„Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Samúel Karl Ólason skrifar 17. mars 2026 15:43 Donald Trump, Bandaríkjaforseti, er ekki sáttur við ríki sem hann hafði krafið um aðstoð við að opna fyrir skipaflutninga um Hormússund og segist ekki hafa þurft á neinni hjálp að halda. AP/Julia Demaree Nikhinson Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir ráðamenn í bandalagsríkjum Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu flesta hafa gert sér ljóst að þeir muni ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn klerkastjórninni í Íran. Forsetinn segir þetta ekki koma sér á óvart, þar sem hann hafi lengi talið NATO vera einstefnugötu. Þá segir hann að Bandaríkin hafi ekki þurft hjálp þeirra og þurfi ekki hjálp frá neinum.
Í nýrri færslu sem hann skrifaði á Truth Social, sinn eigin samfélagsmiðil, segir Trump að þó bandamenn Bandaríkjamanna, sem hann setur gæsalappir utan um til marks um að hann telji þá lélega bandamenn, vilji ekki koma þeim til aðstoðar séu allir sammála um að árásirnar á Íran séu nauðsynlegar. Klerkastjórnin þar megi alls ekki koma upp kjarnorkuvopnum. Bandaríkjamenn sögðu bandamönnum sínum ekki frá ætlunum sínum varðandi Íran. Trump hafði áður gefið til kynna að framtíð NATO væri í húfi ef bandamenn Bandaríkjanna kæmu ekki til aðstoðar við að halda Hormússundi opnu en um fimmtungur allrar olíu heims fer þar um. Átökin í Mið-Austurlandi hafa komið verulega niður á flutningum um sundið og leitt til hækkandi olíuverðs. „Við erum alltaf til staðar fyrir NATO. Við erum að hjálpa þeim með Úkraínu, þó það sé haf á milli okkar. Það hefur ekki áhrif á okkur en við höfum hjálpað þeim. Það verður áhugavert að sjá hvaða land hjálpar okkur ekki með þetta mjög smáa verkefni, sem er að halda sundinu opnu,“ sagði Trump í fyrrakvöld. Þá sagðist hann í rauninni vera að krefjast þess að þessi lönd kæmu og verðu þeirra eigin svæði. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, sagði í dag að Frakkar myndu ekki taka þátt í að opna Hormússund. Þeir væru þó að undirbúa það að fylgja olíuflutningaskipum gegnum sundið seinna meir, þegar stríðinu lýkur. Leiðtogar annarra ríkja í Evrópu og í Asíu, sem Trump hefur þrýst á, hafa slegið á svipaða strengi. Samskipti Trumps við ráðamenn í Evrópu og víðar hafa farið hratt versnandi á seinna kjörtímabili hans. Fyrir því eru ýmsar ástæður og má meðal annars nefna árásir hans í garð Grænlands, beitingar hans á tollum og persónulega gagnrýni hans í garð þjóðarleiðtoga. Segir bandamennina ekkert gera fyrir Bandaríkin Í áðurnefndri færslu á Truth Social segir Trump að það komi sér ekki á óvart að Bandaríkjamenn fái ekki aðstoð. Hann hafi lengi talið NATO vera einstefnugötu þar sem Bandaríkjamenn verji fúlgum fjár í að verja aðra sem vilji ekkert gera fyrir Bandaríkin. Sérstaklega þegar Bandaríkjamenn þurfi á aðstoð að halda. Trump segir einnig að sem betur fer séu Bandaríkjamenn búnir að svo gott sem gera út af við herafla Íran og leiðtoga ríkisins. „Vegna þeirrar staðreyndar að við höfum náð svo miklum hernaðarlegum árangri, „þurfum við“ ekki lengur eða viljum aðstoð frá ríkjum NATO. VIÐ ÞURFTUM ALDREI Á HENNI AÐ HALDA!“ Hann segir það sama gilda um Japan, Ástralíu og Suður-Kóreu. „Reyndar, talandi sem forseti Bandaríkjanna, öflugasta ríkis heimsins, VIÐ ÞURFUM EKKI HJÁLP FRÁ NEINUM!“ Trump var spurður út í færsluna á blaðamannafundi í dag. Trump on NATO countries:They don’t want to help us, which is amazing. I mean, amazing. pic.twitter.com/nnyLqY7XTj— Clash Report (@clashreport) March 17, 2026 Trump: "NATO is making a very foolish mistake. I've long said I wonder if NATO would ever be there for us. So this was a great test. Because we don't need them." pic.twitter.com/i6ZugiMJ3M— Aaron Rupar (@atrupar) March 17, 2026 Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður og náinn bandamaður Trumps, segist hafa rætt við forsetann um bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu. Hann segist aldrei hafa heyrt Trump svo reiðan áður. „Ég deili þeirri reiði, með tilliti til þess sem er í húfi,“ segir Graham. Hann segir þessa bandamenn sýna hroka með því að gefa til kynna að klerkastjórn með kjarnorkuvopn sé ekki áhyggjuefni og að ákvarðanir ráðamanna í Evrópu muni reynast áhrifamiklar hvað varðar samband Evrópu og Bandaríkjanna. Þá segir Graham að með hliðsjón af stöðunni veki það upp spurningar hjá honum varðandi gildi þessara bandalaga. Just spoke to @POTUS about our European allies’ unwillingness to provide assets to keep the Strait of Hormuz functioning, which benefits Europe far more than America. I have never heard him so angry in my life. I share that anger given what’s at stake. The arrogance of our…— Lindsey Graham (@LindseyGrahamSC) March 17, 2026 Fóru í tvenn löng stríð með Bandaríkjunum Trump hefur áður gagnrýnt ríki NATO og sakað þau um að gera lítið sem ekkert fyrir Bandaríkin og dregið í efa að ríkin kæmu Bandaríkjunum til aðstoðar ef ráðist yrði á þau. Ákvæði stofnsáttmála NATO um sameiginlegar varnir hefur einu sinni verið virkjað. Það var eftir árásirnar á Tvíburaturnana og varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna í september 2001. Þá gerðu Bandaríkjamenn innrás í Afganistan, þar sem leiðtogar al-Qaeda, sem gerðu árásirnar, héldu til. Ríki NATO komu Bandaríkjunum til aðstoðar í Afganistan eftir árásina á Tvíburaturnanna og mörg þeirra ríkja fylgdu Bandaríkjunum einnig í innrásinni í Írak árið 2003. Þá komu mörg ríki NATO, auk annarra eins og Ástralíu, að þessum tveimur óvinsælu stríðum í gegnum árin og misstu fjölmarga hermenn.
Donald Trump Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Bensín og olía Skipaflutningar Tengdar fréttir Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ Varnarmálaráðherra Ísrael segir að Ali Larijani, forseti þjóðaröryggisráðs Íran, hafi verið felldur í loftárás í nótt. Þá segjast Ísraelar einnig hafa banað yfirmanni Basij-sveitanna svokölluðu en það eru sveitir sjálfboðaliða sem heyra undir íranska byltingarvörðinn. Þessar sveitir hafa verið sakaðar um umfangsmikil ódæði gegn mótmælendum í Íran. 17. mars 2026 09:53 „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti þegar hann ræddi við blaðamenn í Hvíta húsinu í gær. Þúsundir voru án rafmagns á Kúbu í gær, sem hefur sætt miklum þrýstingi frá stjórnvöldum vestanhafs. 17. mars 2026 07:46 Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Árásir Írana á skotmörk í nágrannaríkjunum héldu áfram í nótt og í morgun og sömuleiðis árásir Ísraelsmanna á skotmörk í Líbanon. Drónaárás var gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad í Írak og þá var gerð árás á lúxushótel í borginni sem er vinsælt meðal erlendra diplómata. 17. mars 2026 06:52 Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur varað við því að framtíð Atlantshafsbandalagsins sé í húfi komi bandamenn ekki til aðstoðar við að greiða fyrir opnun Hormuz-sunds. 16. mars 2026 06:38 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira
Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ Varnarmálaráðherra Ísrael segir að Ali Larijani, forseti þjóðaröryggisráðs Íran, hafi verið felldur í loftárás í nótt. Þá segjast Ísraelar einnig hafa banað yfirmanni Basij-sveitanna svokölluðu en það eru sveitir sjálfboðaliða sem heyra undir íranska byltingarvörðinn. Þessar sveitir hafa verið sakaðar um umfangsmikil ódæði gegn mótmælendum í Íran. 17. mars 2026 09:53
„Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti þegar hann ræddi við blaðamenn í Hvíta húsinu í gær. Þúsundir voru án rafmagns á Kúbu í gær, sem hefur sætt miklum þrýstingi frá stjórnvöldum vestanhafs. 17. mars 2026 07:46
Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Árásir Írana á skotmörk í nágrannaríkjunum héldu áfram í nótt og í morgun og sömuleiðis árásir Ísraelsmanna á skotmörk í Líbanon. Drónaárás var gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad í Írak og þá var gerð árás á lúxushótel í borginni sem er vinsælt meðal erlendra diplómata. 17. mars 2026 06:52
Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur varað við því að framtíð Atlantshafsbandalagsins sé í húfi komi bandamenn ekki til aðstoðar við að greiða fyrir opnun Hormuz-sunds. 16. mars 2026 06:38