Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Jakob Bjarnar skrifar 16. mars 2026 16:15 Kristrún er augljóslega orðin afar þreytt á spurningum stjórnarandstöðunnar en Sigmundur Davíð og Guðrún þráspurðu hana út í aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið á þingi í dag. vísir/samsett Það fauk í Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi nú fyrir stundu en hún velti fyrir sér hvers kyns leikrit væri í gangi í þingsal; stjórnarandstaðan þráspyrði um sömu atriðin.
Ljóst var að það stóð til, af hálfu stjórnarandstöðunnar, að þjarma að Kristrúnu vegna kosninga um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins reið á vaðið og var með fyrirspurn til Kristrúnar. Af hverju treystir ríkisstjórnin sér ekki til að skýra málin? Guðrún vildi ræða aðildarviðræðurnar sem þjóðin mun, ef að líkum lætur, kjósa um 29. ágúst næstkomandi og vita hvað á hvaða forsendum þjóðin ætti að kjósa? Hvort Kristrún gerði sér grein fyrir því að það lægi ekki fyrir. Hvar eru rauðu línurnar í sjávarútvegsmálum, orkumálum og öðrum málum sem skipta Íslendinga meginmáli? Kristrún sagði þetta ekki einfalt mál þó að í grunninn væri það ekki flókið. Fyrir lægi afstaða ríkisstjórnarinnar, krafa Íslendinga um að þeir fengju óskoruð yfirráð yfir auðlindum sínum. „Rauðu línurnar eru skýrar í okkar huga.“ Guðrún sagði að ef markmiðin væru svona skýr, af hverju treysti ríkisstjórnin sér ekki til að upplýsa þjóðina um þau? Sagt væri að enginn Íslendingur þyrfti að vera sérfræðingur í Evrópusambandinu til að kjósa en landsmenn þurfi ekki að vita um hvað skuli kjósa? Og hvernig væri það með Kristrúnu sjálfa? Hún hafi sagt í aðdraganda kosningabaráttunnar að hún vildi ekki leggja erfið mál upp sem kljúfa myndu þjóðina en núna ráði einfaldur meirihluti? Hvort er það? Nú var farið að síga í Kristrúnu. Hún spurði hversu oft stjórnarandstaðan ætlaði sér að koma upp í pontu og tortryggja sömu hlutina? Hvers konar leikur er þetta? Óþarft sé að koma hér upp reglulega með þessa taktík í pólitík. Hún sagði málið í höndum þjóðarinnar og meirihlutinn ráði. Látið að liggja að þjóðin viti ekkert í sinn haus Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins var næstur í pontu og hann vildi einnig sauma að forsætisráðherra. Hann sagði ríkisstjórnina meira um umbúðir en innihald, reynt væri að fela innihaldið og staglast á því að það eigi að leyfa þjóðinni að velja en ekki hvað hún ætti að velja um. Blekkingar! Sigmundur vildi vita hvort Kristrúnu væri kunnugt um að um leið og aðildarviðræður hefjist, þá þurfi viðkomandi þjóð að laga sig að Evrópusambandinu. Og báknið stækki. Sigmundur Davíð sagði aukinheldur að öllum spurningum um þetta væri svarað með reiði! Kristrún sagði dapurlegt að verða vitni að því að ítrekað væri látið að því liggja að þjóðin viti ekkert í sinni hausnum. Hún sagði þessa umræðu fyrir lifandis löngu farna að snúast um eitthvað allt annað en til stóð. Hér sé stöðugt verið að tala um blekkingar, að við séum að bakka inn í Evrópusambandið með bundið fyrir bæði augu. En þjóðinni sé mætavel treystandi til að kjósa um þetta. Hún eigi fyrsta og síðasta orðið í þessum efnum. „Mig er farið að gruna að það sem stjórnarandstaðan hræðist mest er að fá fram afgerandi svar í komandi kosningum,“ sagði Kristrún. Kosningin um aðildarviðræður verður rædd í þaula Á eftir verður þjóðaratkvæðagreiðslan um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu svo áfram til umræðu á Alþingi Íslendinga. Mælendaskrá er þétt bókuð stjórnarandstöðuþingmönnum, einörðum andstæðingum Evrópusambandsaðildar, og gera má ráð fyrir því að þar verði ekki dregið af sér. Fyrstur á mælendaskrá í þessu framhaldi af viðræðunum er Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og svo er það þingflokksformaður Miðflokksins, Sigríður Á. Andersen, sem tekur til máls. Þarna getur að líta ýmsa þeirra þingmanna sem taka munu til máls í annarri umræðu um kosningar um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ólíklegt verður að teljast að það verði eins létt yfir mannskapnum og er þegar þessi mynd var tekin.vísir/anton brink Svo koma þeir einn af öðrum: Snorri Másson varaformaður Miðflokks, Diljá Mist Einarsdóttir Sjálfstæðisflokki, Karl Gauti Hjaltason Miðflokki, Njáll Trausti Friðbertsson Sjálfstæðisflokki, Jón Pétur Zimsen Sjálfstæðisflokki og Ingibjörg Davíðsdóttir Miðflokki. Þórarinn Ingi Pétursson Framsóknarflokki hefur sína aðra ræðu um málið og það gerir einnig Þorgrímur Sigmundsson Miðflokki. Og áfram heldur listinn: Sigurður Örn Hilmarsson Sjálfstæðisflokki er næstur á mælendaskrá, þá Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins, Jens Garðar Helgason varaformaður Sjálfstæðisflokks, Guðlaugur Þór Þórðarson Sjálfstæðisflokki og loks Bergþór Ólason. Enginn stjórnarþingmaður er hins vegar á mælendaskrá og því hætt við að umræðan geti orðið einsleit.
Alþingi Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Tengdar fréttir Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Kjósendur verða að beita eigin dómgreind og kynna sér sjónarmið. Á sama tíma er það skylda stjórnvalda að vanda undirbúning í hverju einasta skrefi. Þessi ákvörðun sé stærri en flokkspólitískir hagsmunir. 14. mars 2026 10:17 Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Fleiri fréttir Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Sjá meira
Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Kjósendur verða að beita eigin dómgreind og kynna sér sjónarmið. Á sama tíma er það skylda stjórnvalda að vanda undirbúning í hverju einasta skrefi. Þessi ákvörðun sé stærri en flokkspólitískir hagsmunir. 14. mars 2026 10:17