðin. Sigmundur Davíð segir einnig að hermenn Ísraels „reyna að hlífa almennum borgurum.“ Ísraelsher segir í sínum skýrslum að 83% þeirra sem þeir hafa drepið á Gaza eru almennir borgarar. En Sigmundur Davíð veit betur eins og alltaf og það er ekki þjóðarmorð í hans bókum að drepa vísvitandi almenna borgara. Sigmundur Davíð horfir framhjá þeirri staðreynd að Ísraelar hafa drepið tugþúsundir með sprengjuregni, skothríð og sveltistefnu, að Ísraelar hafa eyðilagt að mestu sjúkrahús og heimili Gazabúa og að ísraelskar leyniskyttur hafa drepið hundruð barna. Þetta heitir í túlkun Sigmundar Davíðs að „reyna að hlífa almennum borgurum.“ Hann, fyrrverandi forsætisráðherra, þykist ekki vita hvað þjóðarmorð er og heldur að hann geti túlkað hluti fram og aftur að eigin geðþótta líkt og í öðrum málum sem hann fjallar um. Hugtakið þjóðarmorð (e. Genocide) heitir hópmorð í íslenskum lögum og varð til í eftirleik heimstyrjaldarinnar sem lauk 1945. „Lög um refsingar fyrir hópmorð, glæpi gegn mannúð, stríðsglæpi og glæpi gegn friði“ tóku gildi hér á landi 2018. Skilgreining laganna á hópmorði er sú sama og er í sáttmála Sameinuðu þjóðanna um þjóðarmorð frá 1948. Eftirtaldir verknaðir teljast hópmorð þegar þeir eru framdir í þeim tilgangi að útrýma með öllu eða að hluta þjóð, þjóðernishópi, kynstofni eða trúflokki sem slíkum:a. að drepa einstaklinga úr viðkomandi hópi,b. að valda einstaklingum úr viðkomandi hópi alvarlegum líkamlegum eða andlegum skaða,c. að þröngva viðkomandi hópi af ásetningi til þess að búa við lífsskilyrði sem miða að líkamlegri eyðingu hópsins eða hluta hans,d. að beita þvingunaraðgerðum sem miða að því að koma í veg fyrir barnsfæðingar í hópnum,e. að flytja börn með valdi úr hópnum til annars hóps. Hernaður Ísraels á Gaza uppfyllir öll þessi atriði. Þeir hafa drepið fleiri en 75,000 Gazabúa og þar af 70% börn og konur. Hundruð þúsunda eru særð og mörg þúsund hafa dáið sökum matarskorts og skorts á lyfjum og heilbrigðisþjónustu. Ísrael hefur drepið hundruð lækna og hjúkrunarfólks og eyðilagt sjúkrahús. Allt er þetta gert „af ásetningi til þess að búa við lífsskilyrði sem miða að líkamlegri eyðingu hópsins eða hluta hans.“ og „koma í veg fyrir barnsfæðingar í hópnum.“ Ísraelsher hefur fangelsað hundruð palestínskra barna og sett þau í pyntingarbúðir. Það er til fólk, jafnvel hér á landi, sem afneitar helför nasista gegn gyðingum. En slíkt gerir engin manneskja með siðferðiskennd og heilbrigðan hug. Nú fetar Sigmundur Davíð þessa slóð. Mikil er skömm hans. Höfundur er ellilífeyrisþegi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðarleiðtogi sem enginn tekur lengur mark á. Til hvers er hann þá? Júlíus Valsson Skoðun Fengu hvorugt varanlegar undanþágur Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Fær örmögnun fætur? Gunnar Önnu Svanbergsson Skoðun Samþjöppun auðs og hindranir fyrir ungt fólk á Íslandi Sigurður Sigurðsson Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Sameign þjóðarinnar — eða stærsta tilfærsla auðlinda í sögu Íslands? Vilhelm Jónsson Skoðun Staðreyndir um efnaskiptaaðgerðir á Íslandi Hjörtur Gíslason Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson Skoðun Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun „EKKERT BENDI TIL ÞESS AÐ SÚ SÉ RAUNIN“ Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Staðreyndir um efnaskiptaaðgerðir á Íslandi Hjörtur Gíslason skrifar Skoðun „EKKERT BENDI TIL ÞESS AÐ SÚ SÉ RAUNIN“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fær örmögnun fætur? Gunnar Önnu Svanbergsson skrifar Skoðun Þjóðarleiðtogi sem enginn tekur lengur mark á. Til hvers er hann þá? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Fengu hvorugt varanlegar undanþágur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Samþjöppun auðs og hindranir fyrir ungt fólk á Íslandi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er óheppni hjúkrunarfræðingurinn raunverulega óheppinn? Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Handjárn eða heilbrigð tengsl Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Ábyrgðarleysi í fiskeldi undir formerkjum uppbyggingar Björn Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Kerfið er brotið af því þú þolir það þannig Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar Skoðun Skerðing í Kópavogi Stefán Vilbergsson skrifar Skoðun Sigurvíma Trump Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Hesturinn í umferðinni Ólafur Gestur Arnalds skrifar Skoðun Hvað er eldsneytið þitt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er ESB „hnignunarbandalag“? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Heppni hjúkrunarfræðingurinn sem á að græða helling Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Davíð kvaddur Ámundi Loftsson skrifar Skoðun Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Kennsla í skugga skráninga Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Hvað hefur oddviti Framsóknar í Kópavogi að fela? Theodóra Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Loftslagspólitík sem gagnast bændum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Þorgerður Katrín treystir ekki þjóðinni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Kaþólska kirkjan og uppbygging íslensks heilbrigðiskerfis Árni Már Jensson skrifar Skoðun Kópavogsleiðin er merkilegt fyrirbæri Tinna Gunnur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ófrjósemi og andleg líðan Ástdís Pálsdóttir Bang skrifar Sjá meira
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun